JSON-lýsigögn sendingar (Unimaze)
JSON-lýsigögn (REST) er sendingaraðferð í Unimaze dreifisvæðum sem sendir rafræn skjöl sem skipulögð lýsigögn í gegnum Unimaze v2 REST vefþjónustuna. Þessi sendingaraðferð er frábrugðinn Skjalainnihald (REST) sendingarmáta að því leyti að skjölin eru send til Unimaze á JSON sniði en ekki sem XML skjal.
{
"messageHandling": {
"receiverIdentifier": "0196:1234567890",
"fallbackContactName": "Test RdN",
"fallbackEmailAddress": "test@ruedenet.is"
},
"invoice": {
"invoiceNo": "103536",
"issueDate": "2026-06-22",
"dueDate": "2026-06-22",
"currencyCode": "ISK",
"notes": "Invoice 102058"
[...]
Unimaze sér svo um að koma skjölunum í rétt form sem viðtakandi styður. Ef viðtakandi styður ekki rafræn skjöl kemur Unimaze þeim á viðtakanda í tölvupósti. Varatölvupóstfang er krafa fyrir þennan valkost.
Uppsetning dreifisvæðis

Á Dreifisvæði spjaldinu þarf að stilla Sendingarhamur Unimaze á JSON-lýsigögn (REST).
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Sendingarhamur Unimaze | Velja JSON-lýsigögn (REST) til að virkja þennan sendingarmáta. |
| Hunsa reikningsnákvæmni | (Valkvætt) Ef hakað er við mun kerfið senda ignoreBillingAccuracy breytu með reikningum og kreditreikningum, sem víkur frá nákvæmnisprófunum á Unimaze hliðinni. |
| Senda viðhengi | Ef hakað er við eru viðhengi sem hengd eru við rafræn skjöl í BC send með í sömu sendingu til Unimaze. |
Uppsetning viðskiptamanns

Þegar JSON-lýsigögn (REST) er notað þarf að tryggja að viðskiptamaðurinn sé með gilt tölvupóstfang í kerfinu:
- Varatölvupóstfang á viðskiptamannaspjaldinu (í flipanum Rafræn skjöl), eða
- Staðlað Tölvupóstfang á viðskiptamannaspjaldinu.
Ráð
Notaðu Athuga og úthluta dreifisvæði aðgerðina á Viðskiptamannalista til að staðfesta uppsetninguna fyrir marga viðskiptavini í einu. Sjá Athuga og úthluta dreifisvæði.
Forprófun
Áður en skjal er sent athugar kerfið hvort skjalið standist skilyrði vefþjónustunar. Ef eitthvað vantar upp á birtast villur í Villulista rafræns reiknings og skjalið er ekki sent.
Viðhengi á útleið
Ef Senda viðhengi er virkjað á dreifisvæðinu eru öll viðhengi sem hengd eru við rafrænt skjal í BC send til Unimaze sem hluti af sömu sendingunni. Viðhengin eru send í sérstökum köllum eftir að aðalskjalið hefur verið samþykkt af vefþjónustunni.