Afstemming
Glugginn er notaður til að stemma af bankareikninga milli banka og Microsoft Dynamics 365 Business Central.
Upplýsingar

Lýsing reita
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Bankareikningur | Hér er valinn bankareikningur sem á að stemma af. |
| Dagsetningarafmörkun | Hægt að tilgreina dagsetningarafmörkun vegna færslna í gluggum að neðan. |
| Dags. yfirlit | Velja dagsetningu yfirlits frá banka. |
| Heildarstaða á bankareikningi | Sýnir heildarstöðu á bankareikning í Dynamics 365 Business Central. Hægt að smella á töluna til að sjá sundurliðun bankareikningsfærslna. |
| Mismunur | Sýnir mismun milli bankafærslna úr banka og í Dynamics 365 Business Central sem hafa verið merkt til að jafna saman. |
| Markað | Hægt er að merkja færslur vegna aðgerða. |
| Línunúmer yfirlits | Línunúmer á bankayfirliti. |
| Dags. viðskipta | Dagsetning viðskipta í banka. |
| Númer fylgiskjals | Númer fylgiskjals í banka, t.d. kröfunúmer. |
| Lýsing | Lýsing færslu í banka, t.d. heiti viðskiptamanns. |
| Upphæð yfirlits | Upphæð færslu á yfirliti frá banka. |
| Mismunur | Kerfið fyllir í þennan reit ef bankafærsla úr Dynamics 365 Business Central hefur verið valin til að jafna við þessa bankareikningshreyfingu. |
| Jöfnuð upphæð | Ef bankareikningshreyfing hefur verið jöfnuð við bankafærslu í Dynamics 365 Business Central sýnir kerfið jafnaða upphæð. |
| Tegund | Er fyllt út sjálfkrafa með bankareikningsfærslu. |
| Jafnaðar færslur | Sýnir fjölda jafnaðra færslna á bak við þessa bankahreyfingu. |
| Gildisdagur | Ef gildisdagur er annar en dags. viðskipta þá er það fyllt út hér. |
| Nafn tengds aðila | Nafn tengds aðila á bankafærslu ef það hefur verið fyllt út í banka. |
| Viðbótarfærsluupplýsingar | Viðbótarfærsluupplýsingar á bankafærslu ef það hefur verið fyllt út í banka. |
| Færslunr. gagnaskipta | Færslunúmer sem kemur úr samskiptum við banka. |
| Línunr. gagnaskipta | Línunúmer sem kemur úr samskiptum við banka. |
| Gerð yfirlits | Fyllist út sjálfkrafa með bankaafstemmingu. |
| Númer færslu | Færslunúmer frá banka. |
| Bunkanúmer | Bunkanúmer frá banka. |
| Innlausnarbanki | Fyllt út sjálfkrafa með útibú banka. |
| Færsla | Tegund færsla (inn- eða útgreiðsla), fyllt út sjálfkrafa frá banka. |
| Tilvísun | Tilvísun sem er skráð á bankafærslu í banka. |
| Flokkunarkóti | Flokkunarkóti færslu í banka. |
| Flokkur | Flokkur færslu í banka (getur verið Millifært, Innvextir, Innheimtuþjónusta o.s.frv). |
| Greiðandi | Kennitala greiðanda á bankafærslu. |
| Staða | Staða færslu ef hún hefur verið jöfnuð. |
| Afstemming ID | Þegar bankahreyfing hefur verið jöfnuð við bankafærslu í Dynamics 365 Business Central, þá fyllir kerfið sjálfkrafa í þennan reit með afstemming ID. Glugginn hefur enga afmörkun fyrir afstemmingar ID svo notandinn sjái ekki jafnaðar færslur. |
| Bókunardagsetning | Bókunardagsetning bankafærslu. |
| Tegund fylgiskjals | Tegund fylgiskjals í Dynamics 365 Business Central. |
| Númer fylgiskjals | Númer fylgiskjals í Dynamics 365 Business Central. |
| Lýsing | Lýsing á bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Upphæð | Upphæð á bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Eftirstöðvar | Eftirstöðvar bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Upphæð (SGM) | Upphæð (SGM) á bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Gjaldmiðilskóti | Gjaldmiðilskóti á bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Númer bankareiknings | Númer bankareiknings á bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Bókunarflokkur bankareiknings | Bókunarflokkur bankareiknings sem er á línu. |
| Deild kóti | Deildarkóti sem er á bankafærslu. |
| Verkefni kóti | Verkefniskóti sem er á bankafærslu. |
| Kenni notanda | Kenni notanda sem bókaði bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Upprunakóti | Upprunakóti fyrir bankafærslu í Dynamics 365 Business Central. |
| Opin | Ef hakað er í "Opin" þá er bankafærsla opin í kerfinu. |
| Jákvæð | Ef hakað er í þennan reit þá er um jákvæða bankafærslu að ræða. |
| Lokað af færslunni | Ef bankafærslan hefur verið jöfnuð þá er fyllt í þennan reit með færslunúmeri. |
| Lokunardag | Ef bankafærsla hefur verið jöfnuð þá er fyllt í þennan reit með lokunardegi. |
| Heiti bókarkeyrslu | Heiti bókarkeyrslu sem var notuð til að bóka bankafærslu. |
| Ástæðukóti | Ástæðukóti sem var skráður á bankafærslu. |
| Tegund mótreiknings | Tegund mótreiknings á bankafærslu, getur verið fjárhagsreikningur, viðskiptamaður eða lánardrottinn. |
| Mótreikningur nr. | Númer mótreiknings sem var bókað á bankafærslu. |
| Nr. viðskipta | Færslunúmer fyllt út sjálfkrafa af kerfinu við bókun. |
| Staða yfirlits | Er annað hvort opin eða lokuð. |
| Nr. yfirlits | Númer bankayfirlits. |
| Línunr. yfirlits | Línunr. bankayfirlits. |
| Debetupphæð | Upphæð er sett í þennan reit ef færsla er debetfærsla. |
| Kreditupphæð | Upphæð er sett í þennan reit ef færsla er kreditfærsla. |
| Debetupphæð (SGM) | Upphæð (SGM) er sett í þennan reit ef færsla er debetfærsla. |
| Kreditupphæð (SGM) | Upphæð (SGM) er sett í þennan reit ef færsla er kreditfærsla. |
| Dags. fylgiskjals | Dags. fylgiskjals á bankafærslu. |
| Númer utanaðkomandi skjals | Númer utanaðkomandi skjals skráð á bankafærslunni. |
| Bakfært | Hef hakað er í þennan reit hefur þessi bankafærsla verið bakfærð. |
| Bakfært eftir færslunr. | Ef bankafærsla hefur verið bakfærð er fyllt út með færslunúmeri í þennan reit. |
| Aðferð greiðslu | Er annað hvort Millifærsla eða Krafa eftir því hvaðan bankafærsla var mynduð. |
| Kennitala kröfuhafa | Kennitala kröfuhafa á kröfu sem var greidd. |
| Banki flokkunar | Bankanúmer á kröfu sem verið var að greiða. |
| Höfuðbók | Höfuðbók á kröfu sem verið var að greiða. |
| Kröfunúmer | Kröfunúmer sem verið var að greiða. |
| Gjalddagi | Gjalddagi kröfu sem verið var að greiða. |
| Afstemming ID | Þegar bankahreyfing í Dynamics 365 Business Central hefur verið jöfnuð við bankahreyfingu úr banka fyllir kerfið sjálfkrafa í þennan reit með afstemming ID. Glugginn sýnir sjálfgefna afmörkun tóma fyrir afstemming ID svo notandi sjái ekki jafnaðar færslur. |