Skip to content

Athuga og úthluta dreifisvæði (Staðfesting móttakenda)

Með aðgerðinni Athuga og úthluta dreifisvæði á Viðskiptamannalista undir Heim er hægt að sannreyna hvort viðskiptavinir geti tekið á móti rafrænum skjölum í gegnum Unimaze, og úthluta eða fjarlægja dreifisvæði beint út frá niðurstöðunum.

Þessi aðgerð er aðeins tiltæk þegar til er dreifisvæði með stuðning við staðfestingu móttakenda (t.d. Unimaze dreifisvæði með Skjalainnihald (REST) eða JSON-lýsigögn (REST) sendingarham).

Athugið

Notast er við eitt og sama dreifisvæðið til að sannreyna viðskiptavini. Ekki er tekið tillit til einstaka dreifisvæðisstillinga viðskiptamanna í athuguninni sjálfri.

Vinnuflæði

1. Ræsa athugun

Í gegnum viðskiptamannalista

  1. Opnaðu Viðskiptamannalista.
  2. Smelltu á Athuga og úthluta dreifisvæði í aðgerðastiku undir Heim.
  3. Ef til er fleiri en eitt dreifisvæði með stuðning við staðfestingu móttakenda opnast val á dreifisvæði. Veldu viðeigandi dreifisvæði.

Í gegnum leitina

Hægt er að opna síðuna Staðfesting eDoc viðtakanda beint úr BC leitinni (leit: edoc verify eða staðfesting eDoc viðtakanda).

2. Túlka niðurstöður

Niðurstöðusíðan sýnir hvern viðskiptavin með eftirfarandi upplýsingar:

Dálkur Lýsing
Viðskiptavinur Kóði og nafn viðskiptavinarins.
Stuðningsstig Niðurstaða staðfestingar. Sjá gildi hér að neðan.
Varatölvupóstfang Varatölvupóstfang viðskiptavinarins (hægt að breyta beint í listanum). Krafist þegar dreifisvæðið notar JSON-lýsigögn (REST).
Dreifisvæði Núverandi dreifisvæðisúthlutun viðskiptavinarins.

Stuðningsstig

Gildi Merking
Fullur Viðskiptavinurinn getur tekið við öllum skjalagerðum: reikningi, kreditreikningi og pöntun.
Fullur (vantar tölvupóst) Fullur stuðningur en varatölvupóstfang vantar — krafist af þessu dreifisvæði.
Að hluta Viðskiptavinurinn getur tekið við að minnsta kosti einni skjalagerð en ekki öllum.
Að hluta (vantar tölvupóst) Stuðningur að hluta en varatölvupóstfang vantar — krafist af þessu dreifisvæði.
Aðeins tölvupóstur Viðskiptavinurinn styður ekki rafræn skjöl í gegnum Unimaze en Unimaze mun senda skjölin áfram í tölvupósti.
Aðeins tölvupóstur (vantar) Sama og að ofan en varatölvupóstfang sem Unimaze á að nota vantar.
Ekkert Viðskiptavinurinn getur ekki tekið við rafrænum skjölum og getur heldur ekki fengið þau í tölvupósti.

Efst á síðunni birtast samantektartölur, þ.m.t. hvort dreifisvæðið krefst varatölvupóstfangs og hvernig staðan er (t.d. „X viðskiptavini vantar varatölvupóstfang").

StadfestingVidtakandaSida

3. Úthluta eða fjarlægja dreifisvæði

Eftir að niðurstöður hafa verið skoðaðar:

  • Dreifisvæði/Úthluta dreifisvæði: Smelltu á Úthluta dreifisvæði til að setja valið dreifisvæði á þá viðskiptavini sem eru innan síunnar (sýnilegir í listanum). Kerfið biður um staðfestingu.
  • Dreifisvæði/Úthluta á valda: Smelltu á Úthluta á valda til að setja valið dreifisvæði á þá viðskiptavini sem eru valdir í síðunni (blálitaðir). Kerfið biður um staðfestingu.
  • Dreifisvæði/Fjarlægja dreifisvæði: Smelltu á Fjarlægja dreifisvæði til að fjarlægja dreifisvæðið af viðskiptamönnum innan síunnar (sýnilegir viðskiptamenn í listanum) eða völdum viðskiptavinum. Valmynd opnast þegar ýtt er á aðgerðina um hvort á að gilda. Ef viðskiptavinir geta tekið við skjölum biður kerfið um staðfestingu áður en dreifisvæðið er fjarlægt.

Varatölvupóstfang og JSON-lýsigögn sendingar

Þegar dreifisvæðið notar JSON-lýsigögn (REST) sendingarhám þarf hvert viðskiptamaður sem fengi send skjöl í gegnum það dreifisvæði að hafa gilt tölvupóstfang — annað hvort í Varatölvupóstfang reitnum eða í stöðluðum Tölvupóstfang reit á viðskiptamannaspjaldinu.

Niðurstöðusíðan sýnir yfirlit yfir þá viðskiptavini sem vantar tölvupóstfang og hægt er að bæta þeim við beint á síðunni. Sjá JSON-lýsigögn sendingar fyrir frekari upplýsingar.

Breyta dreifisvæði

Hægt er að smella á dreifisvæðisgildið til að breyta vali á dreifisvæði fyrir athugunina.