Staða samþykktabeiðna
Síðan sýnir yfirlit yfir öll skjöl sem hafa verið send til samþykktar. Hér er hægt að sjá stöðu samþykkta, sjá hver er næstur til að samþykkja og senda tilkynningar á samþykktir sem beðið er eftir.

Upplýsingar
| Heiti | Lýsing |
|---|---|
| Skjalanúmer | Númer innkaupaskjalsins sem bíður samþykktar. |
| Tegund skjals | Tegund skjals: Reikningur, kreditreikningur eða pöntun. |
| Nafn lánardrottins | Nafn lánardrottins á innkaupaskjalinu. |
| Bókunarlýsing | Bókunarlýsing innkaupaskjalsins. |
| Upphæð (ISK) | Upphæð í staðbundnum gjaldmiðli. |
| Núverandi samþykkjandi | Sá sem næst þarf að samþykkja skjalið. |
| Staða | Staða samþykktarinnar. Litakóðuð: samþykkt (græn), hafnað (rauð). |
| Sendandi | Sá sem sendi samþykktarbeiðnina. |
| Sent til samþykktar | Hvenær samþykktarbeiðnin var send. |
| Lokadagur | Lokadagur samþykktarinnar. Birtist rauður ef útrunninn. |
| Bókunardagsetning | Bókunardagsetning innkaupaskjalsins. |
| Samþykktarhópur | Samþykktarhópurinn sem úthlutaður er skjalinu. |
Upplýsingakassi - Samþykkjendur
Hægra megin á síðunni sést upplýsingakassi sem sýnir alla samþykkjendur fyrir valið skjal.

| Heiti | Lýsing |
|---|---|
| Samþykkjandi | Notendanafn samþykkjanda. |
| Staða | Staða samþykktarinnar hjá viðkomandi samþykkjanda (litakóðuð). |
| Dagsetning | Hvenær samþykkjandi brást við. Sýnir dagsetningu athugasemdar eða samþykktar/höfnunar. |
| Athugasemd | Nýjasta athugasemd frá samþykkjanda. |
Aðgerðir
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Senda tilkynningu | Sendir tölvupóststilkynningu á alla samþykkjendur valins skjals sem eru með opna samþykkt. |
| Opna skjal | Opnar skjalið. |
| Opnar beiðnir | Síar listann til að sýna aðeins skjöl með opnar samþykktir. |
| Samþykktar beiðnir | Síar listann til að sýna skjöl sem hafa verið samþykkt. |
| Hafnaðar beiðnir | Síar listann til að sýna skjöl sem hafa verið hafnað. |
| Allar beiðnir | Sýnir öll skjöl. |