Kvittanir
Uppsetning og auðkenning

Opnið RdN Afstemming og finnið Kreditkort.
Til að sækja færslur frá Arion eða Landsbankanum þarf að setja inn auðkennislykil. Auðkennislykill er fyrir allt fyrirtækið en ekki einstakling og því þarf einungis að setja hann inn einu sinni.

| Banki | Lýsing |
|---|---|
| Arion | Hafið samband við Rue de Net fyrir lykil. |
| Landsbanki | Hægt er að fá lykil í netbanka eða með því að hafa samband við Landsbankann. |
| Íslandsbanki | Opnið síðu Þínir RdN Bankanotendur og veljið skrá inn með rafrænum skilríkjum. |
Sækja kreditkortaviðhengi
Haka við Sækja kreditkortaviðhengi - Ef þetta er virkt sækir kerfið viðhengi sjálfkrafa við afstemmingu og geymir. Öll viðhengi má sjá á síðu RdN Kreditkortaviðhengi.
Við afstemmingu birtast viðhengi færslu til hliðar í Upplýsingarreit
Ath: Vegna stærðar viðhengja taka færslur lengri tíma að hlaðast inn frá banka.
Setja upp varpanir

Vörpun tengir nafn söluaðila (sem kemur frá banka) við lánardrottin í Business Central.
Á síðunni RdN Afstemming er hægt að velja afstemmingarfærslu og smella á aðgerðina Kreditkortavörpun. Ef vörpun er ekki til fyrir viðkomandi söluaðila stofnar kerfið hana sjálfkrafa og opnar til að fylla út.
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Auðkenni söluaðila | Nafn tengds aðila úr bankafærslu (fyllt sjálfkrafa). |
| Lánardrottinsnr. | Lánardrottinn í Business Central sem á að tengja við þennan söluaðila. |
| Stofna innkaupareikning | Haki sem leyfir sjálfvirka stofnun innkaupareiknings. |
Stofna innkaupareikning
Til að stofna innkaupareikninga má smella á aðgerðina Stofna innkaupareikning. Kerfið fer þá í gegnum allar merktar línur og stofnar innkaupareikninga sjálfvirkt.
- Ef vörpun vantar fyrir söluaðila spyr kerfið hvort það eigi að stofna hana.
- Ef svipaður reikningur er þegar til (sami lánardrottinn, svipuð upphæð, ±3 dagar) spyr kerfið hvort það eigi að nota hann.
- Kvittanir sem sóttar voru frá banka eru sjálfkrafa festar við innkaupareikninginn sem viðhengi.
- Eftir stofnun birtist reikningsnúmerið í dálknum Innkaupareikningsnr. á afstemmingarfærslunni.