Vala AI
Vala er gervigreindaraðstoðarmaður frá Rue de Net sem býr inni í Microsoft Dynamics 365 Business Central. Þú spyrð Völu á venjulegu máli, til dæmis „Hverjir eru 10 stærstu viðskiptavinir mínir eftir tekjum?“, og Vala flettir upp í gögnunum þínum og svarar með samantekt, töflum og tenglum beint á færslurnar í Business Central.
Hvað gerir Vala?
Svarar spurningum um gögnin þín
Vala les gögn úr Business Central, t.d. viðskiptamenn, lánardrottna, vörur, sölu- og innkaupaskjöl og færslur, og tekur saman svar. Hún veit hvaða viðbætur eru uppsettar í kerfinu þínu og lagar sig að þeim.
Les eingöngu – breytir engu
Vala getur aðeins lesið gögn. Hún bókar hvorki, stofnar, breytir né eyðir færslum. Hún les gögnin í þínu nafni og sér því aðeins það sem þú hefur heimild til að sjá í Business Central.
Tenglar beint á færslur
Svör Völu innihalda tengla á færslurnar sem hún vísar í. Smelltu á tengil til að opna viðkomandi spjald eða síðu í Business Central.
Vistuð samtöl og fyrirspurnir
Samtölin þín eru vistuð svo þú getur haldið áfram síðar. Fyrirspurnir sem þú notar oft getur þú vistað undir MÍNAR FYRIRSPURNIR.
Aðstoð ráðgjafa
Ef Vala leysir ekki málið getur þú óskað eftir aðstoð ráðgjafa hjá Rue de Net beint úr samtalinu. Vala býr til samantekt á samtalinu sem fylgir beiðninni.
Helstu kostir
- Fljótleg svör án þess að byggja skýrslur eða síur
- Engin hætta á að gögnum sé breytt – Vala les eingöngu
- Virðir heimildir hvers notanda í Business Central
- Beinn aðgangur að aðstoð ráðgjafa þegar á þarf að halda
Efnisyfirlit
- Uppsetning Völu – fyrir kerfisstjóra
- Spjallað við Völu – dagleg notkun
- Aðstoð ráðgjafa og ábendingar