Launaliðir
Hér er um að ræða listi yfir alla launaliðir í launakerfinu.
Hér er listi yfir allar gerðir af launaliðum, frádráttarliðum, sköttum ofl. Hér eru tengingar við bókhaldslykla ofl.
Listinn sýnir alla liði og helstu rofa. Hægt er að stofna nýjan lið og breyta með stöðluðu hnöppunum; Nýtt og Breyta.
Launaliðir 100 – 899 eru fráteknir fyrir staðlaða kerfið sem auðveldar uppfærslur. 900 – 999 eru hugsaðir fyrir sérhæfða launaliði hjá hverju fyrirtæki.

| Atriði | Lýsing |
|---|---|
| Kóti | Kóti launaliðs. Launaliðir 000 – 899 eru fráteknir fyrir kerfið. Fyrirtæki mega stofna nýja launaliði að þörfum á bilinu 900-999. |
| Lýsing | Lýsing launaliðs. |
| Tímaskráning | Ef hakað er í reitinn þá tilheyrir launaliðurinn tímaskráningu og er notaður í tímaskráningarkerfi. |
| Reikna staðfr. afslátt | Ef hakað er í reitinn mynda fjárhæðir í þessum launalið stofn til útreiknings staðgreiðsluafsláttar. |
| Reikna tryggingagjald | Ef hakað er í reitinn mynda fjárhæðir í þessum launalið stofn til útreiknings staðgreiðsluskatts. |
| Öfug fornmerki á launaseðill | Ef hakað er í reitinn þá er öfugt formerki sett á upphæðir þegar launaseðill er prentaður. |
| Birta magn á launaseðill | Ef hakað er í reitinn þá á að birta einingu / fjölda á launaseðli. |
| Reikna lífeyrissj. | Ef hakað er í reitinn mynda fjárhæðir í þessum launalið stofn til útreiknings á iðgjöldum til lífeyrissjóða. |
| Tegund lífeyrissjóðs | Tegunda merking fyrir lífeyrissjóð, tengist rafrænum skilum til lífeyrissjóðs. |
| Reikna félagsgjöld | Ef hakað er í reitinn þá reiknast félagsgjald af þessum launalið. |
| Bæta við launaseðill handvirkt | Ef hakað er í reitinn er þá leyfilegt að bæta þessum launalið við launaseðil handvirkt. |
| Sleppa fjárhagsbókun | Ef hakað er í reitinn á þá ekki að bóka þennan launalið í fjárhag (varúð!). |
| Tegund orlofs | Val á milli Dagvinna eða Yfirvinna. |
| Sækja viðskiptamannastöðu | Ef hakað er í reitinn þá á launaliður að sækja stöðu viðskiptareiknings. |
| Sleppa á launaseðli | Ef hakað er í reitinn þá birtist launaliður ekki á launaseðli. |
| Birta á skýrslu | Ef hakað er í reitinn þá birtist samtölu launaliðs á launaseðli, sundurliðun launa árs. |
| Afrita launalið | Þegar nýr launaliður er stofnaður/afritaður þarf að passa að nr. á launamiða sé tilgreint þar sem sá reitur stýrir hvernig skil til skattsins um áramót séu háttuð. |
| Færslur | Opnar launafærslur fyrir þennan launalið. Sjá nánari lýsingu hér. |
| Launalínur starfsmanna | Opnar launalínur starfsmanna fyrir þennan launalið. Sjá nánari lýsingu hér. |