Hoppa yfir í efnið

Uppsetning Völu

Þessi síða er ætluð kerfisstjórum. Hún lýsir því sem þarf að gera áður en notendur geta byrjað að nota Völu og hvernig síðan Uppsetning Völu er notuð.

Uppsetning

Forkröfur

  • Rue de Net þarf að virkja Völu fyrir Microsoft 365 Tenant fyrirtækisins. Ef það hefur ekki verið gert birtast skilaboðin „Rue de Net hefur ekki enn virkjað Völu í Microsoft 365 Tenant-inum þínum. Hafðu samband við Rue de Net.“
  • Viðbótin Rue de Net Vala AI þarf að vera uppsett í Business Central umhverfinu. Tengistillingar (API Base URL, API Scope, MCP Scope, Entra Client ID og Client Secret) fyllast sjálfkrafa inn við uppsetningu viðbótarinnar.
  • Kerfisstjóri í Microsoft 365 þarf að samþykkja notkun Völu fyrir hönd fyrirtækisins (sjá kaflann Samþykki í Microsoft 365 hér að neðan).

Heimildir

Úthlutaðu notendum einu af eftirfarandi heimildasettum:

Heimildasett Lýsing
Vala UI - Notandi Fyrir almenna notendur. Veitir aðgang að spjallinu, samtölum og vistuðum fyrirspurnum.
Vala UI - Kerfisstjóri Fyrir kerfisstjóra. Veitir sama aðgang og notandi auk aðgangs að síðunni Uppsetning Völu.

Aðgerðin Uppsetning í notandavalmynd Völu birtist aðeins notendum sem hafa heimildasettið Vala UI - Kerfisstjóri.

Vala sér aðeins það sem notandinn sér

Vala les gögn í nafni innskráða notandans. Ef notandi hefur ekki heimild til að skoða tiltekin gögn í Business Central getur Vala ekki heldur lesið þau fyrir hann.

Samþykki í Microsoft 365

Áður en almennir notendur geta skráð sig inn þarf kerfisstjóri í Microsoft 365 að samþykkja notkun Völu fyrir fyrirtækið. Það er gert á annan af eftirfarandi vegu:

  • Kerfisstjórinn opnar Völu, skráir sig inn og samþykkir aðgang fyrir hönd fyrirtækisins þegar Microsoft biður um það.
  • Eða: kerfisstjórinn opnar Uppsetning Völu og velur aðgerðina Samþykkja fyrir M365 Tenant. Þá opnast samþykkissíða Microsoft Entra í vafra.

Ef samþykki vantar fá notendur skilaboð um að kerfisstjóri þurfi að samþykkja aðgang áður en þeir geta skráð sig inn.

Fyrsta innskráning

  1. Leitaðu að Vala í Business Central og opnaðu síðuna.
  2. Veldu Skrá inn og byrja og skráðu þig inn með Microsoft 365 aðganginum þínum.
  3. Vala sækir lista yfir umboðsmenn og undirbýr lýsingu á kerfinu (hvaða viðbætur eru uppsettar). Á meðan birtast skilaboðin „Sæki umboðsmenn...“ og „Frumstilli umhverfið...“.
  4. Þegar því er lokið er Vala tilbúin til notkunar.

Ef uppsettum viðbótum er breytt síðar uppfærir Vala lýsinguna sjálfkrafa. Þá birtast skilaboðin „Er að uppfæra Völu í samræmi við BC umhverfið þitt“.

Síðan Uppsetning Völu

Opnaðu Völu, smelltu á notandahnappinn efst í horninu og veldu Uppsetning.

Tenging Chat API

Reitur Lýsing
API Base URL Grunnslóð Vala AI þjónustunnar. Fyllt út sjálfkrafa.
API Scope Heimild (scope) sem beðið er um fyrir þjónustuna. Fyllt út sjálfkrafa.
MCP Scope Heimild (scope) fyrir MCP þjónustuna. Fyllt út sjálfkrafa.
Entra Client ID Auðkenni forritsskráningar í Microsoft Entra sem notað er við innskráningu. Fyllt út sjálfkrafa.
Client Secret Sýnir hvort Client Secret hafi verið sett (Sett / Ekki sett). Ekki er hægt að slá það inn beint í reitinn.
Kerfi Sýnir hvort lýsing kerfisins sé tilbúin (Tilbúin / Ekki tilbúin). Spjallglugginn er læstur þar til lýsingin er tilbúin.

Spjallbirting

Reitur Lýsing
Auðgað viðmót Þegar kveikt er sýnir spjallglugginn niðurstöður tóla, auðlindanotkun fyrir hvert svar og niðurhalsvalmynd á niðurhalstakkanum. Þegar slökkt er (sjálfgefið) er aðeins svartexti Völu sýndur og niðurhalstakkinn vistar Markdown-skrá beint.

Aðgerðir

Aðgerð Lýsing
Setja nýtt Client Secret Opnar glugga þar sem Client Secret er límt inn. Það er geymt dulkóðað og aldrei sýnt aftur. Vala staðfestir svo tenginguna, sækir umboðsmenn og undirbýr lýsingu kerfisins.
Sækja nýjustu stillingar Skiptir út tengistillingum og Client Secret fyrir nýjustu gildin frá Rue de Net. Ef það mistekst eru núverandi stillingar látnar halda sér.
Hreinsa Kerfislýsingu Hreinsar vistaða lýsingu kerfisins. Hún er búin til aftur næst þegar Vala er opnuð.
Samþykkja fyrir M365 Tenant Opnar samþykkissíðu Microsoft Entra svo kerfisstjóri geti samþykkt notkun Völu fyrir allt fyrirtækið.
Endursetja Hreinsar öll gögn Völu: skráir út, eyðir umboðsmönnum, lýsingu kerfisins, öllum samtölum og vistuðum fyrirspurnum. Tengistillingar halda sér.
M365 Auth Tóken Sýnir vistuð innskráningartóken núverandi notanda.
Fulltrúar Sýnir lista yfir umboðsmenn (agents) sem eru í boði, ásamt því hver er sjálfgefinn.

Endursetja

Aðgerðin Endursetja eyðir öllum samtölum og vistuðum fyrirspurnum allra notenda. Ekki er hægt að afturkalla hana.

Úrræðaleit

Skilaboð Hvað á að gera
Vala er ekki enn uppsett. Staða: ... Opnaðu Uppsetning Völu og athugaðu hvaða stillingu vantar. Prófaðu Sækja nýjustu stillingar.
Til að nota Völu þarf notkunin fyrst að vera samþykkt inn í Microsoft 365... Kerfisstjóri í Microsoft 365 þarf að veita samþykki, sjá kaflann Samþykki í Microsoft 365 hér að ofan.
Rue de Net hefur ekki enn virkjað Völu í Microsoft 365 Tenant-inum þínum. Hafðu samband við Rue de Net.
Innskráning tókst en ekki tókst að undirbúa aðstoðarmanninn: ... Reyndu aftur. Ef villan heldur áfram, opnaðu Uppsetning Völu, veldu Hreinsa Kerfislýsingu og opnaðu svo Völu aftur. Lýsingin er þá búin til á ný.