Uppsetning rafrænna reikninga
Áður en kerfið er tekið í notkun þarf að fylla út uppsetningu rafrænna reikninga. Við mælum með að nýta sér nýtt uppsetningarkerfi fyrir rafræna reikninga. Sjá Rafrænir reikningar uppsetning með aðstoð:

| Reitur / Stilling | Lýsing |
|---|---|
| Fjárhagslykill afrúnnunar | Fjárhagslykill sem verður notaður til að bóka auramismun á rafrænum reikningum. |
| eSkjal sjálfgefinn staðall | Sjálfgefinn staðall til að senda rafræna reikninga úr kerfinu. |
| eSkjal sjálfgefin tegund | Sjálfgefin tegund rafrænna reikninga til að senda úr kerfinu. |
| Kennitölureitur lánardrottna | Hvaða reitur í töflu "Lánardrottnar" inniheldur kennitöluna. |
| Kennitölureitur viðskiptamanna | Hvaða reitur í töflu "Viðskiptamenn" inniheldur kennitöluna. |
| Sjálfg. bókunartexti | Sjálfgefinn bókunartexti úr rafrænum reikningum. Nánar |
| BII Staðall | Hvaða staðal á að nota fyrir BII reikninga og kreditreikninga (TS136 eða TS236). |
| Mesta afrúnnunarupphæð | Mesta afrúnunarupphæð milli haus og línu sem kerfið samþykkir á rafrænum reikningi. |
| Leita að villum í vinnubók | Ef hakað er við, leitar kerfið að villum í vinnuskjali þegar það er opnað. |
| Útibú | Bankanúmer bankareiknings fyrirtækisins. |
| Höfuðbók | Höfuðbók bankareiknings fyrirtækisins. |
| Reikningsnúmer | Reikningsnúmer bankareiknings fyrirtækisins. |
| Tengja viðhengi | Ef hakað er við, tengjast viðhengi í rafrænum reikningi við NAV skjal. |
| Úthlutun kostnaðarauka | Stilling á úthlutun kostnaðaraukareikninga ("Jafnt", "Eftir Upphæð", "Eftir þyngd", "Eftir stærð"). |
| Fleiri aukastafir í BII | Ef hakað er við eru 5 aukastafir í BII skjali, annars 2. |
| Nr. röð reikninga | Númeraröð innkaupareikninga ef ekki er notuð röð úr innkaupagrunni. |
| Nr. röð bókaða reikninga | Númeraröð bókaðra innkaupareikninga ef ekki er notuð röð úr innkaupagrunni. |
| Nr. röð kreditreikninga | Númeraröð innkaupakreditreikninga ef ekki er notuð röð úr innkaupagrunni. |
| Nr. röð bókaðra kreditreikninga | Númeraröð bókaðra innkaupakreditreikninga ef ekki er notuð röð úr innkaupagrunni. |
| Nota heimilisf. frá rafr. skjali | Notar heimilisfang úr rafrænu skjali. |
| Uppruni lýsingar úr eDoc línu | Velur hvaða gildi úr innkominni eDoc línu verður lýsing á innkaupalínu. Sjá Uppruni lýsingar úr eDoc línu. |
| Bæta við afhendingarstað á kreditreikninga | Ef hakað er við bætist afhendingarstaður við kreditreikninga. |
| Sleppa athugasemd um uppruna við stofnun BC skjals | Ef hakað er við kemur ekki athugasemd um uppruna á BC skjöl. |
| Nota Unimaze Approvals bókunarlýsingar | Virkjar stuðning við Unimaze Approvals bókunarupplýsingar. Nánar |
| Nota ytri víddir | Virkjar innlestur á ytri víddum byggðum á Peppol staðli í BII skeytum. Nánar |
| Stofna lánardrottin | Ef hakað er við stofnast lánardrottinn sjálfkrafa við innlestur óþekkts lánardrottins. |
| Sjálfgefið sniðmát fyrir lánardrottin | Sniðmát sem notað er þegar lánardrottinn er myndaður sjálfkrafa. |
| Sækja ytri viðhengi frá Unimaze | Ef hakað er við verða ytri viðhengi (þ.m.t. Unimaze Go viðhengi) sótt í Unimaze þjónustuna með rafrænum reikningum og hengd við þá í BC. Forsenda er að dreifisvæðið sé af gerð Unimaze og notist við REST en ekki SOAP þjónustu. |
| Senda tölvupósta vegna villna | Ef hakað er við sendir kerfið tölvupósta til villuviðtakanda þegar villa kemur upp. |
| Kenni villunetfangs | Póstfang sem kerfið notar til að senda tölvupósta frá vegna villna. |
| Email fyrir viðtakanda villuskilaboða | Póstfang sem kerfið notar til að senda villuskilaboð til. |
| Tengir við villunetfang | Tegund tengis við tölvupóst sendanda. |
| Sleppa athugun á móttakanda | Ef hakað er við sleppir kerfið að athuga misræmi milli viðtakanda reiknings og kennitölu í stofngögnum. |
| Sleppa VSK athugun í vörpun | Ef hakað er við sleppir kerfið að athuga misræmi milli VSK á rafrænum reikningi og vörpunar. |
| Sleppa umbreytingu með villustöðu | Ef hakað er við reynir kerfið aðeins að umbreyta skjölum með stöðuna Lesið eða Athugað OK sem sparar keyrslutíma. Á móti kemur að kerfið uppfærir ekki villurnar á skjölunum sem það sleppir sjálfvirkt en það er hægt að gera handvirkt í staðinn með Athuga skjöl aðgerðinni í Vinnuskjali rafrænna reikninga. |
| Tíðni endursendinga | Tímabil milli endursendinga ef reikningur lendir á villu. |
| Tengja við LS Central | Gefur til kynna að kerfið sé tengt við LS Retail. |
| X400 pósthólf | X400 pósthólf fyrir EDI sendingar. |
| EDI dreifingaraðili | EDI dreifingaraðili fyrir EDI sendingar. |
| Nota vörustrikam. úr eDocs | Ef hakað er við sendir kerfið strikamerki í stað vörunúmers í rafrænum reikningum (gildir fyrir EDI). |
| Nota pöntunaraðsetur | Ef hakað er við sendir kerfið EAN númer aðsetursins á innkaupapöntun, annars EAN númer lánardrottins. |
Uppruni lýsingar úr eDoc línu
Stillingin stýrir lýsingu á innkaupalínum sem myndast þegar innkomnu eDoc skjali er breytt í innkaupareikning eða innkaupakreditreikning. Hún gildir fyrir alla lánardrottna nema hún sé yfirskrifuð á lánardrottnaspjaldi.
| Gildi | Notkun |
|---|---|
| Sjálfgefið | Notar lýsingu úr innkominni eDoc línu. Ef hún er tóm er nafn notað. Á lánardrottnaspjaldi merkir gildið að stillingin í Uppsetningu rafrænna reikninga sé notuð. |
| Nafn | Notar nafn úr innkominni eDoc línu. |
| Lýsing | Notar lýsingu úr innkominni eDoc línu. |
| Nafn + Lýsing | Setur nafn og lýsingu úr innkominni eDoc línu saman. |
| Lýsing + Nafn | Setur lýsingu og nafn úr innkominni eDoc línu saman. |
| Lýsing frá vörpun | Heldur lýsingunni sem fæst úr vörpuninni, til dæmis lýsingu fjárhagslykils. |
Ef valið gildi er ekki tiltækt í innkomnu línunni notar kerfið fyrst lýsingu, síðan nafn og að lokum bókunartexta línunnar. Fyrir samsettu gildin þarf bæði nafn og lýsingu að vera til staðar til að þau séu sameinuð.
Geymsla
| Reitur / Stilling | Lýsing |
|---|---|
| Skjalageymsluveita | Velur hvar viðhengi og upprunaleg skjöl eru geymd. Sjálfgefið er „Gagnagrunnur“ en einnig er hægt að velja „Azure Blob Storage“. Nánar |
| Geymsla viðhengja | Stilling á hvernig viðhengi eru geymd þegar rafræn skjöl koma inn (Geyma öll skjöl eða eyða viðhengjum). |
| Varðveislutími rafrænna skjala | Stilling á varðveislutíma gagna í dögum áður en hreinsunarverk eyðir þeim. |
| Staða hreinsunarverks | Sýnir hvort hreinsunarverk sé rétt sett upp (sést ef Virkja hreinsunarverk er valið). |
| Stillingar hreinsunarverks | Stillingar fyrir hreinsunarverk sem eyðir óþarfa gögnum. |
| Geymsla rafrænna skjala á útleið | Tilgreinir hvort hreinsunarverk eigi að eyða gögnum á bak við send skjöl á útleið. |
| Geymsla rafrænna skjala á innleið | Tilgreinir hvort hreinsunarverk eigi að eyða gögnum á bak við bókuð skjöl á innleið. |
| Varðveislutími rafrænna skjala (í dögum) | Fjöldi daga sem gögn eru geymd áður en hreinsunarverk eyðir þeim. 0 = aldrei eytt. |
Aðgerðir
| Aðgerð / Lýsing | Útskýring |
|---|---|
| Stofna varpanir | Stofnar varpanir fyrir rafræn skjöl. Nánar |
| EAN kenni birgðastöðvar | Opnar lista yfir EAN kenni birgðastöðva. Nánar |
| Varpanir | Opnar lista yfir allar varpanir í kerfinu. Nánar |
| Uppsetning bókunarlýsingar | Opnar lista bókunartextastillinga. Nánar |
| Stillingar á rafrænum reikningum viðskiptavinar | Opnar stillingar á rafrænum reikningum viðskiptavinar. Nánar |
| Stillingar rafrænna skjala lánardrottins | Opnar stillingar á rafrænum reikningum lánardrottins. Nánar |
Stofngögn
Athuga að það þarf að skrá EAN kennitölu fyrir sendingar í stofngögn. Sjá nánari lýsingu hér.