Umhverfi og fyrirtæki
Samþykktavefurinn getur sótt gögn úr fleiri en einu Business Central fyrirtæki. Valið fer fram í neðstu stikunni.

Þrjú lög
| Lag | Lýsing |
|---|---|
| Microsoft umhverfi (tenant) | Microsoft Entra ID umhverfi fyrirtækisins. Flestir notendur hafa aðeins eitt. |
| Umhverfi (environment) | Business Central umhverfi, t.d. Production eða Sandbox. |
| Fyrirtæki (company) | Fyrirtækið innan umhverfisins, t.d. Rue de Net ehf. |
Skipta um fyrirtæki
- Smelltu á fyrirtækjahnappinn í neðstu stikunni.
- Listinn sem opnast er flokkaður eftir umhverfi. Fyrirsögnin (t.d. PRODUCTION) sýnir umhverfið og fyrir neðan hana eru fyrirtækin í því umhverfi.
- Smelltu á fyrirtækið sem þú vilt vinna í.
Listinn hreinsast strax og ný gögn eru sótt fyrir valið fyrirtæki. Valið geymist til næsta skiptis.
Læst þegar reikningur er opinn
Ekki er hægt að skipta um umhverfi eða fyrirtæki á meðan reikningur er opinn. Farðu fyrst til baka í listann.
Skipta um Microsoft umhverfi
Ef þú hefur aðgang að fleiri en einu Microsoft umhverfi birtist val vinstra megin í neðstu stikunni.

Ef aðeins eitt umhverfi er í boði er hnappurinn óvirkur.
Sjá einnig Bæta við Microsoft umhverfi.
Ef ekkert birtist
| Skilaboð | Merking |
|---|---|
| Engin Business Central umhverfi fundust fyrir þennan leigjanda. | Enginn aðgangur að Business Central í þessu Microsoft umhverfi. |
| Fyrirtæki er ekki sett upp fyrir vefsamþykktir | Samþykktakerfi Rue de Net er ekki virkt í þessu fyrirtæki. |
| Aðgangi að Business Central var hafnað… | Notandinn hefur ekki heimildir í Business Central. |
Sjá nánar í Úrræðaleit.