Uppsetning tölvupósts fyrir samþykktakerfi
Samþykktakerfið getur sent tölvupóst þegar samþykktarbeiðni er stofnuð, samþykkt eða hafnað. Einnig er hægt að senda samþykkjanda áminningu handvirkt. Tölvupóstarnir sýna helstu upplýsingar um skjalið og hnapp sem opnar það. Samþykktarbeiðnir og áminningar bjóða upp á að opna samþykktina á samþykktavefnum en samþykktar- og höfnunarpóstar í Business Central.
Frumskilyrði
- Tölvupóstfang þarf að vera skráð fyrir viðtakandann í Notandauppsetning.
- Tölvupóstsreikningur þarf að vera tengdur við aðstæðurnar RdN Tölvupóstur samþykkta.
Tengja tölvupóstsreikning
- Opnið Tölvupóstsreikningar.
- Veljið reikninginn sem á að senda tölvupóst fyrir samþykktakerfið og veljið Fletta > Aðstæður tölvupósts.

- Veljið Úthluta aðstæðum og síðan RdN Tölvupóstur samþykkta.

- Staðfestið að aðstæðurnar séu tengdar við réttan tölvupóstsreikning.

Stilla samþykktartölvupóst
Opnið Uppsetning Samþykktakerfis og stillið eftirfarandi reiti:
| Reitur | Lýsing |
|---|---|
| Tungumál tölvupósts | Veljið Íslenska, Enska eða Stillingar viðtakanda. Síðasti valkosturinn notar tungumál úr Sérstillingu notanda hjá hverjum viðtakanda. |
| Nota eldri vef | Virkið ef tenglar eiga að opna eldri samþykktavefinn. Þá þarf að skrá grunnslóðina í Vefslóð. |
| Nota sérsniðna vefslóð | Virkið ef tenglar eiga að nota aðra slóð en sjálfgefna slóð núverandi samþykktavefs. Skráið slóðina í Sérsniðin vefslóð. |
| Senda tölvupóst við samþykktarbeiðni | Sendir hverjum núverandi samþykkjanda nýja samþykktarbeiðni. |
| Senda tölvupóst við samþykkt | Sendir þeim sem stofnaði beiðnina tilkynningu þegar hún er samþykkt. |
| Senda tölvupóst við höfnun | Sendir þeim sem stofnaði beiðnina tilkynningu þegar henni er hafnað. Höfnunartölvupósturinn sýnir einnig höfnunaraðila og athugasemdir. |
Ef hvorki Nota eldri vef né Nota sérsniðna vefslóð er virkt nota tenglarnir sjálfgefinn samþykktavef.
Tölvupóstur um einstakt skjal sýnir númer skjals, lánardrottin, lýsingu, upphæð og eindaga ásamt hnappi sem opnar skjalið. Safnpóstar og sjálfvirkar áminningar nota sama útlit og tungumálastillingu.
Sjá Senda samþykktarbeiðni fyrir leiðbeiningar um að senda áminningu handvirkt.