Viðhengi á rafrænum skjölum á útleið
Viðhengi sem eru á upprunaskjalinu í BC (t.d. bókuðum sölureikningi) eru afrituð sjálfkrafa yfir á rafræna skjalið þegar það er myndað. Auk þess er hægt að bæta viðhengjum handvirkt við rafrænt skjal á útleið áður en það er sent, og fjarlægja viðhengi sem staðallinn leyfir ekki.
Hvaða skráartegundir má senda fer eftir reitnum BII Staðall í Uppsetning rafrænna reikninga. Sjá nánar hér.
Leyfðar skráartegundir
| BII Staðall | Leyfðar skráartegundir |
|---|---|
| TS236 | PDF, PNG, JPEG, CSV, XLSX og ODS. |
| TS136 | PDF, JPG/JPEG, PNG, TIF/TIFF, GIF, DOC, XLS, XLSX, PPT, XML, HTML, TXT, CSV og ODS. |
TS 236 (PEPPOL BIS Billing 3.0) leyfir aðeins tegundirnar í töflunni. Aðrar tegundir, t.d. HTML, XML, DOC, XLS og GIF, eru ekki leyfðar.
TS 136 býður upp á fleiri tegundir. Nokkrar nýrri tegundir, t.d. XLSX og ODS, þekkir staðallinn ekki með nafni. Þær eru því sendar sem almenn skrá (application/octet-stream) en skráarheitið heldur réttri endingu, svo móttakandi sér hvers konar skrá er um að ræða.
Viðhengi á upprunaskjalinu sem eru ekki á listanum, t.d. DOCX, PPTX, ODT eða BMP, eru ekki afrituð yfir á rafræna skjalið.
Bæta við viðhengi
Á við rafræn skjöl á útleið sem hafa ekki verið send, þ.e. sölureikninga, sölukreditreikninga, pantanir, vöruskilapantanir, þjónustureikninga og þjónustukreditreikninga.
- Opna rafræna skjalið.
- Í upplýsingakassanum Viðhengi er valið Bæta við viðhengi. Ekki er hægt að stofna nýja línu beint í upplýsingakassanum.
- Velja skrána sem á að hengja við.
Viðhenginu er bætt við rafræna skjalið og það merkt Bætt við handvirkt.
Kerfið athugar skráartegundina miðað við BII Staðall. Ef tegundin er ekki leyfð birtist villan Skráartegund ekki studd og viðhenginu er ekki bætt við.
Ef rafræna skjalið er á innleið eða hefur stöðuna Sending OK! er aðgerðin óvirk. Ef reynt er að bæta við viðhengi á slíkt skjal birtist villan Ekki er hægt að bæta við viðhengjum.
Viðhengi sem TS 236 leyfir ekki
Þegar BII Staðall er TS236 athugar kerfið viðhengi rafræna skjalsins þegar XML skjalið er myndað, t.d. við sendingu. Ef viðhengi er af tegund sem TS 236 leyfir ekki birtist villan Tegund viðhengis ekki leyfð í TS 236 og skjalið er ekki sent. Viðhengi sem eru eingöngu tenglar (URL) eru ekki athuguð, þar sem þau eru ekki send sem skrá.
Villan býður upp á tvær aðgerðir:
| Aðgerð | Útskýring |
|---|---|
| Fjarlægja viðhengi | Eyðir viðhenginu sem villan á við úr rafræna skjalinu svo hægt sé að senda það. |
| Opna rafrænt skjal | Opnar spjald rafræna skjalsins. |
Einnig er hægt að:
- Eyða viðhenginu í upplýsingakassanum Viðhengi á rafræna skjalinu og, ef þarf, bæta við nýju viðhengi af leyfðri tegund með Bæta við viðhengi.
- Lagfæra viðhengin á upprunaskjalinu og keyra Endurgera á rafræna skjalinu.
Endurgera og handvirk viðhengi
Endurgera byggir viðhengi rafræna skjalsins upp á nýtt úr upprunaskjalinu. Viðhengi sem var bætt við handvirkt eru því fjarlægð.
Ef eitthvert af rafrænu skjölunum sem á að endurgera er með viðhengi sem var bætt við handvirkt og hefur ekki verið sent, biður kerfið um staðfestingu og birtir númer þeirra skjala. Ef hætt er við er ekkert skjal endurgert.