Hoppa yfir í efnið

Vinnsluraðarfærsla

Hægt er að setja upp vinnsluröð þannig að inn- og útlestur rafrænna reikninga verði sjálfvirkur.

Ný vinnsluraðarfærsla er gerð fyrir codeunit og hlutakenni keyrslu er númer 10041560, fyrir Appsource útgáfu.

alt text

Vinnsluröðin framkvæmir þá reglulega útlestur, innlestur og skráir skjöl í NAV. Þannig að eingöngu reikningar á villu eiga að verða eftir óloknir í vinnuskjali rafrænna reikninga.

Auk þess þarf að haka í "Sjálfvirk vinnsla á dreifisvæði" svo sjálfvirka keyrslan virki. Sjá nánari lýsingu hér.

Ef vilji er fyrir því að skipta keyrslunni nánar upp eftir er hægt að afmarka virknina með færibreytustreng á vinnsluröðinni. Möguleg gildi eru þá "fetch" ef bara á að sækja skjöl og "send" ef bara á að senda. Einnig getur þessi keyrsla séð um að uppfæra Unimaze stöður skeyta ef Unimaze skeytamiðlun er í notkun. Þá er notast við færibreytu unimazestatus. Hægt er að stilla fleiri en eina breytu í sama verk, t.d. vera með eitt verk sem sækir (fetch) og eitt sem sendir og uppfærir stöður (send;unimazestatus). Semi-komma á milli er óþörf.

alt text