Hoppa yfir í efnið

Unimaze stöðukönnun skeyta

Kerfið styður sjálfvirka stöðukönnun á skeytum sem send eru í gegnum Unimaze. Þegar skeyti er sent í gegnum Sendill vefþjónustu (Unimaze) er auðkenni skeytisins (Message Id) vistað á rafræna skjalinu. Síðan er hægt að sækja stöðu skeytisins hjá Unimaze, annaðhvort sjálfvirkt eða handvirkt.

Stöðugildi

Kerfið sýnir tvenns konar stöðu:

Yfirlitstaða (Unimaze Message Status)

Staða Merking
Delivered Skeyti hefur verið afhent viðtakanda.
Failed Sending mistókst.
In Process Skeyti er í vinnslu hjá Unimaze.
New Skeyti er nýtt og hefur ekki verið unnið.
Parked Skeyti er í bið hjá Unimaze.
Other Annað / óþekkt staða.

Innri staða (Unimaze Internal Status)

Innri staðan gefur nánari upplýsingar um gang vinnslu skeytisins hjá Unimaze (t.d. Pending Delivery, Processing, Retrying, Logged o.fl.).

Sjálfvirk stöðukönnun

Stöðukönnun keyrir sjálfvirkt sem hluti af vinnsluraðarfærslu eDocs (codeunit 10041560), sjá nánar hér. Í hverri keyrslu athugar kerfið stöðu allra skeyta sem:

  • Tilheyra dreifisvæði af gerðinni "Sendill WS" (Unimaze) með sjálfvirka vinnslu virka.
  • Hafa Message Id skráð.
  • Eru ekki í lokastöðu (Delivered eða Failed).

Til að takmarka umfang stöðukönnunar er hægt að setja dagsetningu í reitinn „Unimaze staða frá dags." í Uppsetningu rafrænna reikninga undir Stillingar. Þá athugar kerfið eingöngu skjöl sem send/móttekin voru á eða eftir þeirri dagsetningu.

Stillingar á færibreytustreng

Einnig er hægt að keyra stöðukönnun sérstaklega í gegnum vinnsluröðina með færibreytustrengnum unimazestatus. Þá keyrist eingöngu stöðukönnunin án þess að sækja eða senda skjöl.

Handvirk stöðukönnun

Á spjaldi rafræns skjals má sjá Unimaze stöðu ef auðkenni skeytis er ekki tómt. Þar birtist:

  • Unimaze Status – yfirlitsstaða skeytisins.
  • Unimaze Internal Status – nákvæmari innri staða.
  • Unimaze Status Updated – hvenær staðan var síðast uppfærð.
  • Message Id – auðkenni skeytisins hjá Unimaze.

Hægt er að uppfæra stöðu handvirkt með því að:

  1. Opna spjald rafræns skjals.
  2. Smella á „Uppfæra stöðu..." tengil í Unimaze upplýsingar stöðu hlutanum, eða nota aðgerðina „Uppfæra Unimaze stöðu" á aðgerðaslánni.

Stöðureiturinn er litakóðaður:

  • Grænn – Delivered (afhent).
  • Rauður – Failed (mistókst).
  • Gulur – Önnur stöður í vinnslu.

Forsendur

  • Dreifisvæðið þarf að vera af gerðinni „Sendill WS" og vera Unimaze-tegund (WSType = 1).
  • „Sjálfvirk vinnsla" þarf að vera virk á dreifisvæðinu til að sjálfvirk stöðukönnun nái til þess.