Hoppa yfir í efnið

Viðmótið í hnotskurn

Viðmótið

Viðmótið skiptist í fjögur svæði.

1. Valmyndin til vinstri

Hnappur Lýsing
Samþykktir Listi yfir skjöl sem bíða samþykktar hjá þér. Upphafssíðan.
Bókað Bókuð innkaupaskjöl — uppflettilisti, ekki til samþykktar.
Athugasemdir Allar athugasemdir á skjölum sem tengjast þér.
Leiðbeiningar Opnar þessa handbók í nýjum flipa.
Notendastillingar Opnar stillingaglugga: tungumál og dálkar.
Skráð(ur) inn sem Sýnir nafn og netfang notandans sem er innskráður.
Skipta um notanda Skiptir yfir á annan Microsoft aðgang.
Skrá út Skráir þig út.

2. Efsta stikan

Þar er merki Rue de Net, heitið Samþykktavefur og til hægri flipar til að skipta á milli Spjöld og Tafla.

3. Efnissvæðið

Hér birtist listinn eða reikningurinn sem þú ert að vinna með. Efst í listanum er stika með:

  • Dálkastillingar — velja hvaða dálkar birtast og í hvaða röð.
  • Sýna allar stöður — sýnir líka skjöl sem búið er að afgreiða.
  • Leitarreitur — leitar eftir skjalanúmeri eða lánardrottni.

4. Neðsta stikan

Neðsta stikan

Hluti Lýsing
Microsoft umhverfi Vinstra megin. Sjá Umhverfi og fyrirtæki.
+ Bæta við nýju Microsoft umhverfi.
Umhverfi og fyrirtæki Val á Business Central umhverfi og fyrirtæki.
Lykiltölur Fjórar tölur um stöðuna, sjá að neðan.
Hafna / Samþykkja Aðgerðahnappar fyrir valin skjöl.

Lykiltölurnar

Tákn Heiti Lýsing
Klemmuspjald Í vinnslu Fjöldi skjala sem bíða samþykktar.
Viðvörunarþríhyrningur Yfir gjalddaga Fjöldi opinna skjala sem eru komin fram yfir eindaga.
Klukka Meðaltími vinnslu Meðaltími frá því skjal var sent til samþykktar.
Peningar Heildarupphæð (SGM) Samanlögð upphæð skjalanna í staðbundnum gjaldmiðli.

SGM

SGM stendur fyrir staðbundinn gjaldmiðill. Allar upphæðir í þessari tölu eru umreiknaðar í gjaldmiðil fyrirtækisins svo hægt sé að leggja þær saman.

Litakóðar

Litur Merking
Grænn punktur Skjalið er opið og bíður samþykktar.
Grænt hak Skjalið hefur verið samþykkt.
Rauður kross Skjalinu hefur verið hafnað.
Grár Skjalið hefur verið afturkallað.
Appelsínugulur bakgrunnur og viðvörunarmerki Eindagi er liðinn.