Sjálfvirkni
Sjálfvirknisíðan sýnir og stjórnar vinnsluraðarfærslum sem sjálfvirknivæða SQL Connector gagnaflutning. Til að opna síðuna er hægt að leita að „SQL Connector sjálfvirkni".

Dálkar
| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Lýsing | Lýsing verks (smellt á til að opna staðlað vinnsluraðarfærsluspjald) |
| Tegund samstillingar | Færubreytustrengir sem stýra hegðun keyrslunnar (sjá nánar hér að neðan) |
| Staða | Núverandi staða með litakóðum: Tilbúin (grænt), Í bið (grátt), Í vinnslu (gulbrúnt), Villa (rautt) |
| Endurtekið verk | Hvort þetta er endurtekið verk |
| Mínútur milli keyrslna | Millibið á milli keyrslna |
| Fyrsti upphafstími | Hvenær verkið má fyrst keyra |
| Síðasta tilbúna staða | Hvenær verkið var síðast sett í stöðuna Tilbúið |
| Keyra á mánudögum–sunnudögum | Vikudagahök |
Aðgerðir
Stjórnun
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Nýtt breytingasamstillingarverk | Býr til nýja endurtekna vinnsluraðarfærslu fyrir stigvaxandi samstillingu með 10 mínútna sjálfgefnu millibili. Sjálfgefin tegund samstillingar er PROCESSCHANGES SENDCOMMANDS. Búin til í biðstöðu. |
| Setja sem tilbúið | Virkjar valin verk svo þau verði tekin til keyrslu. Styður fjölval. |
| Setja í bið | Stöðvar valin verk. Styður fjölval. |
| Opna vinnsluraðarfærslu | Opnar staðlað BC vinnsluraðarfærsluspjald til ítarlegri stillinga. |
| Eyða | Eyðir völdum vinnsluraðarfærslum eftir staðfestingu. Ef verk er í vinnslu er það fyrst sett í bið áður en eyðing á sér stað. Styður fjölval. |
Vinnsla
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Keyra núna | Framkvæmir valið verk í forgrunni. |
| Endurnýja | Uppfærir listann til að sýna núverandi stöður. |
Tegund samstillingar (færibreytustrengur)
Dálkurinn Tegund samstillingar (Parameter String á vinnsluraðarfærsluspjaldinu) stýrir því hvaða skref keyrslan framkvæmir. Hægt er að sameina marga strengi, t.d. vera með verk sem inniheldur alla færibreytustrengina eða hluta.
| færibreytustrengur | Lýsing |
|---|---|
PROCESSCHANGES |
Skannar virkar töflur og myndar gagnapakka (INSERT/UPDATE/DELETE) í vinnsluskrána |
SENDCOMMANDS |
Sendir alla gagnapakka í bið til uppstilltra netþjóna |
SKIPCLEANUP |
Sleppir sjálfvirkri hreinsun á gömlum vinnsluskrár- og eyðingaskrárfærslum |
Algeng samsetning
| Samsetning | Notkun |
|---|---|
PROCESSCHANGES SENDCOMMANDS |
Breytingavinnsla og sending í sama verki (sjálfgefið) |
PROCESSCHANGES SENDCOMMANDS SKIPCLEANUP |
Breytingavinnsla og sending í sama verki án hreinsunar |
PROCESSCHANGES |
Einungis vinna breytingar í gagnapakka |
SENDCOMMANDS |
Einungis senda gagnapakka sem þegar bíða |
Hreinsun keyrir sjálfkrafa
Ef SKIPCLEANUP er ekki tilgreint hreinsast gamlar vinnsluskrár- og eyðingaskrárfærslur sjálfkrafa samkvæmt varðveislustillingum netþjóna.
Hvað gerist í keyrslunni
Þegar vinnsluraðarfærsla keyrir gerist eftirfarandi í röð (ef færibreytistrengur inniheldur viðeigandi gildi):
- (PROCESSCHANGES) Allar virkar töflur eru skannaðar eftir breyttum færslum frá síðasta bókamerki
- (PROCESSCHANGES) Gagnaskipanir ytri gagnaþjóns eru myndaðar (INSERT/UPDATE fyrir breytingar, DELETE fyrir eyðingar)
- (PROCESSCHANGES) Gagnapakkarnir eru geymdir í vinnsluskránni
- (PROCESSCHANGES) Keyrslan vistar pakkana til að ganga úr skugga um að þeir bakfærist ekki ef villa á sér stað
- (SENDCOMMANDS) Allir gagnapakkar í bið eru sendir miðað við uppstillta netþjóna
- (ekki SKIPCLEANUP) Gamlar vinnslu- og eyðingaskrárfærslur eru hreinsaðar samkvæmt varðveislustillingum