Hoppa yfir í efnið

Uppsetning Samþykktakerfis

Best er að nota uppsetningu með hjálp.

alt text

Upplýsingar

Heiti Lýsing
Verkflæði samþykkta er til Kerfið leggur sjálfkrafa til að svarið sé "Já" en þá hefur verkflæði samþykkta verið lesið inn í kerfið.
Verkflæði samþykkta er virkt Kerfið leggur til sjálfkrafa að svarið sé "Já" en þá hefur verkflæði samþykkta verið virkjað inn í kerfið.
RdN verkflæðisflokkur Er sjálfgefið PURCHDOC.
Búa til samþykkt svar er til Er sjálfgefið "Já".
Senda í samþykkt svar er til Er sjálfgefið "Já".
Samþykkja samþykkt verkflæðissvar Er sjálfgefið "Já".
Hafna samþykkt verkflæðissvar Er sjálfgefið "Já".
Hafna við samþykkt verkflæðissvar Er sjálfgefið "Já".
Aðvörun á tómum línum Hægt er að fá aðvörun áður en reikningur er sendur í samþykkt ef lína hefur tóm gildi. Er sjálfgefið "Nei".
Ótengd myndamappa Hér skal tilgreina úr hvaða möppu kerfið á að sækja skönnuð skjöl til að lesa inn í Microsoft Dynamics 365 Business Central.
Nota client möppu Hakað er í þennan reit ef á að nota möppu á client vél frekar en á server.
Tungumál tölvupósts Veljið hvort tölvupóstar séu á íslensku, ensku eða tungumáli viðtakanda úr Sérstillingu notanda.
Nota eldri vef Virkið til að láta tengla í tölvupósti opna eldri samþykktavefinn sem er skráður í Vefslóð.
Nota sérsniðna vefslóð Virkið til að nota Sérsniðna vefslóð í stað sjálfgefinnar slóðar núverandi samþykktavefs.
Senda tölvupóst við samþykktarbeiðni Ef hakað er í þennan reit fær samþykkjandi tilkynningu í tölvupósti þegar samþykktarbeiðni er send.
Senda tölvupóst við samþykkt Ef hakað er í þennan reit fær sendandi samþykktarbeiðninnar tölvupóst þegar beiðnin er samþykkt.
Senda tölvupóst við höfnun Ef hakað er í þennan reit fær sendandi samþykktarbeiðninnar tölvupóst þegar beiðninni er hafnað.
Geyma athugsemdir í RL minnispunktum Best að haka í þennan reit þannig að athugasemdir sem eru skráðar í samþykktaferlinu geymast í Notes á innkaupareikningi.
Þvinga athugasemd við höfnun Hægt er að haka í þennan reit til að þvinga notendur til að skrá athugasemd við höfnun reikninga.