Hoppa yfir í efnið

Inngangur

Sjálfvirkur gagnaflutningur úr Business Central yfir í ytri gagnageymslur

Rue de Net SQL Connector er viðbót fyrir Microsoft Dynamics 365 Business Central sem afritar gögn sjálfkrafa úr Business Central töflum yfir í ytri gagnageymslur. Með henni er hægt að viðhalda nánast rauntíma afriti af völdum gögnum til notkunar í t.d. skýrslugerð með Power BI eða öðrum greiningartólum.

Hvað gerir SQL Connector?

SQL Connector býður upp á að flytja gögn úr Business Central yfir í ytri gagnageymslu á borð við Azure SQL eða Fabric sjálfkrafa.

Veldu hvaða töflur á að samstilla

Veldu hvaða Business Central töflu sem er og ákveddu hvaða reiti á að taka með.

Tengdu við eina eða fleiri ytri gagnageymslu

Sjálfvirk samstilling breytinga

Viðbótin fylgist með innsetningu, breytingum, eyðingu og endurnefningu í Business Central og framkvæmir samsvarandi skipanir á ytri gagnageymslu.

Sjálfvirkni

Hægt er að setja upp vinnsluraðarfærslur sem keyra gagnaflutninginn á stillanlegum fresti.

Fylgstu með öllu á mælaborðinu

Sérstakt mælaborð sýnir stöðu gagnaflutnings, fjölda í bið, misheppnaðra og lokinna aðgerða ásamt stöðu vinnsluraðarfærsla.

Fáðu tilkynningar þegar eitthvað fer úrskeiðis

Stilltu tilkynningar í tölvupósti fyrir aðgerðir á villu.

Helstu kostir

  • Sjálfvirkur gagnaflutningur án handavinnu
  • Áreiðanleg vinnslubiðröð og endurtekning aðgerða við villur
  • Stuðningur við mörg fyrirtæki og marga gagnagrunna
  • Nákvæmt yfirlit yfir allar aðgerðir og SQL skipanir á bak við þær
  • Tilkynningar þegar samstilling mistekst