Hoppa yfir í efnið

Lánardrottnaspjald

Frá lánardrottnaspjaldi er hægt að skoða öll rafræn skjöl síuð á númer lánardrottins.

Lánardrottnaspjald

Rafrænir reikningar – Lýsing á reitum

Reitur Lýsing
Nota grunnmælieiningu Ef hakað er við, verður grunnmælieining staðalsins (PCE fyrir EDI, C62 fyrir BII) sett á allar línur pöntunar á þennan lánardrottinn. Ef ekki, er notast við vörpunum mælieininga (t.d. KG verður KGM í BII/EDI reikningum).
Dreifisvæði Dreifisvæði sem á að nota til að senda rafræn skjöl á þennan lánardrottinn. Ef reiturinn er tómur, sendast ekki rafrænar pantanir.
Gerð eDoc skjals Gerð eDoc skjals sem lánardrottinn tekur á móti (staðall).
EAN kenni Nauðsynlegt fyrir EDI sendingar – tilgreina EAN kenni lánardrottins.
X400 Pósthólf Nauðsynlegt fyrir EDI sendingar – tilgreina X400 pósthólf lánardrottins.
Uppsetning bókunartexta Hægt að skilgreina bókunarlýsingu per lánardrottin. Sjá nánar hér.
Athuga pöntunarnúmer Ef hakað er við, athugar kerfið hvort rafrænn reikningur vísar í innkaupapöntun og stofnar þá innkaupareikning út frá henni.
Sameiginleg vörunúmer Ef hakað er við, eru vörunúmer birgja þau sömu og hjá viðskiptavini og varpast sjálfkrafa.
Uppruni lýsingar úr eDoc línu Velur hvaða gildi úr innkominni eDoc línu verður lýsing á innkaupalínu fyrir þennan lánardrottin. Sjálfgefið notar stillinguna í Uppsetningu rafrænna reikninga. Sjá Uppruni lýsingar úr eDoc línu.

Aðgerðir og tengt

Aðgerð / Tenging Lýsing
Mynda rafræna reikninga Opnar aðgerð til að mynda rafræna reikninga aftur í tímann. Sjá nánar hér.
Rafræn reikningaskrá Opnar vinnuskjal rafræna reikninga (lokið og ólokið) síað á númer lánardrottins. Flýtileið: Ctrl + E. Sjá nánar hér.
Varpanir rafrænna reikninga Opnar allar varpanir síað á númer lánardrottins. Sjá nánar hér.