Hoppa yfir í efnið

Notendastillingar

Smelltu á Notendastillingar í valmyndinni til vinstri.

Stillingar

Tungumál

Veldu Íslenska eða Enska í fellilistanum. Þegar þú vistar er síðan endurhlaðin á nýja tungumálinu. Valið geymist í eitt ár í vafranum.

Tölur og dagsetningar

Upphæðir og dagsetningar eru alltaf birtar á íslensku sniði (t.d. 13.950 og 30. apríl 2018), óháð því hvaða viðmótstungumál er valið.

Reikningsupplýsingar

Hakaðu við þær upplýsingar sem eiga að birtast í samþykktalistanum. Þetta eru sömu dálkar og í Dálkastillingum, en hér án raðar og án vídda.

Reitur Sjálfgefið
Staða ✔
Skjal ✔
Lánardrottinn ✔
Lýsing
Upphæð án vsk. ✔
Upphæð með vsk. ✔
VSK ✔
Eindagi ✔
Birgjanúmer
Bókunardagur
Gjaldmiðill
Upphæð án VSK (innl.)
Samtals (innl.)
VSK upphæð (innl.)
Samþykkjendahópur
Sent til samþykktar
Skjalategund

Vista

Smelltu á Vista stillingar til að vista, eða Hætta við til að hætta við.

Síðan Notendastillingar

Slóðin /usersettings opnar einfalda síðu þar sem aðeins er hægt að velja tungumál.

Notendastillingasíðan