Senda samþykktabeiðni
Þegar samþykkjandahópur hefur verið valinn er hægt að senda samþykktabeiðni.

Reiturinn "Senda samþykktir" fyllist sjálfkrafa út með næsta notanda sem á að samþykkja. Þegar samþykktabeiðni er send fyrst er það fyllt út með notanda sem er nr. 1 í röðinni í samþykkjandahóp.
Samþykktanotandi fær tölvupóst með beiðni til samþykktar ef sú virkni hefur verið sett upp í kerfinu.
Staðan á reikningi breytist í "Bíður samþykkis".
Skv. verkflæði er ekki hægt að bóka reikning sem bíður samþykkis, hann þarf fyrst að vera samþykktur.
Notandi sér samþykktabeiðni í "Beiðnir til samþykktar" hjá sér. Sjá nánari lýsingu hér.
Hægt er að sjá þetta ferli í samþykktum. Sjá nánari lýsingu hér.
Senda áminningu
Hægt er að minna núverandi samþykkjendur á innkaupareikning eða innkaupapöntun sem er í stöðunni Bíður samþykkis.
Fyrir eitt skjal
- Opnið innkaupareikninginn eða innkaupapöntunina.
- Veljið Senda áminningu í tölvupósti.
- Skráið valfrjálsan texta í Athugasemd og veljið Í lagi.
Áminningin er send á tölvupóstfang allra núverandi samþykkjenda. Hún sýnir nafn sendanda, upplýsingar um skjalið, athugasemdina og hnapp sem opnar samþykktina á samþykktavefnum. Athugasemdin vistast jafnframt með samþykktarbeiðninni.
Fyrir mörg skjöl
- Opnið listann Innkaupareikningar eða Innkaupapantanir.
- Veljið skjölin sem bíða samþykkis.
- Veljið Senda áminningu í tölvupósti.
- Skráið valfrjálsa athugasemd og veljið Í lagi.
Sama athugasemd fylgir öllum völdum skjölum. Að sendingu lokinni sýnir kerfið fjölda sendra áminninga. Aðgerðin er aðeins virk fyrir skjöl sem bíða samþykkis og áminning er aðeins send ef opin samþykktarfærsla og tölvupóstfang samþykkjanda finnast.