Hoppa yfir í efnið

Skrá varpanir

Varpanir eru hjarta kerfisins. Með vörpunum er hægt að láta kerfið stofna sjálfkrafa innkaupareikninga/kreditreikninga út frá rafrænum reikningum. Mörg mismunandi tilfelli geta komið upp og hér verður farið yfir þau algengustu.

Afmarkanir og einföldun

Sjá Varpanir með afmörkunum fyrir hvernig nota má BC-síur (t.d. 100* eða A*|B*), Skattflokk og Bókunarupplýsingar til að fækka vörpunarlínum og skilja hvernig kerfið velur vörpun.

1. Bókunarupplýsingar í haus

Hægt er að varpa á víddir (deild og verkefni) út frá bókunarupplýsingum í haus reiknings. Það gæti til dæmis verið samningsnúmer, heiti byggingar eða annað sem einkennir reikninginn.

alt text

2. Bókunarupplýsingar í línu

Hægt er að varpa á víddir (deild og verkefni) út frá bókunarupplýsingum í línu reiknings. Það gæti til dæmis verið samningsnúmer, heiti byggingar eða annað sem einkennir reikninginn.

Bókunarupplýsingar sjást í línu á rafrænum reikningi.

alt text

alt text

3. Margar vörur sem byrja á sama staf eða tölustaf:

Hægt er að stofna aukalínu með byrjun á vörunúmeri og *. Þannig varpast allar vörur sem byrja á sömu stöfum á einn fjárhagslykill eða eitt vörunúmer.

alt text

4. Vörpun á fjárhagslykli en ekki reikna VSK

Ef um kostnað er að ræða þar sem VSK á ekki að reiknast (t.d. starfsmannakostnaður) þá á eingöngu að varpa á fjárhagslykil án VSK, það þarf að haka í reitinn Bóka VSK á NAV kenni 1. Þá er hægt að nota vörpun þó svo varan sé merkt með VSK.

alt text

5. Varpa sama vörunúmeri á mismunandi fjárhagsreikninga

Með því að nota skattflokk í vörpun er hægt að aðgreina á hvaða fjárhagslykill á að varpa þó svo vörunúmerið sé það sama. Þetta er hægt að nota þegar birgi sendir sama vörunúmer tvisvar með mismunandi VSK %.

alt text

6. Skrá margar víddir í vörpunum:

Þegar margar víddir eru notaðar í kerfinu er hægt að varpa bókunarupplýsingum á margar víddir í reikningshaus og reikningslínum.

Sjá leiðbeiningar hér: https://docs.ruedenet.net/Docs/edocs/22.12.0/Leidbeiningar/SkraMargarViddirIVorpunum/