Samþykkja og hafna
Samþykkja stakt skjal
- Opnaðu skjalið úr listanum.
- Farðu yfir reikningsyfirlitið og viðhengin.
- Smelltu á Samþykkja neðst til hægri.

Á meðan aðgerðin er í gangi birtast skilaboðin Framkvæmi aðgerð... Þegar hún klárast hverfur skjalið úr listanum og næsti reikningur opnast sjálfkrafa. Ef ekkert skjal er eftir ferðu aftur í samþykktalistann.
Hafna stöku skjali
- Smelltu á Hafna.
-
Í glugganum velur þú ástæðu höfnunar úr fellilistanum og getur skrifað nánari lýsingu.

-
Smelltu á Hafna til að staðfesta, eða Hætta við.
Ástæðan verður að athugasemd
Ástæðan og lýsingin eru vistaðar sem athugasemd á skjalinu. Bókarinn sér því strax hvers vegna skjalinu var hafnað. Sjá Athugasemdir.
Fellilistinn með ástæðum er skilgreindur í Business Central. Ef enginn listi er til staðar getur þú einfaldlega skrifað lýsinguna.
Fjöldaafgreiðsla
Þú getur samþykkt eða hafnað mörgum skjölum í einu.
-
Merktu við gátreitina við þau skjöl sem á að afgreiða. Gátreiturinn í fyrirsögninni velur allt í einu.

-
Neðst til hægri sýna hnapparnir Hafna og Samþykkja fjölda valinna skjala.
- Smelltu á þann hnapp sem á við.
Þegar mörg skjöl eru afgreidd í einu er unnið úr þeim hverju á fætur öðru og teljari sýnir framvinduna, t.d. (2/5).
Hafna mörgum í einu
Höfnunarglugginn opnast einu sinni og sama ástæða og lýsing eru notaðar fyrir öll valin skjöl.

Hvað gerist í Business Central?
Samþykkt eða höfnun á vefnum er nákvæmlega sú sama og ef hún væri gerð í Business Central:
- Samþykkja — samþykktarbeiðnin er kláruð. Ef þú varst síðasti samþykkjandi verður skjalið tilbúið til bókunar.
- Hafna — beiðninni er hafnað og skjalið fer aftur til þess sem sendi það.
Sjá einnig Samþykkja reikning og Hafna reikningi.
Ef aðgerðin mistekst
| Skilaboð | Skýring |
|---|---|
| Villa: … | Business Central hafnaði aðgerðinni. Textinn á eftir kemur frá Business Central. |
| Þú hefur ekki nauðsynlegar heimildir í Business Central… | Notandann vantar samþykktarheimildir. Hafðu samband við kerfisstjóra. |
Aðgerðahnapparnir eru óvirkir ef skjalið er ekki með stöðuna Opið — t.d. ef einhver annar er þegar búinn að afgreiða það.