Viðhengi
Viðhengi eru þau skjöl sem tengd hafa verið reikningnum í Business Central — oftast PDF-mynd af reikningnum sjálfum.
Viðhengi við hlið reikningsins
Í tölvu birtast viðhengin í hægri dálki reikningsyfirlitsins, við hlið upplýsinganna. Þannig getur þú borið saman reikninginn og skráninguna án þess að skipta um glugga.
Ef fleiri en eitt viðhengi er á skjalinu birtist flipi fyrir hvert þeirra efst í dálkinum. Flipinn heitir eftir tegund skjalsins. Viðhengjum er raðað þannig að PDF-skjöl koma fyrst, síðan myndir og loks önnur skjöl.

| Skilaboð | Merking |
|---|---|
| Engin viðhengi | Ekkert viðhengi er á skjalinu. |
| Veldu viðhengi | Viðhengi eru til staðar en ekkert er valið — smelltu á flipa. |
| Ekki er hægt að forskoða þessa skrá | Skráargerðin styður ekki forskoðun. Skránni er þá hlaðið niður í staðinn. |
Studdar skráargerðir
| Gerð | Birting |
|---|---|
| Opnast í innbyggðum PDF-lesara með síðuflettingu og aðdrætti. | |
| Myndir (JPG, PNG, GIF, BMP, WEBP, SVG, TIFF) | Birtast beint. |
| HTML | Birtist í ramma. |
| XML | Birtist sem texti. |
| Annað | Hlaðið niður. |
Opna PDF beint úr listanum
Í töfluyfirlitinu er dálkur lengst til hægri með PDF-tákni. Smelltu á það til að opna fyrsta PDF-viðhengi skjalsins í glugga, án þess að opna reikninginn.

Í glugganum eru þessir hnappar:
| Hnappur | Lýsing |
|---|---|
| Sýna stórt / Hlið við hlið | Skiptir á milli þess að sýna viðhengið á fullum skjá eða við hlið reikningsins. |
| × | Lokar glugganum. |
Viðhengi í síma
Í síma er sérstakur flipi, Viðhengi, í reikningsyfirlitinu. Fyrsta viðhengið hleðst sjálfkrafa þegar flipinn er opnaður.

Sjá einnig Notkun í síma.
Hvernig komast viðhengi á reikninginn?
Viðhengi eru tengd við reikninginn í Business Central, t.d. með því að draga skjal á reikninginn eða úr lista skannaðra mynda. Sjá Draga og sleppa og Listi skannaðra mynda.