LEIÐBEININGAR
Vörur frá Rue de Net
Við höfum þróað mörg sérkerfi sem hjálpa þér að nýta viðskiptakerfið þitt enn betur og ná meiri árangri. Þú setur saman þinn heildarpakka með því að velja þau sérkerfi sem henta þínu fyrirtæki.
Veldu vöru hér að neðan eða úr listanum til vinstri til þess að nálgast skjölun.
Bankakerfi
Auðveldar allt ferli sem viðkemur bankaaðgerðum í Business Central. Allt á einum stað með sjálfvirkum inn- og útgreiðslum.
Grunnpakki
Aðlagar Business Central að íslenskum aðstæðum með vel völdum breytingum á grunnvirkni.
Samþykktakerfi
Gefur góða yfirsýn yfir stöðu reikninga í Business Central, auðvelt frá skráningu reikninga til bókunar. Notendavænn samþykktarvefur hvar og hvenær sem er.
Rafrænir reikningar
Einföld reikningagerð, hvort sem er á milli birgja eða viðskiptamanna. Sjálfvirkni í fyrirrúmi sem gefur heildræna sýn á stöðu fyrir upplýsta ákvarðanatöku.
Tollakerfi
Heldur utan um allt innkaupa og tollafgreiðsluferlið í Business Central. Notendavænt, tryggir rétta stöðu á birgðaverðmæti og skjóta tollafgreiðslu.
Launakerfi
Öll launavinnsla unnin í Business Central. Hægt að reikna og borga beint úr kerfinu, lesa úr tímaskráningarkerfi, tengja við verkbókhald og margt fleira.
Vefverslunartengill
Beintenging við Business Central og styður nopCommerce, WooCommerce og Shopify.
Þjóðskrá
Hlaðið nýjustu upplýsingum um viðskiptamenn úr þjóðskrá inn í Business Central.
Creditinfo tenging
Tengingin gerir fyrirtækjum kleift að sækja upplýsingar frá Creditinfo beint inn í Business Central.
Motus tenging
Tengingin gerir fyrirtækjum kleift að senda viðskiptakröfur beint í Motus í gegnum Business Central.
Launa tenging
Með tengingunni getur lesið gögn úr launakerfinu Launa.
H3 laun tenging
Með tengingunni getur lesið gögn úr launakerfinu H3 laun.
Viðskiptavinavefur
Viðskiptavinavefur er beintengdur Business Central og gerir viðskiptavinum þínum kleift að skoða reikningsviðskipti sín við fyrirtæki þitt á netinu.
Farmbréfakerfi
Farmbréfakerfið auðveldar afhendingu sendinga með sjálfkrafa myndun farmbréfa hjá flutningsaðilum. Fljótlegri og nákvæmari skráning farmbréfa með rekjanleika.
Verðbreytingabók
Verðbreytingabók Rue de Net einfaldar breytingar sem þarf að gera á vöruverðum í Business Central.
SQL Connector
Sjálfvirkur gagnaflutningur úr Business Central yfir í ytri gagnageymslur.
Draga og sleppa
Dragðu og slepptu skjölum beint inn í Business Central.
Kostnaðardreifing
Dreifðu kostnaði á milli deilda og verkefna í Business Central.
TIME Registration
Tímaskráning og samþykktir beint í Business Central.