Notkun í síma
Samþykktavefurinn er hannaður fyrir bæði tölvur og síma. Þú notar sömu vefslóð og sömu innskráningu.

Það sem er öðruvísi
| Atriði | Í síma |
|---|---|
| Valmynd | Falin. Smelltu á hamborgaratáknið efst til hægri. |
| Efsta stikan | Sýnir tákn og heiti þess hluta sem þú ert í. |
| Leitarreitur | Efst, í fullri breidd. |
| Spjöld/tafla | Táknhnappar við hliðina á leitarreitnum. Spjöld eru sjálfgefin. |
| Spjöld | Í fullri breidd, hvert undir öðru. |
| Viðhengi | Sérstakur flipi í stað hægri dálks. |
| Neðsta stikan | Val á umhverfi og fyrirtæki í tveimur röðum. |
Valmyndin
Smelltu á hamborgaratáknið efst til hægri.

Valmyndin inniheldur sömu hnappa og í tölvu. Hún lokast sjálfkrafa þegar þú velur eitthvað, og einnig með × efst til hægri.
Afgreiða reikning í síma
-
Smelltu á spjald til að opna reikninginn.

-
Notaðu flipana til að skoða Reikningsyfirlit, Athugasemdir, Síðustu reikningar og Viðhengi.
- Smelltu á Samþykkja eða Hafna neðst.
Efst er bakhnappurinn Beiðnir og örvar til að fara á næsta eða fyrri reikning án þess að fara til baka í listann.
Fjöldaafgreiðsla í síma
Fyrir ofan listann er stika með Velja allt og teljara sem sýnir hversu mörg skjöl eru valin. Merktu við þau skjöl sem á að afgreiða og notaðu aðgerðahnappana.
Skoða viðhengi
Opnaðu flipann Viðhengi í reikningnum. Fyrsta viðhengið hleðst sjálfkrafa.
