Hoppa yfir í efnið

Uppsetning taflna

Hér er hægt að velja hvaða Business Central töflur á að samstilla við ytri gagnageymslur og stilla hvernig samstillingin fer fram. Til að opna listann er hægt að leita að „SQL Connector töflusíða" en einnig er hún aðgengileg í gegnum "Töflur til samstillingar" aðgerðir á ýmsum stöðum í kerfinu.

Töflulisti

ToflurListi

Dálkur Lýsing
Kóði Einkvæmt auðkenni fyrir þessa töfluuppsetningu
Lýsing Lýsandi heiti töflunnar
Töflunr. Númer Business Central töflunnar sem samstillt er
Heiti töflu Kerfisheiti töflunnar (sjálfvirkt)
Töflutexti Heitið sem notað er sem töfluheiti í ytri gagnageymslu (breytanlegt, sérstafir hreinsuð sjálfkrafa)
Bókamerki færslu Innra eftirlitsgildi (Row Version) sem gefur til kynna stöðu samstillingar. Færslum breytt eftir þetta gildi verða fluttar út í næstu samstillingu.
Færslu síðast breytt Sýnir hvenær færslan sem svarar til breytingarstimpilsins var síðast breytt.

Upplýsingasvæðið til hægri (FactBox) sýnir samstillingartölfræði fyrir valda töflu.

Samstillingatolfraedi

Töfluspjald

Smellt er á kóða færslu í listanum til að opna spjaldsíðu.

TofluSpjald

Almennt

Reitur Lýsing
Kóði Einkvæmt auðkenni fyrir þessa töfluuppsetningu
Lýsing Lýsandi heiti töflunnar
Töflunr. Númer Business Central töflunnar sem samstillt er. Notið uppflettingu til að skoða tiltækar töflur. Við val býður kerfið upp á sjálfgefin gildi (200 færslur á gagnapakka, 10.000 færslur á verk, sjálfvirka úthlutun netþjóns og sjálfvirka reitaúthlutun).
Heiti töflu Kerfisheiti töflunnar (sjálfvirkt)
Töflutexti Heitið sem notað er sem töfluheiti í ytri gagnageymslu (breytanlegt, sérstafir hreinsuð sjálfkrafa)

Samstilling

Reitur Lýsing
Gera virkt Virkjar töfluna til samstillingar. Viðvaranir birtast ef engin netþjónauppsetning er tengd, engir reitir eru stilltir, eða töfluuppbygging hefur ekki verið búin til. Hægt er að halda áfram þrátt fyrir viðvaranir.
Netþjónakóði Hvaða netþjónauppsetningu á að nota (uppfletting á netþjónalista)
Fjöldi færslna í hverju skeyti Hversu margar færslur eru settar í hvern gagnapakka (lágmark: 1). Hefur áhrif á stærð og vinnslutíma gagnapakka.
Fjöldi færslna í hverju verki Hámarksfjöldi færslna í hverri keyrslu verkraðar (lágmark: 1). Takmarkar hversu mikla vinnu ein keyrsla framkvæmir.
Bókamerki færslu Innri tímastimpill (Row Version) sem gefur til kynna stöðu samstillingar. Samstillingin flytur út færslur sem hafa hærri tímastimpil en þetta gildi í næstu keyrslu.
Færslu síðast breytt Sýnir hvenær færslan sem svarar til breytingarstimpilsins var síðast breytt. Hægt er að breyta þessu gildi til að færa samstillingarbendinn aftur í tíma.
Þvinga fulla samstillingu Þegar virkt er næsta keyrsla tæmir SQL töfluna og flytur öll gögn aftur út. Flaggið endurstillist sjálfkrafa eftir samstillingu.

Skema

Reitur Lýsing
Uppbygging töflu búin til Hvort tafla hefur verið stofnuð á ytri gagnaþjóni
Síðasta eyðingarfærsla Númer síðustu unninnar eyðingarskráarfærslu

Ítarlegt

Reitur Lýsing
Hafa fyrirtæki í lykli Tekur BC fyrirtækjaheitið með í frumlykil færslu. Hægt að nota í umhverfum með mörgum fyrirtækjum þar sem sama taflan er flutt út frá fleiri fyrirtækjum í sama gagnagrunn
Flytja Enum/Valkost sem texta Þegar virkt eru valkosta-/upptalningarreitir fluttir sem læsilegur texti í stað tölugilda
Sleppa sjálfgildum við innlögn Þegar virkt er reitum sem hafa sjálfgefin gildi sleppt úr skipun fyrir nýjar færslur eru búnar til. Þetta minnkar stærð sendingar en þýðir að ytri taflan verður að skilgreina sín eigin sjálfgefin gildi.
Nota breytingaskrá til að greina breytingar Þegar virkt athugar kerfið BC breytingaskrá til að greina hvaða reitir breyttust, og setur aðeins þá reiti í UPDATE skipanir (minnkar gagnapakkastærð)

Reitir

Neðst á spjaldinu birtist listi yfir reiti sem fluttir verða út. Sjá nánar í Uppsetning reita.

Reitir

Samstillingartölfræði (FactBox)

Upplýsingasvæðið sýnir rauntímatölur fyrir valda töflu líkt og á listasíðunni.

Samstillingatolfraedi

Framvinda

Mælistærð Lýsing
Heildarfærslur Heildarfjöldi í BC töflu
Samstilltar færslur Færslur sem þegar hafa verið fluttar út miðað við Bókamerki færslu reitinn
Færslur eftir Færslur sem á eftir að flytja út miðað við Bókamerki færslu reitinn
0DT-færslur Færslur þar sem kerfisreiturinn SystemModifiedAt = 0DT

Lotustillingar

Reitur Lýsing
Fjöldi færslna í hverju skeyti Runustærð fyrir þessa töflu
Fjöldi færslna í hverju verki Færsluhámark verks fyrir þessa töflu

Vinnsluskrá

Staða Lýsing
Í bið Færslur í bið fyrir þessa töflu
Í vinnslu Færslur í sendingu
Misheppnaðist Misheppnaðar færslur
Fyrirbyggjandi stöðvun Færslur stöðvaðar vegna þess að fyrri færsla fyrir sama pakka mistókst
Lokið Færslur sem tókust

Smellt er á hverja stöðu til að opna síaða vinnsluskrá.

Á töfluspjaldinu fyrir neðan samstillingartölfræðina eru vinnsluskrárfærslur fyrir töfluna sýnilegar með aðgengilegum færslum: Vinna úr færslu, Vinna úr öllum óunnum færslum.

Aðgerðir á töfluspjaldi

Skema

Aðgerð Lýsing
Búa til töflu Býr til töfluuppbyggingu á tengdum netþjóni. Aðeins sýnilegt þegar uppbygging er ekki til skv. haki undir Skema
Bæta við dálkum sem vantar Greinir reiti sem eru í BC uppsetningu og býr til ALTER TABLE ADD skipanir fyrir ytri gagnageymsluna.

Stjórnun

Aðgerð Lýsing
Endurskapa töflu Eyðir ytri töflunni og býr hana til aftur. Krefst staðfestingar. Endurstillir tímastimpil og eyðingarskráarbendi undir Skema.
Fjarlægja ónotaða dálka Greinir dálka í SQL töflu sem eiga ekki lengur samsvarandi BC reiti og býr til ALTER TABLE DROP COLUMN skipanir. Sýnir staðfestingu með lista yfir dálka sem verða fjarlægðir.
Þvinga fulla endursamstillingu Setur flagg svo næsta keyrsla tæmi töfluna og flytji út öll gögn aftur.

Gögn

Aðgerð Lýsing
Flytja út gögn Skannar eftir breyttum færslum og raðar gagnapökkum í vinnsluskrá. Gagnapakkarnir eru ekki sendir strax. Notið „Vinna úr allar óunnar færslur" frá mælaborði eða vinnsluskrá til að senda þá. Gerist einnig sjálfkrafa með þess til gerðum vinnsluraðarfærslum.
Síur Opnar töflusíur til að takmarka hvaða færslur eru fluttar út. Sjá nánar hér
Stinga upp á lotustærð Greinir reitauppsetningu og áætlaðar færslustærðir til að mæla með bestu gildi fyrir Færslur á gagnapakka.
Forskoða stærð gagnapakka Býr til sýnigagnapakka og gefur upp áætlaða stærð hans.