Hoppa yfir í efnið

Azure Blob Storage geymsla

Yfirlit

Rafrænir reikningar geta geymt viðhengi og hrá skjöl (Binary Large Object - BLOB) annað hvort í gagnagrunninum eða í Azure Blob Storage. Sjálfgefin stilling er að geyma allt í gagnagrunninum, en með Azure Blob Storage er hægt að draga úr stærð gagnagrunnsins og nýta ódýrari geymslu í Azure.

Þessi virkni hentar sérstaklega vel fyrir umhverfi með mikið magn rafrænna skjala þar sem gagnagrunnsplássið er takmarkað.


Forsendur

  • Azure Storage Account þarf að vera til staðar með stuðning fyrir "Blob" geymslu.
  • Container (geymslusvæði) þarf að vera stofnað fyrirfram í Azure Storage Account.
  • Samnýttur aðgangslykill (sjá: (Shared Access Key) eða SAS-tákn (sjá hér) þarf að vera tiltækt til auðkenningar.

Uppsetning

1. Opna uppsetningarsíðu rafrænna reikninga

Farðu í Uppsetning rafrænna reikninga (leitaðu að "Uppsetning rafrænna reikninga" í leitarstikunni).

2. Velja geymsluveitu

Undir hlutanum Geymsla er reitur sem heitir Geymsluveita (e. Storage Provider). Veldu úr eftirfarandi valkostum:

Gildi Lýsing
Gagnagrunnur Sjálfgefin stilling. Viðhengi og hrá gögn eru geymd beint í BC-töflum.
Azure Blob Storage Viðhengi og hrá gögn eru geymd í Azure Blob Storage.

Geymsluveita stillt á Gagnagrunnur

3. Stilla Azure Blob Storage

Geymsla stillt á Azure Blob Storage með viðeigandi reitum

Fyrir Azure Blob Storage eru eftirfarandi reitir notaðir til uppsetningar:

Reitur Lýsing
Heiti geymslureiknings (e. Storage Account Name) Nafn Azure Storage Account (t.d. mystorageaccount).
Heiti geymslu (container) (e. Container Name) Nafn á container í Azure Storage Account (t.d. edocs).
Samnýttur aðgangslykill (sláðu inn til að vista) (e. Shared Access Key) Lykilorð til auðkenningar við Azure. Gildið er eingöngu til ritunar og birtist aldrei eftir vistun. Annaðhvort þarf samnýttan aðgangslykil eða SAS-tákn — ekki bæði. Sjá nánar hér.
Samnýttur aðgangslykill er stilltur (e. Shared Access Key is Set) Sýnir hvort aðgangslykill hafi verið stilltur. Hægt er að haka úr reitnum til að eyða lyklinum.
SAS-tákn (sláðu inn til að vista) (e. SAS Token) Annar möguleiki á auðkenningu. Gildið er eingöngu til ritunar og birtist aldrei eftir vistun. Sjá nánar hér.
SAS-tákn er stillt (e. SAS Token is Set) Sýnir hvort SAS-tákn hafi verið stillt. Hægt er að haka úr reitnum til að eyða tákninu.

Athugið að það þarf ekki að fylla bæði út aðgangslykil og SAS-tákn, annar reitanna dugar.

Á eftirfarandi mynd má sjá storage account í Azure:

AzureStorageContainer

Aðgangslykla má finna undir Security + networking > Access keys:

AzureStorageContainer

4. Prófa tengingu

Eftir uppsetningu er hægt að nota aðgerðina Prófa Azure-tengingu (e. Test Azure Connection) til að staðfesta að tengingin virki rétt. Kerfið reynir að tengjast Azure Blob Storage og skilar skilaboðum um hvort tengingin tókst. Þessi aðgerð birtist eingöngu þegar Azure Blob Storage er valið sem geymsluveita.

Aðgerðin Prófa Azure-tengingu í valmyndinni


Hegðun kerfisins

Ný viðhengi

Þegar geymsluaðferð er stillt á Azure Blob Storage eru öll viðhengi og hrá gögn geymd í Azure. Eldri gögn sem voru geymd í gagnagrunninum eru áfram geymd þar nema þau séu flutt sérstaklega (sjá Gagnaflutningur).

Lestur viðhengja

Hvert viðhengi og hrátt skjal (BLOB) hefur reitinn Geymsluveita (e. Storage Provider) sem segir til um hvar gögnin eru geymd. Kerfið les alltaf úr þeirri geymsluveitu sem reiturinn gefur til kynna.

Þetta þýðir að hægt er að skipta yfir í Azure Blob Storage án þess að flytja eldri gögn — eldri færslur halda geymsluveitu sinni og eru áfram lesanlegar.

Eyðing viðhengja

Þegar viðhengi er eytt (t.d. af hreinsunarverki) reynir kerfið að eyða gögnunum úr öllum geymsluveitum (bæði gagnagrunninum og Azure Blob Storage). Þetta tryggir að engin gögn verði eftir, jafnvel þótt færsla hafi verið flutt á milli geymsluveita.


Gagnaflutningur milli geymsluveita

Hægt er að flytja eldri viðhengi og hrá gögn (BLOB) frá einni geymsluveitu til annarrar, t.d. frá gagnagrunninum yfir í Azure Blob Storage eða öfugt. Færslum sem þegar eru til í áfangastað er sleppt sjálfkrafa.

Opna flutningssíðu

Á Uppsetning rafrænna reikninga síðunni er aðgerðin Flytja gögn (e. Migrate Storage).

Flutningssida

Þegar smellt er á hana opnast síðan Gagnaflutningur geymslu rafrænna reikninga (e. eDoc Storage Migration).

Flutningssida

Kerfið stillir sjálfkrafa uppruna og áfangastað miðað við núverandi geymsluveitu:

  • Ef Azure Blob Storage er virkt → Uppruni: Gagnagrunnur, Áfangastaður: Azure Blob Storage.
  • Ef Gagnagrunnur er virkt → Uppruni: Azure Blob Storage, Áfangastaður: Gagnagrunnur.

Hægt er að breyta þessum stillingum á síðunni áður en flutningur hefst.

Stillingar á flutningssíðu

Reitur Lýsing
Uppruni (e. Source Provider) Geymsluveitan sem á að flytja gögn frá.
Áfangastaður (e. Target Provider) Geymsluveitan sem á að flytja gögn til.
Hám. færslur (0 = allar) (e. Max Records) Hámarksfjöldi viðhengja og hrárra gagna sem á að flytja. Stillið á 0 til að flytja allar færslur. Notið lægri fjölda til að prófa uppsetninguna.

Keyra flutning

Smelltu á aðgerðina Flytja (e. Migrate) til að hefja flutning. Kerfið biður um staðfestingu áður en flutningurinn hefst.

Eftir flutning birtast niðurstöður:

Svæði Reitur Lýsing
Viðhengi Flutt (Migrated) Fjöldi viðhengja sem tókst að flytja.
Þegar á áfangastað (Already in Target) Fjöldi viðhengja sem sleppt var þar sem þau eru þegar til á áfangastað.
Sleppt (ekkert innihald) (Skipped (No Content)) Fjöldi viðhengja sem sleppt var þar sem þau hafa ekkert innihald í uppruna. Dæmi um slík viðhengi eru hlekkir. Hægt er að smella á töluna til að sjá lista yfir þessi viðhengi.
Mistókst (Failed) Fjöldi viðhengja sem mistókst að flytja.
BLOB færslur Sömu reitir og fyrir viðhengi.
Liðinn tími (Time Elapsed) Heildartími flutningsins.

Keyra flutning í bakgrunni

Fyrir mikið gagnamagn er hægt að stofna vinnsluraðarfærslu (e. Job Queue Entry) sem keyrir flutninginn í bakgrunni. Smelltu á aðgerðina Stofna vinnsluraðarfærslu (e. Create Job Queue Entry) á flutningssíðunni. Kerfið biður um staðfestingu og stofnar síðan vinnsluraðarfærslu sem hægt er að skoða og stjórna í Vinnsluraðarfærslur (e. Job Queue Entries). Ef hún keyrir rétt eyðist hún að keyrslu lokinni.

Til að stofna vinnsluraðarfærsluna handvirkt er hægt að fara beint í Vinnsluraðarfærslur og stofna með stillingum Codeunit - 10041605 og færibreytustreng DatabaseToAzure eða AzureToDatabase eftir því sem við á.

Vinnslurod


Skipulag skráa í Azure

Viðhengi og hrá skjöl eru vistuð með eftirfarandi nafnaskipan í Azure Blob Storage:

Viðhengi:

{Heiti umhverfis (Production eða Sandbox nafn)}/{Fyrirtæki}/attachments/{Skjalanúmer}/{Viðhengisnúmer}-{Nafn}.{Skráarending}

Hrá skjöl (Binary Large Objects - BLOBs):

{Heiti umhverfis (Production eða Sandbox nafn)}/{Fyrirtæki}/blobs/{In/Out}/{Dagsetning}-{Númer}

Takmarkanir

  • Geymsluaðferðin gildir fyrir allt fyrirtækið — ekki er hægt að velja mismunandi geymsluaðferð eftir skjalategund.
  • Container og Storage Account í Azure þarf að vera stofnað fyrirfram — kerfið stofnar það ekki sjálfkrafa.

Tengdar síður