Vinnsluskrá og eyðingaskrá
Vinnsluskrá
Vinnsluskráin er bæði hugsuð sem biðröð fyrir gagnapakka sem eiga eftir að vera sendir og saga yfir allar aðgerðir sem þegar hafa verið framkvæmdar. Fyrir stjórnendur bíður hún upp á að flytja út og eiga við skipunina sem send er til ytri gagnageymslu.

Dálkar
| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Færslunr. | Einstakt sjálfhækkandi auðkenni færsla |
| Vinnslukóði | Uppsetningarkóði töflu sem færslan tilheyrir |
| Netþjónakóði | Kóði uppsetningar netþjóns |
| Vinnslugerð | Tegund aðgerðar sem send var/verður til ytri netþjóns (t.d. Insert/Update, Delete, Create Table) |
| Dagsetning skráningar | Hvenær færslan var búin til |
| Skráningartexti | Lýsing fengin úr töflusamstillingu |
| Stærð skipunar | Stærð geymdra gagnapakka í bætum |
| Staða vinnslu | Núverandi staða: Í bið, Í vinnslu, Lokið, Misheppnaðar eða Fyrirbyggjandi stöðvun |
| Dagsetning vinnslu | Hvenær vinnsla (sending) hófst |
| Lokadagsetning og -tími | Hvenær vinnslu lauk |
| Lengd vinnslu | Hversu langan tíma sending tók |
| Vinnsluskilaboð | Svarskilaboð frá vinnslu |
| Stöðukóði svars | HTTP svarkóði frá netþjóni sem sá um sendingu |
| Svar er árangursríkt | Hvort HTTP svarið gefur til kynna árangur |
| Ástæðusetning svars | Ástæðusetning HTTP svars (t.d. OK, Unauthorized, Forbidden) |
| Fjöldi endurtekninga | Fjöldi endurtilrauna sem gerðar hafa verið á þessari færslu |
Stöðuferill
Hver færsla fer í gegnum eftirfarandi stöður:
- Í bið: gagnapakki myndaður og í biðröð, hefur ekki verið sendur
- Í vinnslu: verið að senda
- Lokið: framkvæmd tókst
- Misheppnuð: sending eða framkvæmd mistókst; hægt er að endurreyna allt að hámarksfjölda endurtilrauna skv. stillingum netþjóns.
- Fyrirbyggjandi stöðvun: færsla er stöðvuð vegna þess að fyrri færsla fyrir sama pakka mistókst. Kerfinu er stillt á að stöðva sendingu pakka þegar villa kemur upp (sjá “Stöðva pakka við villu” í netþjónauppsetningu).
Aðgerðir
Vinnsla
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Vinna úr færslu | Sendir valda vinnsluskráarfærslu til uppsetts tengds netþjóns |
| Vinna allar óunnar færslur | Sendir allar færslur í bið til tengdra netþjóna |
| Reyna pakka aftur | Endurstillir allar misheppnaðar og stöðvaðar færslur fyrir valinn pakka í Biður, svo hægt sé að vinna þar aftur |
Stjórnun
Þessar aðgerðir eri í boði fyrir kerfisstjóra: notendur með skrifréttindi á netþjónauppsetningu.
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Flytja út umslag | Sækir umslag gagnapakkans — JSON umslag sem inniheldur SQL skipunina og tengiupplýsingar — sem skrá |
| Flytja út gagnapakka | Sækir hráan gagnapakka sem skrá til villuleitar |
| Hlaða upp gagnapakka | Hleður upp gagnapakkaskrá og setur inn í fyrirliggjandi færslu. |
| Eyða gömlum færslum | Eyðir loknum og misheppnuðum færslum eldri en stilltur varðveislutími |
| Hreinsa allt lokið | Eyðir öllum loknum færslum óháð aldri |
Eyðingaskrá
Eyðingaskráin heldur sérstaklega utan um eyðingu og endurnefningu færslna í töflum sem stillt hefur verið upp fyrir samstillingu. Hún er svo notuð í næstu samstillingu til að koma skipunum um að fjarlægja færslurnar til ytri gagnageymslunnar. Slíkar skipanir eru þá eins og aðrar sýnilegar í vinnsluskránni.

Dálkar
| Dálkur | Lýsing |
|---|---|
| Færslunr. | Einstakt sjálfhækkandi auðkenni |
| Töflunr. | Númer BC töflu þar sem eyðing/endurnefning átti sér stað |
| Aðallykill | Texti aðallykils viðkomandi færslu (allt að 2048 stafir) |
| Færslukenni | BC RecordId eyðdrar/endurnefndrar færslu |
| Aðgerð | Tegund aðgerðar: Eyða eða Endurnefna |
| Stofnað af | Notandinn sem framkvæmdi eyðingu/endurnefningu |
| Stofnað þann | Hvenær eyðing/endurnefning átti sér stað |
Aðgerðir
| Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Eyða gömlum færslum | Eyðir eyðingaskrárfærslum m.t.t. varðveislustillinga allra netþjóna. Notast er við lengsta varðveislutíma sem finnst í stillingum netþjóna. |