Uppfærsla frá eldri samþykktavef
Nýi samþykktavefurinn notar Microsoft-innskráningu. Samþykkjendur skrá sig inn með sama Microsoft-aðgangi og þeir nota í Business Central. NA-notendur og lykilorð úr eldri vefnum eru ekki notuð lengur.
Ljúka þarf eftirfarandi skrefum einu sinni fyrir hvert fyrirtæki áður en skipt er yfir.
| Skref | Hver framkvæmir |
|---|---|
| 1. Veita samþykki stjórnanda | Notandi með hlutverkið Global Administrator í Microsoft 365 |
| 2. Úthluta heimildum | Stjórnandi í Business Central |
| 3. Setja upp ytri notendur | Kerfisstjóri í Microsoft 365 og stjórnandi í Business Central |
| 4. Skipta yfir | Stjórnandi í Business Central |
1. Veita samþykki stjórnanda
Samþykktavefurinn þarf leyfi til að tengjast Business Central fyrir hönd notenda. Leyfið er veitt einu sinni fyrir allt fyrirtækið og aðeins notandi með hlutverkið Global Administrator getur veitt það.
- Opnið Stillingar samþykkta í Business Central.
- Veljið aðgerðina Veita samþykki stjórnanda. Innskráningarsíða Microsoft opnast.
- Skráið ykkur inn sem Global Administrator.
- Farið yfir heimildirnar og hakið í Samþykkja fyrir hönd fyrirtækisins (Consent on behalf of your organization).
- Veljið Samþykkja (Accept).
Warning
Ef ekki er hakað í Samþykkja fyrir hönd fyrirtækisins gildir samþykkið aðeins fyrir kerfisstjórann sjálfan og aðrir notendur fá villu við innskráningu.
Ef þú ert ekki Global Administrator
Afritaðu slóðina sem opnast í skrefi 2 og sendu hana á kerfisstjóra fyrirtækisins. Hann opnar slóðina og samþykkir.
Note
Reiturinn Vefbiðlaraauðkenni er fylltur út sjálfkrafa við uppfærslu. Ekki á að breyta honum nema Rue de Net biðji um það.
2. Úthluta heimildum til samþykkjenda
Vefurinn sækir gögn úr Business Central með aðgangi notandans sjálfs. Hver samþykkjandi þarf því:
- Business Central notanda með leyfi. Team Member leyfi nægir.
- Heimildasettið RDN APPROVER og grunnheimildir, t.d. D365 BASIC.
- Aðild að viðeigandi samþykkjendahópum, eins og áður.
Þeir sem sjá um uppsetningu samþykktakerfisins fá RDN APPR. ADMIN í stað RDN APPROVER. Það inniheldur allar heimildir samþykkjanda.
3. Ytri notendur
Í eldri vefnum fengu ytri samþykkjendur, t.d. endurskoðendur eða verktakar, NA-notanda og lykilorð. Í nýja vefnum skrá þeir sig inn með eigin Microsoft-vinnuaðgangi sem gestir (guest users) í Microsoft-umhverfi fyrirtækisins.
Vinnuaðgangur er nauðsynlegur
Ytri notandi verður að hafa Microsoft-vinnuaðgang (Microsoft 365 / Entra ID). Persónulegir aðgangar, t.d. Gmail eða Outlook.com, virka ekki.
Kerfisstjóri fyrirtækisins:
- Býður notandanum sem gesti í Microsoft Entra (Users > New user > Invite external user).
- Bætir notandanum við í Business Central og úthlutar leyfi og heimildum eins og í skrefi 2.
- Sendir notandanum auðkenni Microsoft-umhverfis (Tenant ID) fyrirtækisins. Það er að finna í Business Central undir Hjálp og stuðningur eða í Microsoft Entra undir Overview.
Ytri notandinn:
- Samþykkir boðið sem berst í tölvupósti.
- Skráir sig inn á samþykktavefinn með eigin vinnuaðgangi.
- Bætir við Microsoft-umhverfi fyrirtækisins með auðkenninu, sjá Bæta við Microsoft umhverfi.
Eftir það birtast beiðnir fyrirtækisins á vefnum. Sá sem vinnur fyrir fleiri fyrirtæki endurtekur skref 3 fyrir hvert þeirra.
4. Skipta yfir í nýja vefinn
- Opnið Stillingar samþykkta.
- Takið hakið úr Nota eldri vef.
- Veljið Opna Samþykktavef og staðfestið að innskráning virki.
Tenglar í tölvupóstum til samþykkjenda vísa nú á nýja vefinn.
Algengar villur eftir uppfærslu
| Villuboð á vefnum | Lausn |
|---|---|
| Aðgangur að Business Central krefst viðbótarsamþykkis eða innskráningar. | Samþykki stjórnanda vantar. Sjá skref 1. |
| Þú hefur ekki nauðsynlegar heimildir í Business Central til að framkvæma þessa aðgerð. | Notandann vantar RDN APPROVER. Sjá skref 2. |
| Þú hefur ekki aðgang að Microsoft umhverfinu … | Notandinn er ekki til í Business Central hjá fyrirtækinu, eða ytri notandi hefur ekki samþykkt gestaboðið. Sjá skref 3. |
| Engar beiðnir birtast | Notandinn er ekki í samþykkjendahópi, eða ekkert bíður hans. |
Önnur villuboð eru útskýrð í Úrræðaleit.