Hoppa yfir í efnið

Varpanir með afmörkunum

Í eSkjal Kenni dálknum í vörpunum er hægt að slá inn ekki bara nákvæmt vörunúmer, heldur einnig afmörkun (síu) með sömu reglum og BC notar annars staðar í kerfinu (t.d. þegar síað er í listum). Þannig má láta eina vörpunarlínu ná yfir marga vöruliði og fækka línum verulega.

Þessar leiðbeiningar útskýra afmarkanir í vörpunum, í hvaða röð kerfið velur vörpun, og hvernig nota má Skattflokk og Bókunarupplýsingar til að aðgreina enn frekar.

Athugið

Afmarkanir virka aðeins á fyrsta stigs afmörkun (eSkjal Kenni) á vöruvörpunum. Aukaafmarkanir (eSkjal Kenni 2 — Bókunarupplýsingar, Auðkenni skjals, Eiginleiki vöru) krefjast nákvæmrar samsvörunar á vörunúmeri og styðja ekki síur.

Afmarkanir í eSkjal Kenni

Gildið í eSkjal Kenni er notað sem BC-sía á vörunúmerið sem kemur á rafræna reikningnum. Því er hægt að nota hvaða gilda BC-síu sem er — ekki eingöngu *.

Afmörkun Merking
* Passar við allt — öll vörunúmer sem ekki eiga sértækari línu
100* Byrjar á 100
*100 Endar á 100
*MAT* Inniheldur MAT
A*\|B* Byrjar á A eða B
V001*&*B Byrjar á V001 og endar á B
100..200 Á bilinu 100 til 200
<>0 Allt nema 0

Forgangsröð þegar varpað er

Fyrir hverja reikningslínu leitar kerfið að vörpun í þessari röð og notar fyrstu sem passar:

  1. Nákvæm samsvörun á vörunúmeri (eSkjal Kenni = vörunúmerið nákvæmlega). Innan nákvæmrar samsvörunar er lína með aukaafmörkun (eSkjal Kenni 2 — Bókunarupplýsingar, Auðkenni skjals eða Eiginleiki vöru) tekin fram yfir línu án hennar, og lína með samsvarandi Skattflokki tekin fram yfir línu með auðum Skattflokki.
  2. Afmörkun (sía) — kerfið fer í gegnum línur með síu í eSkjal Kenni og notar þá fyrstu sem passar. Fyrst er leitað meðal lína með samsvarandi Skattflokki, síðan meðal lína með auðum Skattflokki.
  3. Ef ekkert passar er reynt að stofna vörpun sjálfkrafa út frá vörunúmeri birgis á vörunni í BC.

Mikilvægt um forgang milli sía

Þegar fleiri en ein sía gæti passað velur kerfið fyrstu línuna í stafrófsröð eftir eSkjal Kenni — ekki þá „sértækustu“. Táknið * raðast á undan tölustöfum og bókstöfum, þannig að stök * lína getur skyggt á sértækari mynstur innan sama Skattflokks. Til að aðgreina áreiðanlega skal nota Skattflokk (sjá að neðan) eða nákvæmar línur fyrir undantekningar, frekar en að treysta á forgang milli mynstra.

Þrjú VSK-þrep með Skattflokki

Í eDocs fylgir Skattflokkur hverri vörulínu úr XML-skjalinu. Því má nota Skattflokk dálkinn til að búa til eina * línu á hvert VSK-þrep. Þá þarf engar sértækar vörulínur — eDocs beinir sjálfkrafa á réttan fjárhagslykil eftir Skattflokki vörunnar.

Þetta virkar áreiðanlega vegna þess að Skattflokkurinn afmarkar hverja línu við nákvæmlega einn VSK-flokk, svo engin tvíræðni myndast.

Skattflokkur VSK% Merking
Z 0% Undanþegið / matvæli
AA 11% Lægra þrep
S 24% Staðlað þrep

Dæmi — þrjár * línur, ein á hvert VSK-þrep:

eSkjal aðili eSkjal Tegund eSkjal Kenni BC tegund BC Kenni 1 Skattflokkur
Birgir A Vara * Fjárhagur 5610 Z
Birgir A Vara * Fjárhagur 5611 AA
Birgir A Vara * Fjárhagur 5612 S

Þegar reikningur kemur inn les eDocs Skattflokk af hverri línu og finnur samsvarandi vörpun. Þannig nægja þrjár línur fyrir allan birginn í stað hundraða einstaklingslægra lína.

Varpanir með Skattflokki

Samsetning afmörkunar og Skattflokks

Blanda má saman — t.d. ef ákveðinn vöruflokkur á alltaf á sérstakan lykil óháð VSK:

eSkjal aðili eSkjal Tegund eSkjal Kenni BC tegund BC Kenni 1 Skattflokkur
Birgir A Vara 076* Fjárhagur 5620 S
Birgir A Vara * Fjárhagur 5610 Z
Birgir A Vara * Fjárhagur 5611 AA
Birgir A Vara * Fjárhagur 5612 S

Varúð við blöndun

Þar sem Skattflokkur er metinn fyrst getur * lína með Skattflokki tekið fram yfir sértækara mynstur án Skattflokks. Ef 076* línan á að gilda fyrir 24% vörur skal setja sama Skattflokk (S) á hana svo hún lendi í sömu yfirferð og *-línan fyrir 24%. Öruggast er að nota nákvæma vörulínu fyrir raunverulegar undantekningar.

Bókunarupplýsingar sem aukaafmörkun

Bæta má annarri vídd við nákvæmar vörulínur með Bókunarupplýsingum (e. Accounting Cost) — kostnaðarmiðanum sem kemur á reikningslínunni úr XML. Þannig getur sama vörunúmer farið á mismunandi fjárhagslykla eftir kostnaðarmiða birgisins.

Á vörpunarlínunni eru þá fyllt út:

  • eSkjal Tegund 2 = Bókunarupplýsingar
  • eSkjal Kenni 2 = kostnaðarmiðakóðinn (t.d. MKT, IT)

Lína með Bókunarupplýsingum hefur forgang yfir línu án þeirra.

Dæmi — sama vara á mismunandi lykla eftir kostnaðarmiða:

eSkjal aðili eSkjal Tegund eSkjal Kenni BC tegund BC Kenni 1 eSkjal Tegund 2 eSkjal Kenni 2
Birgir A Vara 30017391 Fjárhagur 5620 Bókunarupplýsingar MKT
Birgir A Vara 30017391 Fjárhagur 5610 (tómt — gildir fyrir allt annað)

Þegar reikningur kemur inn með vörunúmer 30017391:

  • Ef línan hefur Bókunarupplýsingar = MKT → fer á 5620
  • Annars → fer á 5610

Bókunarupplýsingar í línu

Takmörkun

Bókunarupplýsingar virka aðeins með nákvæmri samsvörun á vörunúmeri. Ekki er hægt að nota þær með afmörkunum eins og * eða 30017*.

Tengt efni