Hoppa yfir í efnið

Uppsetning netþjóns

Netþjónauppsetningin skilgreinir tengingu við ytri gagnageymslur. Töfluuppstillingar notast svo við þessar uppsetningar. Hægt er að setja upp margar tengingar til að samstilla gögn við mismunandi gagnagrunna. Til að opna listann er hægt að leita að „SQL Connector uppsetning netþjóns" eða velja "Uppsetning netþjóns" aðgerð aðgengileg á flestum síðum kerfisins.

Netþjónalisti

Listinn sýnir allar uppsettar tengingar ásamt helstu upplýsingum. Athugið að best er að eiga við þessar uppýsingar í gegnum spjaldið sem opnast þegar ýtt er á frumlykil færslu í listanum.

Netthjonalisti

Dálkur Lýsing
Frumlykill Einstakur kóði sem auðkennir þessa tengingu (t.d. SQLDEV, PROD)
Lýsing Frjáls lýsing á tengingunni
Hámarksfjöldi endurtekninga Hversu oft á að reyna misheppaða sendingu aftur
Netþjónn Slóð netþjóns
Gagnagrunnur Heiti gagnagrunnsinns
Notandanafn Notandanafn notað fyrir auðkenningu
App Path Slóð Azure Function endapunkts
Treysta vottorði netþjóns Hvort á að treysta sjálfundirrituðu vottorði (fyrir þróunarumhverfi)
Senda bilunartilkynningu til Netfang sem fær tilkynningar um villur

Aðgerðir á listasíðu

Aðgerð Lýsing
Prófa tengingu Prófar tengingu við netþjón í gegnum valda flutningsaðferð

Einnig er hægt að fara beint á samstillingartöflur, vinnsluskrá, eyðingaskrá og sjálfvirkni frá listasíðunni.

Upplýsingasvæðið (FactBox) sýnir lista yfir töflur sem tengdar eru þessari netþjónauppsetningu.

Samstillingaryfirlit

Í upplýsingakassa eru sýnilegar uppsettar töflur fyrir valinn netþjón

NetthjonalistiSamstilltarToflur.png

Netþjónaspjald

Smellt er á frumlykil færslu í listanum til að opna ítarlegt uppsetningarspjald.

NethjonnSpjald.png

Almennt

Reitur Lýsing
Frumlykill Einstakur kóði sem auðkennir þessa tengingu (t.d. SQLDEV, PROD)
Lýsing Frjáls lýsing á tengingunni
Snið gagnapakka Snið á gagnapökkum. Sem stendur er aðeins T-SQL stutt
Flutningsaðferð Hvernig gagnapakkar eru sendir. Sem stendur er aðeins Azure-fall stutt

Netþjónatenging

Reitur Lýsing
Netþjónn Slóð netþjóns
Gagnagrunnur Heiti gagnagrunns
Notandanafn SQL notandanafn. Skilja eftir autt ef Managed Identity er notað
Lykilorð SQL lykilorð (geymt í öruggri geymslu, sýnt sem ***). Skilja eftir autt ef Managed Identity er notað
Treysta vottorði netþjóns Hvort á að treysta sjálfundirritaðu vottorði (fyrir þróunarumhverfi)
Tengistrengur Annar valkostur: slá inn fullan tengingarstreng í stað einstakra reita (geymt í öruggri geymslu)

Azure Function

Reitur Lýsing
Slóð falls Slóð Azure Function endapunkts (t.d. https://bc2sql-func.azurewebsites.net/api/ExecuteSQLCommand)
Forritslykill API-lykill Azure Function til auðkenningar (geymt í öruggri geymslu, sýnt sem ***). Lykilinn er að finna í Azure Portal undir Function App → App Keys → Host keys (eða Function keys)

Tilkynningar & endurtekningar

Reitur Lýsing
Senda bilunartilkynningu til Netfang sem fær tilkynningar þegar samstilling mistekst
Tilkynningastig Hvenær á að senda tilkynningar: Aðeins bilanir (sjálfgefið), Allt eða Ekkert
Tilkynningaaðferð Leið tilkynninga. Sjálfgefið: Tölvupóstur
Hámarksfjöldi endurtekninga Fjöldi endurtilrauna áður en hætt er við misheppaða sendingu
Stöðva pakka við villu Þegar virkt eru óafgreiddar færslur fyrir pakkagerð stöðvaðar ef sú pakkagerð á þegar misheppnaðar færslur
Varðveisludagar vinnsluskrár Hversu lengi vinnsluskráarfærslur eru geymdar. Stillt sem 0 til að slökkva á sjálfvirkri hreinsun. (sjálfgefið: 30 dagar)
Varðveisludagar eyðingaskrár Hversu lengi eyðingaskráarfærslur eru geymdar. Stillt sem 0 til að slökkva á sjálfvirkri hreinsun. (sjálfgefið: 30 dagar)

Ítarlegar stillingar

Reitur Lýsing
HTTP tímamörk (ms) Hámarkstími til að bíða eftir svari frá Azure Function (sjálfgefið: 300.000 ms / 5 mínútur, lágmark: 5.000 ms)
Þjappa gagnapakka Þegar virkt er gagnapakkinn GZip-þjappaður áður en hann er sendur
Tugabrotsnákvæmni SQL DECIMAL precision fyrir tugabreytireiti (sjálfgefið: 38, bil: 1–38)
Tugabrotskvarði SQL DECIMAL scale fyrir tugabreytireiti (sjálfgefið: 20, bil: 0–38)

Forsendur lotustærðar

Stillingar notaðar til að útbúa tillögur að lotustærð.

Reitur Lýsing
Markstærð pakka (KB) Hámarksstærð gagnapakka sem notuð er við mat á lotustærð (sjálfgefið: 4.096 KB / 4 MB, lágmark: 256 KB)
Öryggismörk % Öryggishlutfall sem dregið er frá stærðar- og tímamörkum við útreikning (sjálfgefið: 20%, bil: 0–50%)
Flutningshraði (bæti/ms) Áætlaður flutningshraði notaður við tímamarkatengt mat á lotustærð (sjálfgefið: 500 bæti/ms, lágmark: 50)
Sjálfgefin varalota Sjálfgefin lotustærð þegar ekki er hægt að reikna betra gildi (sjálfgefið: 200, lágmark: 1)

Aðgerðir á spjaldi

Aðgerð Lýsing
Prófa tengingu Prófar tengingu við netþjón í gegnum valda flutningsaðferð

Öryggi auðkenna

  • Lykilorð, API-lyklar og tengistrengir eru aldrei geymdir sem hreinn texti í gagnagrunninum.
  • Þau eru geymd í Isolated Storage, lyklageymslu í Business Central sem er sérstaklega hugsuð fyrir leynigildi.
  • Viðmótið sýnir *** þegar leynigildi hefur verið sett, og auðan reit þegar ekkert er skráð en er ekki útflytjanlegt.