Innskráning og útskráning
Innskráning
- Opnaðu vefslóð Samþykktavefsins í vafra, approvals.ruedenet.net.
-
Á forsíðunni smellir þú á Innskráning.

Í síma birtist sama forsíða í þrengra útliti.

-
Skráðu þig inn með Microsoft aðganginum þínum (Microsoft Entra ID). Þetta er sami aðgangur og þú notar fyrir Office/Microsoft 365.
- Eftir innskráningu opnast listinn Samþykktabeiðnir.
Ekki þarf sérstakt lykilorð
Samþykktavefurinn notar Microsoft innskráningu. Það er ekkert sérstakt lykilorð fyrir vefinn og ekkert sérstakt Business Central lykilorð. Vefurinn sækir gögnin í Business Central í þínu nafni og með þínum heimildum.
Innskráningin gildir í allt að 14 daga. Ef þú hefur skráð þig inn áður og aðgangurinn er enn virkur ferðu beint inn á listann án þess að þurfa að slá inn neitt.
Skipta um notanda
Ef þú ert með fleiri en einn Microsoft aðgang smellir þú á Skipta um notanda neðst í valmyndinni til vinstri. Þá birtist gluggi þar sem þú velur hvaða aðgang á að nota.
Útskráning
Smelltu á Skrá út neðst í valmyndinni. Staðfestu í glugganum sem birtist.

Aðgangur að skjölum
Þú sérð aðeins þau skjöl sem bíða samþykktar hjá þér — annaðhvort beint á þig eða á samþykkjendahóp sem þú tilheyrir. Uppsetning samþykkjenda fer fram í Business Central, sjá Samþykkjendahópar.
Tenging rofnar
Samþykktavefurinn er í stöðugu sambandi við netþjóninn. Ef sambandið rofnar (t.d. ef tölvan fer í svefn eða netið dettur út) birtist skilaboðaskjár sem reynir sjálfkrafa að tengjast aftur. Ef það tekst ekki smellir þú á Reyna aftur eða endurhleður síðunni.