Dreifisvæði
Dreifisvæði er notað til að tengjast við skeytamiðlara.

| Reitur / Aðgerð | Lýsing |
|---|---|
| Kóði | Kóði dreifisvæðis. |
| eSkjal sjálfgefinn staðall | Sjálfgefinn staðall fyrir rafræna reikninga (BII, NES, EDI, Custom). |
| Tegund | Tegund skeytamiðlara (t.d. FTP Skráarflutningur, InExchange vefþj., o.fl.). |
| Sendingarhamur Unimaze | Tilgreinir hvernig skjöl eru send til Unimaze: sem hrátt skjal í gegnum REST (Skjalainnihald (REST)), sem skipulögð JSON-lýsigögn í gegnum REST (JSON-lýsigögn (REST)) þar sem Unimaze sér þá um að koma skjalinu í form stutt af viðtakanda, eða í gegnum eldra SOAP-viðmót (SOAP (Eldra)). Sjá JSON-lýsigögn sendingar fyrir frekari upplýsingar. |
| Hunsa reikningsnákvæmni | Þegar kveikt er á þessum valkosti mun kerfið senda ignoreBillingAccuracy breytu með reikningum og kreditreikningum sem víkur frá nákvæmnisprófunum hjá Unimaze. Sést aðeins á Unimaze dreifisvæðum þar sem JSON-lýsigögn (REST) er valið undir Sendingarhamur Unimaze. |
| Varanetfang | Segir til um hvort varanetfang sé krafa byggt á stillingum dreifisvæðisins. |
| XSLT til að nota | Til að geta valið sitt eigið XSLT. |
| Senda viðhengi | Ef hakað er við, sendist viðhengi með rafrænum reikningi. |
| Sjálfvirk vinnsla | Ef hakað er við, eru skeyti sótt sjálfvirkt þegar vinnuskjal rafrænna reikninga er opið. |
| Hliðrun | Fyrir EDI skeyti, til að bæta við bil á milli reita. |
| Nota eDocs exchange | Ekki notað í Saas. |
| eDocs vefþj. slóð | Ekki notað í Saas. |
| Diskaskráarsafn (inn) | Fyllist sjálfkrafa þegar tegund er valin. |
| Diskráarsafn (inn) - lesnar | - |
| Diskaskráarsafn (út) | Fyllist sjálfkrafa þegar tegund er valin. |
| Diskskráarsafn (inn) - á villu | - |
| Sækja skrár | Sækir öll tiltæk rafræn skjöl frá skeytamiðlara. |
| Skrá skjal í BC | Reynir að stofna innkaupapantanir eða reikninga út frá sóttum rafrænum skjölum. |
| Senda skrár | Sendir alla tiltæka rafræna reikninga út til skeytamiðlara. |
| Uppfæra auðkenni | Uppfæra notandanafn og lykilorð fyrir dreifisvæði. |
| Athuga móttakendur | Staðfestir móttakendur fyrir alla viðskiptamenn sem eru tengdir við þetta dreifisvæði. Sjá Athuga og úthluta dreifisvæði fyrir frekari upplýsingar. |
| Prófa tengingu | Prófar tengingu við dreifisvæði og skilar meldingu um árangur. |
| Opna vefportal | Opnar vefgátt fyrir viðeigandi dreifisvæði ef það er InExchange, Unimaze eða Deloitte. |