Hoppa yfir í efnið

Senda rafrænan reikning til viðskiptavina

Á við sölureikninga, sölukreditreikninga, þjónustureikninga og þjónustukreditreikninga.

1. Viðskiptamaður óskar eftir að fá send rafræn skjöl.

Það þarf að vita hvaða tegund af eSkjali viðskiptavinurinn getur tekið á móti (BII, NES, EDI).

Svo þarf að fylla út í reitina undir flipanum "Rafræn skjöl" á viðskiptamannaspjaldi. Sjá nánari lýsingu hér.

2. Bóka sölureikning:

Búa til og bóka venjulegan sölureikning.

alt text

3. Sölureikningurinn stofnast rafrænt:

Ef viðskiptamannaspjaldið er fyllt út fyrir rafræn skjöl þá myndast sjálfkrafa rafrænn reikningur á útleið.

Hægt er að skoða það í vinnuskjali rafrænna reikninga.

alt text

4. Senda rafrænan reikning:

Reikningurinn stofnast með stöðu "Sendist".

Notandinn þarf að velja "Heim - Senda skjöl f. öll dreifisvæði" til þess að reikningurinn fari út til skeytamiðlara. Hægt er að setja upp sjálfvirkni í vinnsluraðarfærslu. Sjá nánari lýsingu hér.

Þá breytist staðan í "Sending OK" og rafræni reikningurinn færist undir stöðu "Lokið" í vinnuskjalinu.

alt text

Hægt er að opna rafrænan reikningi með því að velja Aðgerðir - Sækja rafrænt skjal.

Viðhengi upprunaskjalsins fylgja rafræna reikningnum. Einnig er hægt að bæta við viðhengjum áður en reikningurinn er sendur. Sjá nánari lýsingu hér.

5. Tryggja að allir bókaðir reikningar stofnist sjálfvirkt í vinnuskjalinu:

Ef umfangið á bókuðum reikningum á hverjum tíma er töluvert, getur verið að reikningur stofnist ekki rafrænt. Til að koma í veg fyrir það er hægt að setja upp vinnsluraðarfærslu sem athugar reglulega ef reikningur hefur verið bókaður en ekki stofnaður rafrænt.

Til þess er búin til vinnsluraðarfærsla á codeuniti númer 10041563.

alt text