Úrræðaleit
Algeng skilaboð á Samþykktavefnum og hvað þau þýða.
Tenging við Business Central
| Skilaboð | Skýring | Hvað á að gera |
|---|---|---|
| Ekki tókst að sækja umhverfi og fyrirtæki. Þetta er líklega tímabundið. | Tímabundin villa í sambandi við Business Central. | Smelltu á Reyna aftur. |
| Aðgangur að Business Central er útrunninn eða vantar samþykki. Skráðu þig inn aftur. | Innskráningin er útrunnin. | Smelltu á Skrá inn aftur. |
| Aðgangi að Business Central var hafnað fyrir þennan notanda eða leigjanda. | Notandinn hefur ekki aðgang að Business Central. | Hafðu samband við kerfisstjóra. |
| Ekki tókst að sækja umhverfi og fyrirtæki. Þjónustan svaraði óvænt — athugaðu uppsetningu. | Óvænt svar frá þjónustunni. | Hafðu samband við Rue de Net. |
| Engin Business Central umhverfi fundust fyrir þennan leigjanda. | Ekkert Business Central umhverfi er tengt þessu Microsoft umhverfi. | Athugaðu hvort rétt Microsoft umhverfi sé valið. |
| Aðgangur að Business Central krefst viðbótarsamþykkis eða innskráningar. | Samþykki vantar fyrir aðgangi vefsins að Business Central. | Fylgdu leiðbeiningunum eða hafðu samband við kerfisstjóra. |
Heimildir
| Skilaboð | Skýring |
|---|---|
| Fyrirtæki er ekki sett upp fyrir vefsamþykktir | Samþykktakerfi Rue de Net er ekki virkt í fyrirtækinu. Sjá Uppsetning samþykktakerfis. |
| Þú hefur ekki nauðsynlegar heimildir í Business Central til að framkvæma þessa aðgerð. | Notandann vantar samþykktarheimildir. Sjá Uppsetning notanda fyrir vef. |
| Þú hefur ekki heimild til að skoða þessa síðu. | Innskráður notandi hefur ekki aðgang að síðunni. |
Microsoft umhverfi
| Skilaboð | Skýring |
|---|---|
| Aðgangur að Microsoft umhverfi vantar | Þú hefur ekki lengur aðgang að umhverfinu. Sjá Bæta við Microsoft umhverfi. |
| Engin Microsoft umhverfi | Ekkert umhverfi er skráð á þig. Bættu við umhverfi með + hnappinum. |
Tenging við netþjón
| Skilaboð | Skýring | Hvað á að gera |
|---|---|---|
| Tengist aftur við netþjón... | Sambandið rofnaði og vefurinn reynir að tengjast aftur. | Bíddu í nokkrar sekúndur. |
| Endurtenging mistókst. | Ekki tókst að tengjast aftur. | Smelltu á Reyna aftur eða endurhladdu síðunni. |
| Netþjónninn gerði hlé á setunni. | Setan var sett í bið, t.d. eftir langan aðgerðaleysistíma. | Smelltu á Halda áfram. |
| Ómeðhöndluð villa hefur átt sér stað. | Óvænt villa. | Smelltu á Endurhlaða. |
Aðgerðir á skjölum
| Skilaboð | Skýring |
|---|---|
| Villa: … | Business Central hafnaði samþykkt eða höfnun. Textinn kemur frá Business Central. |
| Villa við að senda athugasemd | Ekki tókst að vista athugasemdina. |
| Villa við að úthluta samþykkt | Framsending mistókst. |
| Villa við að uppfæra vídd | Ekki tókst að vista nýtt víddargildi. |
| Villa við að uppfæra línu | Ekki tókst að vista breytingu á línu. |
| Villa við aðgerð á línu | Samþykkt eða höfnun línu mistókst. |
Tómir listar
| Skilaboð | Skýring |
|---|---|
| Engin skjöl til samþykktar | Engin skjöl bíða samþykktar hjá þér í völdu fyrirtæki. |
| Engin bókuð skjöl | Engir bókaðir reikningar fundust. |
| Engar athugasemdir enn. | Engar athugasemdir eru á skjalinu. |
| Engin viðhengi | Ekkert viðhengi er á skjalinu. |
| Engin fyrri skjöl fundust | Engir fyrri reikningar frá þessum lánardrottni. |
| Engin fyrirtæki í boði | Ekkert fyrirtæki er aðgengilegt í völdu umhverfi. |
Algengar spurningar
Af hverju sé ég ekki reikning sem ég veit að var sendur á mig? Athugaðu hvort rétt fyrirtæki sé valið í neðstu stikunni. Athugaðu einnig hvort einhver annar í samþykkjendahópnum hafi þegar afgreitt hann — kveiktu þá á Sýna allar stöður.
Af hverju eru aðgerðahnapparnir gráir? Skjalið er ekki með stöðuna Opið, eða aðgerð er þegar í gangi.
Af hverju hverfur reikningurinn þegar ég sendi hann áfram? Framsending færir samþykktina á annan notanda; þú ert þá ekki lengur samþykkjandi.
Get ég breytt upphæð á reikningi? Nei. Á vefnum er hægt að breyta víddum, vöru-/lyklanúmeri og lýsingu línu. Upphæðum er breytt í Business Central.
Frekari aðstoð
Hafðu samband við kerfisstjórann þinn eða Rue de Net á ruedenet.is.