Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Vextir og vanskilagjald

Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa. Bankinn reiknar dráttarvexti og vanskilagjald á ógreiddar kröfur. Bankakerfi sendir reglurnar með hverri kröfu, og þú velur þær hér.

Tilgangur

Ef allir reitir um vexti og vanskilagjald eru tómir reiknast hvorki dráttarvextir né vanskilagjald á kröfur. Þú getur sett reglurnar á þremur stöðum. Sá fyrsti sem á við gildir:

  1. Innheimtuauðkenni, ef ítarleg uppsetning innheimtuauðkenna er virk og auðkenni passar við bankareikning og greiðslumáta kröfubunkans.
  2. Viðskiptamannastillingar, ef viðskiptamaðurinn hefur þær.
  3. RdN Bankareikningur, uppsetning bankareikningsins sem innheimtir kröfuna.

Forsendur

  • Kröfur eru settar upp.
  • Þú veist hvaða dráttarvexti og vanskilagjald fyrirtækið hefur samið um við bankann.

Heimildir

Þú þarft heimild til að breyta bankareikningum og RdN Viðskiptamannastillingar.

Skref

  1. Opnaðu bankareikninginn og veldu aðgerðina Uppsetning Bankakerfis. Síðan RdN Bankareikningur opnast.

    Vextir og vanskilagjald á bankareikningi

  2. Veldu í Vanskilavextir:

    • Engir vextir: bankinn reiknar enga dráttarvexti.
    • Reikna vexti: dráttarvextir reiknast samkvæmt dráttarvaxtatöflu Seðlabankans.
    • Sérstakur kóti: ef samið hefur verið við bankann um aðra dráttarvexti. Skráðu þá kóðann frá bankanum í Sérstakur kóti vanskilavaxta.
  3. Veldu í Tegund vanskilagjalds hvort vanskilagjaldið er upphæð eða prósenta og hvort það reiknast frá gjalddaga eða eindaga, til dæmis Eindagi - Gildi eru upphæðir. Veldu Ekkert vanskilagjald ef ekkert gjald á að leggjast á.

  4. Skráðu Fyrsta vanskilagjald, til dæmis 950 ef gildin eru upphæðir eða 10 ef þau eru prósentur.

  5. Skráðu í Dagar fyrir fyrstu vanskil hve mörgum dögum eftir gjalddaga eða eindaga gjaldið leggst á.

  6. Ef annað vanskilagjald á að leggjast á síðar, skráðu Seinna vanskilagjald og Dagar fyrir aðra vanskil.

  7. Ef aðrar reglur eiga að gilda fyrir suma viðskiptamenn, fylltu út sömu reiti í viðskiptamannastillingum þeirra.

Staðfesta

Myndaðu kröfu og opnaðu kröfuspjaldið. Reglurnar um vexti og vanskilagjald sjást á kröfunni og eru sendar í bankann með henni. Breytingar á stillingum hafa ekki áhrif á kröfur sem þegar hafa verið myndaðar.