Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Aðstoð

Hér eru skilaboðin sem Bankakerfi birtir, flokkuð eftir því hvar þú rekst á þau, ásamt skýringu og því sem á að gera. Þar sem skilaboð innihalda breytilegt gildi, til dæmis númer kröfu eða bankareiknings, stendur „…“. Villur frá bankanum birtast oftast í reit á línunni, til dæmis Samskipta villa lýsing á kröfu eða Villa í útgreiðslubók. Neðst á síðunni eru vandamál sem koma upp án skilaboða.

Sum skilaboð eru ekki þýdd og birtast á ensku líka í íslensku viðmóti. Það er tekið fram við þau.

Kröfur: stofna og senda

Skilaboð sem geta birst þegar kröfur eru myndaðar í kröfubunka og sendar í bankann með Framkvæma aðgerðir. Sjá Stofna kröfur og senda í banka.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Það eru ójafnaðar kredit færslur bakvið kröfuna sem þarf að jafna handvirkt. Viltu opna viðskiptamannafærslurnar og jafna áður en kröfur eru myndaðar?Spurning, ekki villa. Viðskiptamaður á kreditfærslu sem er ekki jöfnuð á móti reikningi, svo krafan yrði hærri en það sem hann skuldar. Birtist þegar Athuga ójafnaðar kreditfærslur er valið í Mynda kröfur.Veldu Já, jafnaðu kreditfærsluna á móti reikningnum og veldu svo Mynda kröfur aftur.
Kennitala viðskiptamanns stenst ekki vartölupróf: …Kennitalan á kröfunni er ekki gild. Hún er afrituð af viðskiptamanninum þegar krafan er mynduð. Engin krafa í bunkanum fer í bankann fyrr en þetta er lagað.Leiðréttu kennitöluna á viðskiptamannaspjaldinu, eyddu kröfunni úr bunkanum, veldu Mynda kröfur og svo Framkvæma aðgerðir.
Eindagi er á undan gjalddaga á kröfu Nr. …Eindagi kröfunnar er á undan Gjalddagi. Engin krafa í bunkanum fer í bankann fyrr en þetta er lagað.Opnaðu kröfuna, leiðréttu eindagann og veldu Framkvæma aðgerðir aftur. Sjá Dagsetningar á kröfum.
Kennitala kröfuhafa verður að vera uppgefin í Stofngögnum eða á InnheimtuaðilaBankareikningurinn sem er Innheimtuaðili bunkans er ekki með 10 stafa kennitölu fyrirtækisins.Skráðu kennitölu fyrirtækisins á bankareikninginn. Sjá Bankareikningur.
Bankanúmer kröfu … á að vera 4 stafirÚtibúsnúmer bankareikningsins sem er innheimtuaðili er ekki 4 stafir.Leiðréttu útibúsnúmerið á bankareikningsspjaldinu.
Ekki fannst vefþjónustu … fyrir bankareikning …Bankareikningurinn er ekki tengdur bankaþjónustu, svo kerfið veit ekki hvernig á að tala við bankann.Veldu bankaþjónustu á bankareikningnum. Sjá Bankaþjónustur. Hafðu samband við Rue de Net ef það gengur ekki.
Villa frá bankanum, sjá …Birtist í Samskipta villa lýsing á kröfu. Bankinn svaraði ekki eða svarið var ólæsilegt.Veldu Framkvæma aðgerðir aftur. Ef villan helst skaltu hafa samband við Rue de Net og gefa upp númer kröfunnar.
Fyrsta aðgerð á hverja kröfu verður að vera stofnun, kröfu nr. …Þú reyndir að senda aðra aðgerð á kröfu sem hefur ekki verið stofnuð í bankanum.Breyttu kröfunni beint, eða sendu stofnunina fyrst með Framkvæma aðgerðir.
Bunkanum verður skipt niður áður en kröfur eru stofnaðar. Notið Ctrl+Shift+S til að skipta bunkanum upp núna.Í bunkanum eru fleiri kröfur en Hámarksstærð kröfubunka leyfir.Veldu Skipta bunka eða láttu kerfið skipta honum.
Uppsetning viðskiptamanns … fannst ekki fyrir viðskiptamann …Kóðinn í viðskiptamannastillingum á viðskiptamanninum er ekki til.Stofnaðu stillingarnar eða veldu annan kóða á viðskiptamanninum. Sjá Viðskiptamannastillingar.
Greiðsludreifingu vantar fyrir greiðsluskilmála …Greiðsluskilmálarnir á sölupöntuninni hafa ekki Fjöldi gjalddaga og Tímabil milli gjalddaga.Fylltu reitina út eða veldu aðra greiðsluskilmála. Sjá Dreifa greiðslum sölupöntunar.

Kröfur: breyta, dreifa og fella niður

Skilaboð sem geta birst þegar kröfu sem er komin í bankann er breytt, dreift eða hún felld niður. Sjá Uppfæra kröfu, Dreifa kröfu á fleiri gjalddaga og Fella niður kröfu.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Ekki er hægt að breyta gjaldaga á kröfu sem hefur verið stofnuð í banka. Vinsamlegast fellið kröfuna niður og stofnið nýjaGjalddagi er fastur eftir að krafan er send. Eindagi og Niðurfellingardagur má uppfæra.Breyttu eindaganum, eða felldu kröfuna niður og stofnaðu nýja með réttum gjalddaga.
Krafa hefur ekki enn verið stofnuðKrafan hefur ekki verið send í bankann, svo það er ekkert að uppfæra eða fella niður.Sendu kröfuna með Framkvæma aðgerðir, eða eyddu henni úr bunkanum ef hún á ekki að fara.
Það er ekki hægt að breyta kröfu sem hefur ekki verið send í bankannÞú valdir uppfærslu eða niðurfellingu á vinnuskjali krafna fyrir kröfu sem bankinn hefur ekki fengið.Sendu stofnunina fyrst eða eyddu kröfunni úr bunkanum.
Það er ekki mögulegt að velja Búa til aðgerðStofnun er aðeins valin þegar krafa er mynduð.Veldu uppfærslu eða niðurfellingu.
Fjöldi krafna verður að vera 2 eða fleiriÞú skráðir færri en tvær kröfur þegar kröfu var dreift.Skráðu 2 eða fleiri.
Upphæð verður að vera jöfn eftirstöðvum ef dreifa á kröfu.Krafan hefur verið greidd að hluta.Ekki er hægt að dreifa kröfu sem hefur verið greidd að hluta.
Engar kröfulínur fundust fyrir kröfu …. Ekkert til að dreifa.Krafan tengist engri viðskiptamannafærslu.Ekkert er til að skipta. Athugaðu kröfuna á kröfuspjaldinu.
Þessi krafa hefur verið send í bankann og ætti ekki að vera eytt nema það sé nauðsynlegt. Viltu eyða kröfunni?Spurning. Ef kröfu er eytt í Business Central er hún enn til í bankanum og viðskiptamaðurinn sér hana áfram.Veldu Nei og felldu kröfuna frekar niður, svo hún hverfi líka úr bankanum.
Ekki er hægt að eyða kröfu …Þú svaraðir Nei við spurningunni hér að ofan og kröfunni var ekki eytt.Ekkert. Felldu kröfuna niður ef hún á ekki að gilda.
Bunki er lokaður. Opnaðu hann til að breyta hlutagreiðslustillingum fyrir allar kröfur í bunkanum.Þú breyttir Hlutagreiðsla leyfileg á bunka sem er lokaður.Opnaðu bunkann, breyttu stillingunni og veldu Framkvæma aðgerðir til að senda breytinguna. Sjá Hlutagreiðslur krafna.
Ekkert til að uppfæra.Allar kröfur í bunkanum hafa þegar þessa hlutagreiðslustillingu.Ekkert.

Kröfugreiðslur

Sjá Sækja og bóka kröfugreiðslur.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Greiðsla kröfu … var gerð áður en bókunardagsetning skjalsins. Viltu sleppa núverandi línu?Greiðslan er eldri en reikningurinn sem hún jafnast á móti.Veldu Já til að sleppa línunni og jafnaðu hana handvirkt.
Færslum sleppt fyrir lokaðan viðskiptamann: …Viðskiptamaðurinn er lokaður og greiðslan fór ekki í inngreiðslubókina.Afléttu lokun viðskiptamannsins, eða kveiktu á Leyfa bókun á lokaða viðskiptamenn.

Útgreiðslur

Sjá Greiða lánardrottnum með millifærslu.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Bókunardagsetning verður að vera dagurinn í dag, en ekki …Greiðslur eru sendar með bókunardagsetningu dagsins í dag.Breyttu dagsetningunni á línunum.
Fylgiskjal … fyrir dagsetningu … er ekki á núlliLánardrottnalína og bankareikningslína sama fylgiskjals stemma ekki.Lagaðu upphæðina eða veldu Setja inn mismunalínur.
Banki-HB-reikn; … verður að vera 12 stafirBankareikningur lánardrottins er ekki rétt skráður.Leiðréttu bankareikninginn á lánardrottninum.
Ekki er hægt að bóka því … línur standa á villu! eða … línur hafa ekki verið sendar í bankann!Línur eru Á villu eða hafa ekki verið sendar.Lagaðu línurnar sem eru á villu eða sendu þær. Villan frá bankanum er í reitnum Villa.
… línur hafa ekki fengið staðfestingu frá bankaBankinn hefur ekki staðfest allar greiðslurnar.Veldu Athuga stöðu bunka og bókaðu aftur.
Bókin hefur ekki verið senda í bankannÞú valdir Athuga stöðu bunka áður en bókin var send.Sendu bókina fyrst.
Ef borga á í erlendum gjaldmiðli má ekkert í bókinni vera ISKBókin blandar saman erlendum og innlendum greiðslum.Færðu innlendu greiðslurnar í annan bunka. Sjá Erlendar greiðslur.
Bókin verður að vera í … en ekki …Fyrsta línan í bókinni er í annarri mynt en önnur lína.Skiptu greiðslunum í tvo bunka.
Ekki er hægt að millifæra á sama reikning og þú greiðir út afÞú valdir sama bankareikning og bókin greiðir af.Veldu annan reikning. Sjá Búa til millifærslu.
Mótreikningur tekn./kost. vantar í uppsetningu innheimtukerfisMótreikningur gjalda eða Mótreikningur vaxta vantar í stillingar útgreiðslna.Fylltu reikningana út. Sjá Setja upp útgreiðslur.
Það er aðeins leyfilegt að greiða kröfur fyrir þennan lánadrottinnLánardrottinn er stilltur á Aðeins greiða kröfur og millifærslulínan fær stöðuna Á villu.Eyddu línunni og sæktu kröfuna. Sjá Greiða kröfur úr netbanka.
Ekki tókst að staðfesta tilvist bankareikningsBankinn fann ekki reikninginn á þessa kennitölu.Athugaðu bankanúmer, höfuðbók, reikningsnúmer og kennitölu og fáðu réttar upplýsingar frá viðtakandanum. Sjá Staðfesta bankareikning.
Sumar línur hafa ekki staðfestan bankareikning. Fjöldi: …Í bókinni eru línur þar sem bankareikningurinn var ekki staðfestur.Lagaðu línurnar sem eru Á villu og athugaðu aftur.
Greiðsluupplýsingar eru bara settar á bankareikningslínurÞú valdir lánardrottnalínu.Veldu bankareikningslínuna. Sjá Greiðsluupplýsingar.
Kennitala kröfuhafa finnst ekki. eða Kennitala kröfuhafa röng eða bankareikningur finnst ekki.Kennitölu eða bankareikning vantar á lánardrottininn.Skráðu kennitölu og bankareikning á lánardrottininn og reyndu aftur.

Afstemming

Sjá Stemma af bankareikning og Jafna færslur handvirkt.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Stillingar afstemmingar fundust ekki fyrir bankareikning …Reiturinn RdN Stillingar - Afstemming er auður á bankareikningnum.Veldu Opna stillingar bankareiknings og fylltu hann út. Sjá Setja upp afstemmingu.
Upphæðirnar stemma ekki!Summa merktra færslna er ekki sú sama báðum megin.Athugaðu Heildarsumma merktra færslna og merktu færslu sem vantar eða taktu merki af rangri færslu.
Veldu færslur sem skal jafnaEngin færsla er merkt.Merktu færslurnar sem á að jafna.
Velja verður ReconID sem skal afturkallaMerkta færslan hefur ekki verið jöfnuð.Veldu fyrst Afmarka á jafnaðar færslur.
Engar færslur til að flytjaEngin færsla var merkt, eða allar færslur eru þegar jafnaðar.Merktu færslurnar sem á að flytja í greiðslubók. Sjá Flytja bankafærslur í greiðslubók.
Dagsetningar frá og til verða að vera valdarDagsetningu vantar þegar upphafsfærslur eru jafnaðar.Fylltu út báðar dagsetningarnar. Sjá Jafna upphafsfærslur.
Bankareikningur verður að vera valinnBankareikning vantar þegar upphafsfærslur eru jafnaðar.Fylltu út Bankareikningur.
Veljið færslur til að upphafsjafnaKveikt er á Markaðar en engin færsla er merkt.Merktu færslurnar eða slökktu á Markaðar.
Gjaldmiðill … fannst ekki á innkaupareikning …Bókaði innkaupareikningurinn er ekki í erlendum gjaldmiðli eða finnst ekki. Gengismunur er aðeins bókaður þegar fylgiskjal greiðslunnar er bókaður innkaupareikningur.Veldu Opna bókaða innkaupareikninginn til að skoða hann. Sjá Bóka gengismun.

Kreditkort

Sjá Stofna kreditkort og Stofna innkaupareikninga úr kortafærslum.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Handvirk innsetning er ekki leyfileg. Smelltu á "Flytja inn kreditkort" til að sækja kreditkort frá banka.Kort eru aðeins stofnuð með því að sækja þau frá bankanum.Veldu Flytja inn kreditkort.
Línu var sleppt án kreditkortavörpunar eða án reiknings í vörpuninniEngin vörpun er til fyrir söluaðilann, eða vörpunina vantar reikning. Línurnar eru enn merktar.Lagaðu vörpunina og keyrðu aðgerðina aftur.
Röng tegund vörpunarAðeins vörpun á lánardrottin getur stofnað innkaupareikning, og aðeins vörpun á fjárhagslykil eða bankareikning getur búið til færslubókarlínu.Veldu rofann sem passar við Tegund vörpunar.
Línu var sleppt án nafns tengds aðilaBankinn sendi ekki söluaðila með færslunni.Stofnaðu reikninginn handvirkt.
Innkaupareikningur … fyrir lánardrottin … með upphæð … á … er þegar til. Viltu opna hann í stað þess að stofna nýjan?Reikningur fyrir sama lánardrottin með sambærilega upphæð og dagsetningu fannst; bókaður eða óbókaður reikningur getur átt við.Opnaðu reikninginn og staðfestu að hann eigi við færsluna. Ef hann á ekki við geturðu hafnað fyrirspurninni og stofnað nýjan reikning.
Bókaður innkaupareikningur … fyrir lánardrottin … með upphæð … á … er þegar til. Viltu opna hann í stað þess að stofna nýjan?Samsvarandi bókaður reikningur fannst.Opnaðu hann og staðfestu að hann eigi við færsluna áður en þú stofnar annan.
Sláðu inn að minnsta kosti einn staf á undan *.Auðkenni söluaðila í vörpun er bara *.Skráðu að minnsta kosti einn staf á undan *.

Gengi

Sjá Sækja gengi og Sækja gengi sjálfvirkt.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Gefa verður upp bankareikningÞú valdir ekki bankareikning í RdN Sækja gengi.Veldu reikning í Nr..
Villa kom upp við tengingu við vefþjónustu Seðlabanka ÍslandsVefþjónusta Seðlabankans svaraði ekki.Reyndu aftur síðar.
Enginn Færibreytustrengur fannst…Færibreytustrengur vinnsluraðarfærslunnar er tómur.Skráðu færibreytustreng.
Færibreytan "Seðlabanki;Sala" er úrelt… eða Færibreytan "Seðlabanki;Kaup" er úrelt…Seðlabankinn gefur aðeins út miðgengi.Notaðu Seðlabanki;Mið.
Villa. Tómt gildi. eða Fékk ekki gildi úr annari stöðuFæribreytustrengurinn er rangt skrifaður.Athugaðu að semíkomma sé á milli hluta og ekkert bil.

Tengingar, bankanotendur og uppsetning

Sjá Fjárhagstengingar og Bankanotendur.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Slóð á Fjárhagstengingar verður að enda á "/"Það vantar / aftast í slóðina.Bættu / aftan við slóðina.
Auðkenni eru ekki gildBankaauðkenni notandans er útrunnið eða ógilt.Veldu Uppfæra bankaauðkenni og skráðu notandanafn og lykilorð aftur.
… hefur ekki réttindi til að skrá … sem notandana í bankannÞú reyndir að skrá annan notanda í bankann án stjórnandaheimildar.Láttu notandann skrá sig sjálfan á síðunni Þínir RdN bankanotendur, eða fáðu stjórnandaheimild.
✖ Enginn bankareikningur getur talað við bankaÍ samantekt uppsetningar með aðstoð. Enginn bankareikningur er nógu vel settur upp til að tala við bankann.Ljúktu við bankareikninginn. Sjá Bankareikningur.

BankDocs

BankDocs er valfrjáls viðbót við Bankakerfi. Sjá Senda reikninga í bankann og Athuga og endursenda skjöl.

SkilaboðSkýringHvað á að gera
Ekki tókst að senda neina kröfureikninga án villna. eða Ekki tókst að senda neina greiðsluseðla án villna.Ekkert skjal fór í bankann.Veldu Opna aðgerðasögu til að sjá villuna á hverju skjali.
Kennitala "…" á bankareikningi … er ógild.Kennitala á bankareikningi innheimtuaðilans er ekki 10 tölustafir.Leiðréttu kennitöluna á bankareikningnum.
Kenni viðskiptamanns "…" á kröfu … er ógilt.Kennitala greiðandans á kröfunni er ekki 10 tölustafir.Leiðréttu kennitöluna á viðskiptamanninum.
Viðskiptamaður … hefur reitinn "Sleppa kröfureikningum í banka" stilltan sem Já. eða … "Sleppa greiðsluseðlum krafna í banka" stilltan sem Já.Viðskiptamaðurinn á ekki að fá reikninga eða greiðsluseðla í netbanka.Taktu hakið af á viðskiptamannaspjaldinu ef það er rangt.
Hugsast getur að bankareikningur kröfubunkans sé ekki tengdur réttri vefþjónustu.Bankaþjónusta innheimtuaðilans er ekki rétt sett upp fyrir BankDocs.Athugaðu bankaþjónustu innheimtuaðilans. Sjá Setja upp BankDocs.
Engar kröfur fundust fyrir bunka ….Bunkinn er tómur.Veldu bunka með kröfum.
Það eru engar aðgerðasögufærslur innan síunnar.Tilraunin á engin skjöl sem mistókust, eða þú valdir engar línur.Veldu línurnar sem á að endursenda.

Vandamál án skilaboða

VandamálSkýringHvað á að gera
Engin krafa varð til þegar kröfur voru myndaðar.Eftirstöðvar færslunnar ná ekki lágmarki viðskiptamannastillingar, eða almennu Lágmarks upphæð kröfu ef engin viðskiptamannastilling er tengd, eða krafa er þegar til fyrir færsluna.Athugaðu eftirstöðvarnar og hvort krafa sé þegar til. Sjá Stofna kröfur og senda í banka.
Engin krafa varð til sjálfkrafa við bókun.Greiðslumáti reikningsins er ekki í Greiðslumáti 1 til Greiðslumáti 7, eða eftirstöðvarnar ná ekki lágmarkinu í viðskiptamannastillingu, eða almennu Lágmarks upphæð kröfu ef engin viðskiptamannastilling er tengd.Sjá Stofna kröfur sjálfkrafa við bókun.
Krafa er á villu eftir Framkvæma aðgerðir.Bankinn hafnaði aðgerðinni.Opnaðu kröfuspjaldið, lestu Samskipta villa lýsing, lagaðu orsökina og veldu Framkvæma aðgerðir aftur.
Staða kröfu breytist ekki þótt viðskiptamaðurinn hafi greitt.Kröfugreiðslurnar hafa ekki verið sóttar og bókaðar.Sæktu og bókaðu kröfugreiðslurnar og veldu svo Sækja kröfustöðu. Sjá Fylgja eftir kröfum.
Greiðsla sem var greidd í dag kemur ekki.Bankinn staðfestir greiðslur á miðnætti.Sæktu greiðslurnar aftur eftir kl. 01:00.
Vinnsluraðarfærsla sem sækir kröfugreiðslur eða gengi er í villu.Bankanotandi þess sem keyrir færsluna er ekki skráður eða bankaauðkennið er útrunnið, eða bók vantar í stillingar krafna.Opnaðu færsluna og lestu villuna. Sjá Sækja kröfugreiðslur sjálfvirkt.
Bankafærsla jafnast ekki sjálfvirkt þótt upphæðin sé rétt.Dagsetningarnar eru of langt hvor frá annarri, eða fleiri en ein færsla kemur til greina og slökkt er á Leyfa óöruggar uppástungur.Jafnaðu hana handvirkt. Sjá Jafna færslur handvirkt.
Engar færslur koma frá bankanum við afstemmingu.Tímabilið er rangt, eða bankanotandinn hefur ekki aðgang að reikningnum.Athugaðu tímabilið og aðgang notandans hjá bankanum.
Bankinn hafnaði erlendri greiðslu.Algengast er að SWIFT-kóða eða IBAN vanti á bankareikning lánardrottins.Lestu reitinn Villa á línunni og lagaðu bankareikninginn.
Skjal er Tókst í aðgerðasögu BankDocs en birtist ekki í netbankanum.RB getur hafnað skjölum eftir að bankinn tók við þeim.Hafðu samband við bankann.