Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Notkun Bankakerfis

Þessi síða er fyrir þá sem vinna með Bankakerfi daglega og sýnir hvar hverju verki er lýst.

Yfirlit

Þessi hluti lýsir verkunum sem innheimtufulltrúar, bókarar og fjármálastjórar vinna í Bankakerfi. Hver síða er eitt verk, frá upphafi til enda.

Kröfur

  1. Stofna kröfur og senda í banka: kröfubunki, kröfur á bókaða reikninga og sending í bankann.
  2. Stofna kröfur sjálfkrafa við bókun: kröfur verða til þegar sölureikningur er bókaður.
  3. Dreifa greiðslum sölupöntunar: sölupöntun skipt á fleiri gjalddaga.
  4. Dreifa kröfu á fleiri gjalddaga: einni kröfu skipt í fleiri kröfur.
  5. Fylgja eftir kröfum: opnar kröfur og kröfur í vanskilum.
  6. Uppfæra kröfu: breyta kröfu sem hefur verið send.
  7. Fella niður kröfu: fella niður kröfu í bankanum.
  8. Aðgerðatillögur á kröfur: kerfið stingur upp á aðgerðum og framkvæmir þær.
  9. Hlutagreiðslur krafna: leyfa hlutagreiðslu og afskrifa eftirstöðvar.
  10. Lesa kröfur frá banka: kröfur sem eru þegar til í bankanum.
  11. Senda kröfur sjálfvirkt með vinnsluröð: vinnsluröðin sem sendir kröfur og aðgerðir í bankann.

Kröfugreiðslur

  1. Sækja og bóka kröfugreiðslur: greiðslur sóttar og bókaðar í inngreiðslubók.
  2. Sækja kröfugreiðslur sjálfvirkt: vinnsluröð sem sækir greiðslur.
  3. Færa kröfugreiðslur í greiðslusafn: bókaðar greiðslur færðar úr listanum.

Útgreiðslur

  1. Greiða lánardrottnum með millifærslu: greiðslutillaga, sending og bókun.
  2. Erlendar greiðslur: greiðslur til erlendra lánardrottna.
  3. Greiða kröfur úr netbanka: kröfur sem lánardrottnar hafa stofnað á fyrirtækið.
  4. Búa til millifærslu: stök millifærsla án greiðslutillögu.
  5. Staðfesta bankareikning: athuga reikning hjá bankanum áður en greitt er.

Afstemming

  1. Stemma af bankareikning: lesa inn færslur og jafna sjálfvirkt.
  2. Jafna færslur handvirkt: stinga upp á jöfnun, staðfesta og ógilda.
  3. Flytja bankafærslur í greiðslubók: bóka færslur sem vantar í BC, til dæmis bankagjöld.
  4. Jafna upphafsfærslur: eldri færslur þegar afstemming hefst.
  5. Bóka gengismun: gengismunur á erlendum reikningum.

Kreditkort

  1. Stofna kreditkort: kort sótt frá bankanum.
  2. Stemma af kreditkort: kortafærslur og kvittanir.
  3. Stofna innkaupareikninga úr kortafærslum.

Gengi

  1. Sækja gengi: gengi frá Seðlabanka Íslands.
  2. Sækja gengi sjálfvirkt: vinnsluröð sem sækir gengi.

BankDocs

BankDocs er valfrjáls viðbót við Bankakerfi.

  1. Senda reikninga í bankann
  2. Senda greiðsluseðla í bankann
  3. Athuga og endursenda skjöl

Hvernig þetta virkar

Kröfur fara frá BC í bankann og birtast í netbanka viðskiptamanns. Þegar hann greiðir sækir þú greiðsluna og bókar hana, og hún jafnast við reikninginn. Útgreiðslur fara hina leiðina: þú býrð til greiðslur í BC og sendir þær í bankann. Afstemming ber svo saman færslur í bankanum og í BC.

Dæmi: Dæmi ehf. sendir Prófun hf. kröfu fyrir bókaðan reikning. Prófun hf. greiðir kröfuna í netbankanum, Dæmi ehf. sækir greiðsluna og bókar hana, og í lok mánaðar stemmir bókarinn af bankareikninginn.

Ávinningur

Öll bankaverk eru á einum stað í BC. Þú slærð ekki inn greiðslur, jafnar ekki handvirkt nema í undantekningartilvikum og sérð alltaf stöðu krafna og greiðslna.