Flytja bankafærslur í greiðslubók
Sumar færslur eru bara til í bankanum, til dæmis bankagjöld, vextir og innborganir sem hafa ekki verið bókaðar. Úr RdN Afstemming flytur þú þær í færslubók, bókar þær og jafnar síðan.
Sviðsmynd
Í afstemmingu mánaðarins hjá Dæmi ehf. standa eftir bankagjöld og innborgun frá Prófun hf. sem enginn hefur bókað. Bókarinn merkir færslurnar, flytur þær í greiðslubók, bókar og keyrir sjálfvirka jöfnun aftur.
Áður en þú byrjar
- Þú hefur lesið inn færslur og jafnað það sem hægt er.
- Sniðmát og bunki færslubókar eru til.
- Ef bankagjöld eiga að fara beint á bókhaldslykil er vörpun bankafærsluflokka sett upp.
Skref fyrir skref
-
Merktu færslurnar í Bankareikningshreyfingar (frá banka) og veldu Flytja markað í greiðslubók. Til að flytja allar ójafnaðar færslur velur þú Flytja í greiðslubók.

-
Veldu Bókarsniðmát og Greiðslubunki og veldu Í lagi.

-
Ef línur eru þegar í bókinni spyr kerfið Það eru %1 fyrir í inngreiðslubókinni, viltu eyða þeim? Svaraðu játandi til að byrja með tóma bók, eða neitandi til að bæta við.
-
Færslubókin opnast. Kerfið hefur fyllt út línurnar:
- Innborgun þar sem kennitala greiðanda er kennitala viðskiptamanns fer á viðskiptamanninn og er jöfnuð á móti opinni færslu út frá tilvísuninni.
- Útborgun þar sem kennitalan í tilvísuninni er kennitala lánardrottins fer á lánardrottininn.
- Færsla með flokkunarkóta sem er varpað á bókhaldslykil fer á þann lykil.

-
Fylltu út reikning á línum sem kerfið gat ekki fyllt út og jafnaðu við opnar færslur ef þarf.
-
Bókaðu bókina.
-
Farðu aftur í RdN Afstemming og veldu Keyra sjálfvirka jöfnun. Nýbókuðu færslurnar jafnast á móti bankafærslunum.
Niðurstaða
Færslurnar sem vantaði eru bókaðar á bankareikninginn í Business Central og jafnaðar á móti bankanum.
Næsta skref er að stemma af bankareikning.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Engar færslur til að flytja Engin færsla var merkt, eða allar færslur eru þegar jafnaðar.
- Lína kemur inn án reiknings. Kerfið fann hvorki viðskiptamann, lánardrottin né vörpun. Fylltu út reikninginn handvirkt.
- Lína kemur inn með auða upphæð. Kveikt er á Hreinsa upphæð ef ekkert skjal til jöfnunar finnst og ekkert skjal fannst til að jafna á móti. Jafnaðu línuna og fylltu út upphæðina.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.