Athuga og endursenda skjöl
Hver sending reikninga eða greiðsluseðla í bankann með BankDocs, valfrjálsri viðbót við Bankakerfi, er skráð sem tilraun í aðgerðasögu. Þar sérðu hvaða skjöl fóru, af hverju önnur fóru ekki og getur sent þau aftur.
Sviðsmynd
Bókari Dæmi ehf. sendi reikninga úr kröfubunka í bankann. Allir reikningar sendir í bankann sýnir Nei. Hann opnar aðgerðasöguna, sér að kennitala eins viðskiptamanns var röng, lagar hana og sendir reikninginn aftur.
Áður en þú byrjar
- Reikningar eða greiðsluseðlar hafa verið sendir úr kröfubunka, sjá Senda reikninga í bankann og Senda greiðsluseðla í bankann.
Skref fyrir skref
Opna aðgerðasöguna
Opnaðu aðgerðasöguna á einn af þessum leiðum:
- Á kröfubunkanum skaltu velja gildið í Allir reikningar sendir í bankann eða Allir greiðsluseðlar sendir í bankann. Þá sérðu aðeins tilraunir þess bunka.
- Leitaðu að RdN Aðgerðasaga kröfureikninga í banka eða RdN Aðgerðasaga greiðsluseðla krafna í banka.
- Í Stillingar - RdN Kröfur, á flipanum Sjálfvirkni, skaltu velja Opna aðgerðasögu reikninga í bankann... eða Opna aðgerðasögu greiðsluseðla í bankann....

Finna villuna
- Finndu tilraunina. Staða sýnir Allt sent, Sumt sent eða Sending mistókst.
- Veldu Kenni tilraunar til að opna spjald tilraunarinnar. Í Kröfureikningar í tilraun eða Greiðsluseðlar krafna í tilraun er ein lína fyrir hvert skjal með Staða Tókst eða Mistókst.
- Veldu línu sem mistókst og veldu Sýna villuskilaboð.

Senda aftur
Lagaðu fyrst það sem villan segir til um, til dæmis kennitölu á kröfu eða bankareikningi. Síðan:
- Til að senda öll skjöl tilraunarinnar sem mistókust skaltu velja Reyna aftur reikninga á villu eða Reyna aftur greiðsluseðla á villu.
- Til að senda aðeins sum skjöl skaltu velja línurnar í Kröfureikningar í tilraun eða Greiðsluseðlar krafna í tilraun og velja Endursenda valda.
Niðurstaða
Hver endursending verður ný tilraun í aðgerðasögunni. Tilraun reynir aftur er hakað á nýju tilrauninni og Upprunalega tilraun vísar í fyrstu tilraunina. Upprunalega tilraunin fær Síðasta tilraun sem vísar í nýjustu endursendinguna. Allir reikningar sendir í bankann sýnir Já þegar Reikningur sendur er hakað á öllum kröfulínum bunkans. Allir greiðsluseðlar sendir í bankann sýnir Já þegar greiðsluseðill hverrar kröfu sem er ekki niðurfelld hefur verið sendur.

Tókst þýðir aðeins að vefþjónusta bankans tók við skjalinu. Bankinn sendir skjölin áfram til Reiknistofu bankanna (RB), sem villuprófar þau aftur áður en þau birtast í heimabanka. Sá sem tekur við tilkynningum frá RB fyrir fyrirtækið fær staðfestingu og sundurliðun á innlestrinum. Skjal sem er sent aftur kemur í stað þess eldra í heimabankanum, það birtist ekki tvisvar.

Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Það eru engar aðgerðasögufærslur innan síunnar. Tilraunin á engin skjöl sem mistókust, eða þú valdir engar línur.
- Það eru engin villuskilaboð. Línan tókst og hefur því enga villu.
- Skjal er Tókst en birtist ekki í heimabankanum. Hafðu samband við bankann, því RB getur hafnað skjölum eftir að bankinn tók við þeim.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.