Fjárhagstengingar
Bankakerfi talar ekki beint við bankana heldur í gegnum Fjárhagstengingar Cloud, þjónustu sem Rue de Net hýsir. Á þessari síðu tengir þú Business Central við þjónustuna. Þetta er gert einu sinni fyrir hvert fyrirtæki.
Tilgangur
Eftir uppsetninguna getur Bankakerfi sent fyrirspurnir til bankanna í gegnum Fjárhagstengingar, til dæmis sótt bankafærslur, stofnað kröfur og sent greiðslur. Hver notandi skráir sig svo inn í sinn banka með bankanotanda.
Forsendur
- Þú hefur fengið þrennt frá Rue de Net: API-lykil, nafn búnaðarskilríkis og slóð á fjárhagstengingar.
Heimildir
Þú þarft heimild til að breyta Stillingar - RdN Fjárhagstengingar Cloud.
Skref
- Leitaðu að Stillingar - RdN Fjárhagstengingar Cloud og opnaðu síðuna. Þú getur líka gert þetta í skrefinu Fjárhagstengingar í uppsetningu með aðstoð.
- Skráðu í Nafn búnaðarskilríkis nafnið sem Rue de Net gaf þér.
- Skráðu í Slóð á fjárhagstengingar slóðina sem Rue de Net gaf þér. Slóðin verður að enda á
/. - Veldu Skrá API lykil, límdu inn API-lykilinn og staðfestu. Lykillinn er geymdur á öruggum stað í Business Central og sést ekki á síðunni. Þá er hakað í API lykill skráður.
- Veldu Prófa tengingu.

Á síðunni eru líka þessar aðgerðir:
- Eyða API lykli eyðir lyklinum, til dæmis ef Rue de Net gefur út nýjan. Skráðu svo nýja lykilinn með Skrá API lykil.
- Búa til nýtt App auðkenni býr til nýtt auðkenni fyrir Business Central gagnvart Fjárhagstengingum. Þá þurfa allir notendur að skrá bankanotanda sinn aftur. Notaðu aðgerðina aðeins ef Rue de Net biður um það.
Staðfesta
- Prófa tengingu skilar Tenging tókst!.
- Hakað er í API lykill skráður og App auðkenni skráð.
Ef prófunin mistekst er oftast nafn búnaðarskilríkis eða slóðin röng. Ef þú færð
Slóð á Fjárhagstengingar verður að enda á "/" vantar / aftast í slóðina. Öll skilaboð eru í
Aðstoð.