Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stofna kröfur sjálfkrafa við bókun

Ef þú stofnar kröfu á flesta sölureikninga borgar sig að láta kerfið gera það sjálft. Þegar sölureikningur með ákveðnum greiðslumáta er bókaður stofnar Bankakerfi kröfu á hann í kröfubunka dagsins. Bókunin sendir ekki kröfuna í bankann; hún bíður þar til þú velur Framkvæma aðgerðir eða vinnsluröð sendir biðaðgerðir.

Sviðsmynd

Dæmi ehf. sendir 40 sölureikninga á dag og allir eru innheimtir með kröfu. Innheimtufulltrúinn vill ekki mynda kröfurnar handvirkt á hverjum degi. Reikningar með greiðslumátanum KRAFA eiga að fá kröfu við bókun, og vinnsluröð á að senda þær í bankann reglulega.

Áður en þú byrjar

  • Kröfur eru settar upp og sjálfgefinn Innheimtuaðili er skráður.
  • Greiðslumátinn fyrir kröfur er til og skráður á viðskiptamennina sem eiga að fá kröfu.
  • Þú hefur heimild til að breyta Stillingar - RdN Kröfur og vinnsluröð.

Skref fyrir skref

  1. Opnaðu Stillingar - RdN Kröfur.

  2. Í flýtiflipanum Sjálfvirkni skaltu kveikja á Nota sama dags bókun.

  3. Skráðu greiðslumátann, til dæmis KRAFA, í Greiðslumáti 1. Ef fleiri greiðslumátar eiga að stofna kröfur skaltu nota Greiðslumáti 2 til Greiðslumáti 7.

    Sjálfvirkar kröfur í stillingum

  4. Veldu hvernig kröfurnar eru sendar í bankann. Opnaðu bunkann og veldu Framkvæma aðgerðir, eða settu upp vinnsluröð sem sendir biðaðgerðir reglulega; sjá Senda kröfur sjálfvirkt með vinnsluröð. Framkvæma aðgerð strax sendir valdar uppfærslur og niðurfellingar eldri krafna strax, en sendir ekki kröfu um leið og hún er stofnuð.

  5. Bókaðu sölureikning með greiðslumátanum. Kerfið finnur opinn kröfubunka sem var stofnaður í dag fyrir greiðslumátann, eða býr hann til, og stofnar kröfuna í honum.

    Sjálfvirkur kröfubunki

Niðurstaða

Hver bókaður reikningur með greiðslumátanum fær kröfu í kröfubunka dagsins. Lýsing bunkans er dagsetningin og bunkinn er merktur sem sjálfvirkur. Kröfunúmerið er skráð á viðskiptamannafærsluna. Krafan hefur Aðgerð Stofna þar til hún er send. Veldu Framkvæma aðgerðir eða notaðu vinnsluröðina til að senda biðaðgerðina.

Næsta skref er að senda kröfur sjálfvirkt með vinnsluröð.

Vinnsluröð í stað bókunar: RdN Create Claims JOB

Vinnsluröðin RdN Create Claims JOB (codeunit 10041509) stofnar líka kröfur sjálfkrafa, en á annan hátt. Þú þarft yfirleitt aðeins aðra leiðina.

Við bókunRdN Create Claims JOB
HvenærUm leið og reikningur er bókaðurÞegar vinnsluröðin keyrir
Hvaða reikningarAðeins með greiðslumáta í Greiðslumáti 1 til 7Allir opnir reikningar viðskiptamanna sem eru ekki lokaðir, óháð greiðslumáta
KröfubunkiEinn á dag fyrir hvern greiðslumátaEinn á dag
Sendir í bankannNeiNei
  • Notaðu bókunina ef aðeins sumir reikningar eiga að fá kröfu, til dæmis eftir greiðslumáta.
  • Notaðu RdN Create Claims JOB ef allir opnir reikningar eiga að fá kröfu, líka eldri reikningar og reikningar sem urðu ekki til við bókun sölureiknings.
  • Það skaðar ekki að nota hvort tveggja, því hvorug leiðin stofnar kröfu á færslu sem á kröfu fyrir. En vinnsluröðin stofnar þá líka kröfur á reikninga með öðrum greiðslumátum.

Hvorug leiðin sendir kröfurnar. Það gerir vinnsluröðin RdN Perform Operations, sjá Senda kröfur sjálfvirkt með vinnsluröð.

Krafa stofnuð sjálfkrafa

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Engin krafa varð til. Athugaðu að greiðslumáti reikningsins sé í einum af reitunum Greiðslumáti 1 til Greiðslumáti 7 og að eftirstöðvarnar nái lágmarksupphæðinni. Ef viðskiptamaðurinn er tengdur viðskiptamannastillingu gildir lágmark hennar; annars gildir Lágmarks upphæð kröfu í Stillingar - RdN Kröfur. Sjá Viðskiptamannastillingar.
  • Krafan varð til en fór ekki í bankann. Veldu Framkvæma aðgerðir á bunkanum eða athugaðu að vinnsluröðin sem sendir kröfur sé í gangi.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.