Erlendar greiðslur
Erlendar greiðslur fara í gegnum RdN Útgreiðslubók á sama hátt og innlendar greiðslur. Munurinn er sá að bankinn þarf fleiri upplýsingar um viðtakandann og að greiðslur í erlendri mynt verða að vera í sérstakri bók.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. kaupir vörur af birgja í Danmörku og greiðir í DKK. Gjaldkerinn greiðir reikninga hans í sérstökum bunka fyrir erlendar greiðslur og lætur kerfið sækja kostnaðinn sem bankinn tekur fyrir greiðsluna.
Áður en þú byrjar
-
Á lánardrottnaspjaldinu eru nafn, heimilisfang, borg, land og gjaldmiðilskóti rétt skráð.

-
Á bankareikningi lánardrottins eru nafn bankans, borg, land, SWIFT-kóði og IBAN. Án þeirra hafnar kerfið greiðslunni.
-
Ef bankinn á að senda lánardrottninum kvittun þarf netfang að vera á bankareikningi lánardrottins og kveikt á Senda kvittun á tölvupóstfang í stillingum útgreiðslna.

-
Bankar taka aðeins við erlendum greiðslum á ákveðnum tíma dags. Kannaðu tímamörkin hjá þínum banka.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu RdN Útgreiðslubók og veldu bunka sem er aðeins notaður fyrir erlendar greiðslur.
-
Veldu Greiðslutillögur til lánardr. og afmarkaðu á lánardrottininn eða á gjaldmiðilinn.

-
Farðu yfir línurnar. Flokkunarlykill greiðslu fær sjálfgefinn flokk erlendra greiðslna úr stillingunum. Þú getur breytt honum á línunni eða í Greiðsluupplýsingar undir Millifærsla (Erlend).
-
Ef greiðslan á að fara sem hraðgreiðsla skaltu haka í Hraðgreiðsla, annaðhvort á línunni eða í Greiðsluupplýsingar. Það er sami reiturinn. Hraðgreiðsla á aðeins við um erlendar greiðslur og bankinn tekur gjald fyrir hana samkvæmt gjaldskrá.
-
Veldu Senda bunka í banka. Línurnar fá stöðuna Send í banka.

-
Veldu Athuga stöðu bunka þar til línurnar eru Staðfest frá banka. Þá uppfærist upphæðin í íslenskum krónum eftir genginu sem bankinn notaði.
-
Ef kveikt er á Sækja kostnað erlendra greiðslna bætir kerfið við tveimur kostnaðarlínum fyrir hverja greiðslu, á kostnaðarreikninginn og bankareikninginn úr stillingunum.

-
Veldu Bóka.
Niðurstaða
Greiðslan er bókuð á genginu sem bankinn notaði og jöfnuð á móti innkaupareikningnum. Kostnaður bankans er bókaður á kostnaðarreikninginn ef kerfið sótti hann.
Næsta skref er að greiða lánardrottnum.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Ef borga á í erlendum gjaldmiðli má ekkert í bókinni vera ISK Bókin blandar saman erlendum og innlendum greiðslum. Færðu innlendu greiðslurnar í annan bunka.
- Bókin verður að vera í ... en ekki ... Fyrsta línan í bókinni er í íslenskum krónum en önnur lína í erlendri mynt. Skiptu greiðslunum í tvo bunka.
- Ef bankinn hafnar greiðslu fær línan stöðuna Á villu og skýringin er í reitnum Villa. Algengast er að SWIFT-kóða eða IBAN vanti á bankareikning lánardrottins.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.