Fara beint í efni
Vegvísir

Leita í Vegvísi

Sláðu inn leitarorð til að finna leiðbeiningar.

English
Valmynd
Á þessari síðu

Stemma af bankareikning

Í RdN Afstemming lest þú inn hreyfingar frá bankanum og jafnar þær á móti bankafærslum í Business Central. Flestar færslur jafnast sjálfvirkt. Það sem eftir stendur jafnar þú handvirkt eða flytur í greiðslubók.

Sviðsmynd

Bókari hjá Dæmi ehf. stemmir af aðalbankareikning fyrirtækisins í byrjun hvers mánaðar. Hann les inn hreyfingar síðasta mánaðar frá bankanum og keyrir sjálfvirka jöfnun. Greiðsla frá Prófun hf. sem var greidd á föstudegi og bókuð í bankanum á mánudegi jafnast samt sjálfvirkt.

Áður en þú byrjar

  • Afstemming er sett upp og stillingarnar eru tengdar við bankareikninginn.
  • Greiðslur og innborganir tímabilsins eru bókaðar í Business Central.

Skref fyrir skref

Lesa inn færslur frá bankanum

  1. Leitaðu að RdN Afstemming og veldu bankareikninginn í Bankareikningur.

  2. Veldu Lesa inn færslur.

    Aðgerðin Lesa inn færslur

  3. Fylltu út Frá dags. og Til dags. og veldu Í lagi. Færslur sem hafa þegar verið lesnar inn eru ekki lesnar aftur.

    Tímabil valið

Færslur frá bankanum birtast í Bankareikningshreyfingar (frá banka) og bankafærslur í Business Central í Bankareikningshreyfingar (í NAV).

RdN Afstemming með færslum frá banka og úr Business Central

Jafna sjálfvirkt

  1. Veldu Keyra sjálfvirka jöfnun. Kerfið jafnar færslur með sömu upphæð á sömu dagsetningu, eða innan Mesti leyfilegi dagsetningamunur í stillingum afstemmingar.
  2. Kerfið birtir Jafnaðar færslur: %1 Ójafnaðar færslur: %2. Jafnaðar færslur fá Afstemming ID og hverfa úr listanum.

Keyra sjálfvirka jöfnun

Til að jafna aðeins hluta af færslunum velur þú Keyra sjálfvirka jöfnun fyrir afmarkað tímabil. Ef gluggi opnast fyllir þú út Bankareikningur, Dagsetning frá og Dagsetning til.

Sjálfvirk jöfnun fyrir afmarkað tímabil

Ganga frá því sem eftir stendur

Niðurstaða

Allar færslur tímabilsins eru jafnaðar og hafa Afstemming ID. Bankareikningurinn í Business Central stemmir við bankann. Með Afmarka á jafnaðar færslur sérð þú hvað var jafnað.

Næsta skref er að jafna færslur handvirkt.

Ef eitthvað fer úrskeiðis

  • Stillingar afstemmingar fundust ekki fyrir bankareikning %1 Reiturinn RdN Stillingar - Afstemming er auður á bankareikningnum. Veldu Opna stillingar bankareiknings og fylltu hann út.
  • Færsla jafnast ekki þótt upphæðin sé rétt. Dagsetningarnar eru of langt hvor frá annarri, eða fleiri en ein færsla kemur til greina og slökkt er á Leyfa óöruggar uppástungur. Jafnaðu hana handvirkt.
  • Engar færslur koma frá bankanum. Athugaðu tímabilið og að bankanotandinn hafi aðgang að reikningnum.

Öll skilaboð eru í Aðstoð.