Sækja gengi sjálfvirkt
Í stað þess að sækja gengi handvirkt getur vinnsluröð gert það á hverjum degi. Færibreytustrengurinn ræður hvaðan gengið er sótt og hvaða gengi.
Sviðsmynd
Prófun hf. er með mikil viðskipti í erlendri mynt og vill að nýtt sölugengi sé komið í Gjaldmiðlar á hverjum morgni áður en starfsfólk byrjar að bóka.
Áður en þú byrjar
- Sækja gengi virkar handvirkt.
- Til að sækja frá viðskiptabanka þarf notandinn sem keyrir vinnsluröðina að vera skráður bankanotandi.
- Þú hefur heimild til að stofna vinnsluraðarfærslur.
Skref fyrir skref
-
Leitaðu að Vinnsluraðarfærslur og veldu Nýtt.
-
Veldu Codeunit í Tegund hlutar sem á að keyra og 10041503 (RdN Get Curr. Exchange Rate) í Kenni hlutar sem á að keyra.
-
Skráðu einn af þessum strengjum í Færibreytustrengur:
Færibreytustrengur Hvaða gengi Seðlabanki;MiðMiðgengi frá Seðlabanka Íslands. Banki;SalaSölugengi frá bankanum sem fyrsti tengdi bankareikningurinn er í. Banki;KaupKaupgengi frá bankanum sem fyrsti tengdi bankareikningurinn er í. Banki;Sala;<nr. bankareiknings>Sölugengi frá bankanum sem tiltekinn bankareikningur er í. Banki;Kaup;<nr. bankareiknings>Kaupgengi frá bankanum sem tiltekinn bankareikningur er í. 
-
Veldu dagana sem færslan á að keyra, upphafstíma og byrjunardag.
-
Veldu Stilla stöðu á Tilbúið. Kerfið athugar þá færibreytustrenginn og, ef sótt er frá banka, að þú sért skráður bankanotandi.

Niðurstaða
Á hverjum degi sem færslan keyrir er nýtt gengi skráð í Gengi gjaldmiðla. Í Gjaldmiðlar sýna Dagsetning gengis og Gengi hvenær gengið var síðast uppfært.
Næsta skref er að sækja gengi.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Enginn Færibreytustrengur fannst…. Færibreytustrengurinn er tómur. Skráðu einn af strengjunum í töflunni.
- Færibreytan "Seðlabanki;Sala" er úrelt… eða Færibreytan "Seðlabanki;Kaup" er úrelt…. Seðlabankinn
gefur aðeins út miðgengi. Notaðu
Seðlabanki;Mið. - Villa. Tómt gildi. eða Fékk ekki gildi úr annari stöðu. Strengurinn er rangt skrifaður. Athugaðu að semíkomma sé á milli hluta og ekkert bil.
- Vinnsluraðarfærslan er í villu þegar sótt er frá banka. Athugaðu að bankanotandi þess sem keyrir færsluna sé innskráður og að bankaauðkennið sé gilt.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.