Dagsetningar á kröfum
Þessi síða er fyrir kerfisstjóra og ráðgjafa. Hver krafa hefur þrjár dagsetningar: gjalddaga, eindaga og niðurfellingardag. Bankakerfi reiknar þær þegar krafan er mynduð, út frá reikningnum og stillingunum sem þú velur hér.
Tilgangur
Gjalddagi er dagurinn sem krafan á að greiðast. Eindagi er síðasti dagur til að greiða án vanskilagjalds og dráttarvaxta. Eindagi er íslenskt hugtak og er ekki til í Business Central, svo Bankakerfi reiknar hann. Á niðurfellingardegi fellir bankinn kröfuna niður ef hún er ógreidd.
Kerfið reiknar dagsetningarnar svona:
| Dagsetning | Hvernig hún reiknast |
|---|---|
| Gjalddagi | Gjalddagi reikningsins, ef hann er ekki liðinn. Ef hann er liðinn: dagurinn í dag að viðbættu Lágmarks tímabil gjaldaga. Dagsetning sem er valin þegar kröfur eru myndaðar gengur fyrir. |
| Eindagi | Gjalddagi að viðbættri formúlunni í reitnum Gjalddagi. Tómur reitur þýðir að eindagi er sami og gjalddagi. |
| Niðurfellingardagur | Gjalddagi að viðbættu Niðurfellingar dagur. Tómur reitur þýðir 36 mánuðir. |
Athugaðu að reiturinn sem heitir Gjalddagi í stillingunum reiknar í raun eindaga út frá gjalddaga.
Forsendur
-
Greiðsluskilmálar viðskiptamannanna reikna gjalddaga reikninga eins og þú vilt. Gjalddagi reiknings reiknast út frá Greiðsluskilmálar á reikningnum, til dæmis 14D.

Heimildir
Þú þarft heimild til að breyta Stillingar - RdN Kröfur og RdN Viðskiptamannastillingar.
Skref
Sama regla fyrir alla viðskiptamenn
-
Opnaðu Stillingar - RdN Kröfur og farðu í flýtiflipann Kröfugerð.
-
Skráðu formúlu í Gjalddagi, til dæmis
5Def eindagi á að vera 5 dögum eftir gjalddaga. Skildu reitinn eftir tóman ef eindagi á að vera sami og gjalddagi.
-
Skráðu Lágmarks tímabil gjaldaga, til dæmis
3D. Það er notað þegar gjalddagi reikningsins er liðinn þegar krafan er mynduð. -
Skráðu Niðurfellingar dagur, oftast
36Meða48M.
Önnur regla fyrir suma viðskiptamenn
-
Opnaðu viðskiptamannastillingar viðskiptamannsins eða hópsins.
-
Fylltu út Lágmarks tímabil gjaldaga, Gjalddagi og Niðurfellingar dagur í flýtiflipanum Tímabil. Þessar stillingar ganga fyrir stillingum krafna.

Ef ítarleg uppsetning innheimtuauðkenna er virk og innheimtuauðkenni passar við greiðslumáta kröfubunkans, ganga dagsetningar innheimtuauðkennisins fyrir báðum.
Staðfesta
Myndaðu kröfu og opnaðu kröfuspjaldið. Í flýtiflipanum Staða kröfu sérðu Gjalddagi, Eindagi og Niðurfellingar dagur.

Ef eindagi lendir á undan gjalddaga stöðvast sendingin með Eindagi er á undan gjalddaga á kröfu Nr. %1. Lagaðu eindagann á kröfunni. Sjá líka Aðstoð.