Stillingar - RdN Afstemming geymir reglur fyrir afstemmingu bankareikninga: númeraröð, sjálfvirka
jöfnun, flutning í færslubók, vörpun á bókhaldslykla, gengismun og kreditkort. Þú getur haft fleiri en
einar stillingar og tengt hverjar þeirra við ákveðna bankareikninga.
Yfirlit
Þú opnar listann með leit að RdN Listi afstemmingar stillinga og opnar stillingarnar þaðan.
Stillingarnar eru tengdar við bankareikning í reitnum RdN Stillingar - Afstemming á
bankareikningsspjaldinu. RdN Afstemming notar stillingar þess bankareiknings sem er valinn. Röð
uppsetningarinnar er í Setja upp afstemmingu.
Afstemming
Reitur
Hvað hann gerir
Hvenær á að breyta
Sjálfgefið
Kóði
Auðkenni stillinganna.
Við stofnun.
Autt
Sjálfgefinn bankareikningur
Bankareikningurinn sem RdN Afstemming opnast með.
Ef stemma á oftast af sama reikning.
Autt
Númeraröð afstemmingar
Númeraröðin sem gefur hverri jöfnun Afstemming ID.
Við uppsetningu.
Autt
Öruggur innflutningur yfirlits
Aðeins staðfestar færslur eru lesnar inn frá bankanum.
Sjaldan.
Valið
Sjálfvirk afstemming
Reitur
Hvað hann gerir
Hvenær á að breyta
Sjálfgefið
Eitt jöfnunarnúmer á keyrslu
Allar jafnanir í einni keyrslu sjálfvirkrar jöfnunar fá sama Afstemming ID.
Ef keyrslan á að afturkallast í heild.
Ekki valið
Mesti leyfilegi dagsetningamunur
Hversu langt bankafærsla og færsla í Business Central mega vera hvor frá annarri til að jafnast. Verður að vera útfyllt til að Stinga uppá jöfnun virki.
Ef bankinn bókar oft seint.
3D
Leyfa óöruggar uppástungur
Kerfið stingur upp á jöfnun þó að fleiri en ein færsla komi til greina.
Slökktu á ef aðeins á að jafna þegar ein færsla passar.
Valið
Sleppa sjálfkrafa jöfnunarnúmeri á greiðslulínu
Innborganir viðskiptamanna í færslubók eru ekki jafnaðar sjálfkrafa á móti opnum færslum.
Ef bókarinn vill jafna sjálfur.
Ekki valið
Nota nýja afstemmingaraðferð
Sjálfvirk jöfnun notar nýrri og hraðvirkari aðferð.
Ef margar færslur eru jafnaðar í einu.
Ekki valið
Bankareikningshreyfingar í færslubók
Reitur
Hvað hann gerir
Hvenær á að breyta
Sjálfgefið
Eitt fylgiskjalsnúmer á bók
Allar línur sem eru fluttar í greiðslubók fá sama fylgiskjalsnúmer.
Ef bókin á að bókast sem eitt fylgiskjal.
Ekki valið
Hreinsa upphæð ef ekkert skjal til jöfnunar finnst
Lína fær auða upphæð ef ekkert skjal finnst til að jafna á móti.
Ef bókarinn á að athuga slíkar línur.
Ekki valið
Bókhaldslyklavarpanir
Reitur
Hvað hann gerir
Hvenær á að breyta
Sjálfgefið
Tengja Bankaf.flokka við bókhaldslykla
Bankafærslur með flokkunarkóta sem er varpað fara á bókhaldslykil þegar þær eru fluttar í greiðslubók.
Ef bankagjöld og vextir eiga að bókast sjálfkrafa.
Ekki valið
Flokkunarkótar í bókhaldslykla varpanir
Fjöldi varpana. Veldu töluna til að opna Bankaf.flokka í bókhaldslykla varpanir, með Flokkunarkóti, Kenni greiðanda og Bókhaldslykill.
Þegar nýr flokkur bætist við.
0
Gengismunur
Reitur
Hvað hann gerir
Hvenær á að breyta
Sjálfgefið
Sniðmát færslubókar fyrir gengismun
Sniðmátið sem línur gengismunar eru stofnaðar í.
Við uppsetningu.
Autt
Keyrsla færslubókar fyrir gengismun
Keyrslan sem línur gengismunar eru stofnaðar og bókaðar í.
Við uppsetningu.
Autt
Kreditkort
Reitur
Hvað hann gerir
Hvenær á að breyta
Sjálfgefið
Sækja kreditkortaviðhengi
Kvittanir sem korthafar hafa skráð hjá bankanum eru sóttar með kortafærslunum.
Ef nota á kvittanir úr appi bankans.
Ekki valið
Kreditkortavarpanir
Fjöldi varpana söluaðila á lánardrottna, fjárhagslykla eða bankareikninga. Veldu töluna til að opna Vörpun kreditkorts á lánardrottin.
Þegar nýr söluaðili bætist við.
0
Númeraröð innkaupareikninga
Númeraröð innkaupareikninga sem eru stofnaðir úr kortafærslum.
Ef þeir eiga að fá sérstaka röð.
Autt
Númeraröð bókaðra innkaupareikninga
Númeraröð sömu reikninga þegar þeir eru bókaðir.
Með Númeraröð innkaupareikninga.
Autt
Staða Arion API-lykils
Hvort API-lykill fyrir kort hjá Arion banka er Uppsett eða Ekki uppsett.
Breytist með aðgerðunum.
Ekki uppsett
Staða LI API-lykils
Hvort API-lykill fyrir kort hjá Landsbankanum er Uppsett eða Ekki uppsett.
Breytist með aðgerðunum.
Ekki uppsett
Aðgerðir
Aðgerð
Hvað hún gerir
Setja Arion API-lykil og Hreinsa Arion API-lykil
Skráir eða eyðir API-lykli fyrir kort hjá Arion banka. Lykillinn er geymdur í öruggri geymslu og sést ekki eftir skráningu.
Setja LI API-lykil og Hreinsa LI API-lykil
Skráir eða eyðir API-lykli fyrir kort hjá Landsbankanum.
Uppsetning með hjálp (á listanum)
Leiðir þig í gegnum almennu stillingarnar og sjálfvirka afstemmingu.