Jafna upphafsfærslur
Þegar þú byrjar að stemma af bankareikning í RdN Afstemming eru oft til eldri færslur, bæði frá bankanum og í Business Central, sem voru stemmdar af á annan hátt. Með Jafna upphafsfærslur merkir þú þær jafnaðar í einu lagi svo afstemmingin byrji á hreinu borði.
Sviðsmynd
Dæmi ehf. tekur afstemminguna í notkun 1. janúar. Bankareikningurinn var stemmdur af í Excel út desember. Bókarinn les inn færslur frá bankanum fyrir síðasta ár og upphafsjafnar allar færslur til 31. desember. Afstemmingin byrjar svo með ójöfnuðum færslum frá 1. janúar.
Áður en þú byrjar
- Afstemming er uppsett og tengd við bankareikninginn.
- Þú veist frá hvaða degi afstemmingin í kerfinu á að gilda og að eldri færslur eru stemmdar af.
Skref fyrir skref
-
Opnaðu RdN Afstemming og veldu bankareikninginn.
-
Lestu inn færslur frá bankanum fyrir tímabilið sem á að upphafsjafna.
-
Ef aðeins á að upphafsjafna sumar færslur merkir þú þær í Markað.
-
Veldu Jafna upphafsfærslur.

-
Fylltu út Bankareikningur, Dagsetning frá og Dagsetning til.
-
Kveiktu á Markaðar ef aðeins merktu færslurnar eiga að jafnast. Annars jafnast allar ójafnaðar færslur á tímabilinu.
-
Veldu Í lagi. Kerfið sýnir fjölda færslna og fjölda jafnaðra færslna.
Niðurstaða
Færslurnar fá Afstemming ID INIT, bæði bankafærslurnar og bankareikningsfærslurnar í Business Central, og birtast ekki lengur sem ójafnaðar. Upphafsjöfnunin parar ekki færslur saman. Hún merkir þær bara sem afgreiddar.
Næsta skref er að stemma af bankareikning.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
- Dagsetningar frá og til verða að vera valdar Fylltu út báðar dagsetningarnar.
- Bankareikningur verður að vera valinn Fylltu út Bankareikningur.
- Veljið færslur til að upphafsjafna Kveikt er á Markaðar en engin færsla er merkt.
- Of margar færslur voru upphafsjafnaðar. Afmarkaðu á færslur með Afstemming ID INIT og afturkallaðu jöfnunina með Afturkalla jöfnun, sjá Jafna færslur handvirkt.
Öll skilaboð eru í Aðstoð.