Stillingar krafna
Síðan Stillingar - RdN Kröfur geymir almennar stillingar fyrir kröfur og kröfugreiðslur. Hún er ein fyrir hvert fyrirtæki.
Yfirlit
Þú opnar síðuna með því að leita að Stillingar - RdN Kröfur, eða í gegnum RdN Kröfur - Uppsetning með hjálp. Stillingarnar eru notaðar þegar kröfur eru stofnaðar og kröfugreiðslur sóttar og bókaðar. Hvernig þú setur þær upp skref fyrir skref er í Setja upp kröfur.

Kröfugerð
| Reitur | Hvað hann gerir | Hvenær á að breyta | Sjálfgefið |
|---|---|---|---|
| Útfærsluaðili krafna | Hvert kröfur eru sendar og innheimtar. Banki sendir þær í bankann á bankaþjónustu bankareikningsins. Gjaldskil sendir allar kröfuaðgerðir, kröfufyrirspurnir og sókn kröfugreiðslna í gegnum Gjaldskil í fjárhagstengingum. Bankareikningurinn þarf samt bankaþjónustu og notandinn bankanotanda í henni. Sjá Innheimta kröfur í gegnum Gjaldskil. | Aðeins ef fyrirtækið innheimtir kröfur í gegnum Gjaldskil. | Banki |
| Kröfu Númeraröð | Númeraröð kröfunúmera. Númerið fer í bankann og verður að vera 6 stafir. | Við uppsetningu. | Tómt |
| Kröfubunka nr.röð | Númeraröð kröfubunka. | Við uppsetningu. | Tómt |
| Lágmarks upphæð kröfu | Ekki eru stofnaðar kröfur þegar eftirstöðvar eru lægri. Viðskiptamannastilling getur yfirskrifað þetta lágmark. | Ef litlar upphæðir á ekki að innheimta. | 0 |
| Tilkynningagjald | Gjald sem leggst á hverja kröfu, til dæmis seðilgjald. | Ef gjaldið breytist. | 0 |
| Annar kostnaður | Annað gjald sem leggst á hverja kröfu. | Ef gjaldið breytist. | 0 |
| Athugasemd á greiðsluseðli | Texti sem prentast á greiðsluseðla. | Ef texti á að birtast. | Tómt |
| Innheimtuaðili | Bankareikningurinn sem nýir kröfubunkar fá. | Ef innheimta færist á annan reikning. | Tómt |
| Virkja ítarlegri uppsetningu innheimtuauðkenna | Velur innheimtuauðkenni eftir bankareikningi og greiðslumáta. | Ef fleiri en eitt auðkenni er á reikningi. | Slökkt |
| Gjalddagi | Formúla sem reiknar eindaga út frá gjalddaga, til dæmis 5D. Tómt þýðir að eindagi er sami og gjalddagi. | Ef dagar milli gjalddaga og eindaga breytast. | Tómt |
| Lágmarks tímabil gjaldaga | Notað þegar gjalddagi reiknings er liðinn: gjalddagi kröfunnar verður dagurinn í dag að viðbættu tímabilinu. | Sjaldan. | Tómt |
| Niðurfellingar dagur | Tími frá gjalddaga þar til bankinn fellir ógreidda kröfu niður. | Sjaldan. | 36M |
| Birta viðvörun þegar aðgerð er valin | Biður um staðfestingu þegar aðgerð er valin á kröfu. | Eftir smekk. | Slökkt |
| Framkvæma aðgerð strax | Sendir valda aðgerð, Uppfæra eða Fella niður, í bankann strax. Það sendir ekki nýja kröfu sem var stofnuð við bókun; notaðu Framkvæma aðgerðir eða vinnsluröð. | Ef uppfærslur og niðurfellingar eiga að fara strax í bankann. | Slökkt |
| Hlutagreiðsla leyfileg sjálfkrafa | Nýir kröfubunkar leyfa hlutagreiðslu. Breyta má bunkanum eftir á. | Ef viðskiptamenn mega greiða hluta kröfu. | Slökkt |
| Kennitölureitur viðskiptamanns | Númer reitsins á viðskiptamanni sem geymir kennitöluna. | Aðeins ef kennitalan er ekki í Nr. | 1 (Nr.) |
| Hámarksstærð kröfubunka | Stærri bunkum er skipt áður en kröfur eru sendar. | Ef bankinn takmarkar fjölda krafna í sendingu. | 0 (engin takmörk) |
Dagsetningarnar eru útskýrðar nánar í Dagsetningar á kröfum.
Kröfugreiðslur
| Reitur | Hvað hann gerir | Hvenær á að breyta | Sjálfgefið |
|---|---|---|---|
| Heiti bókarsniðmáts og Heiti bókarkeyrslu | Inngreiðslubókin sem kröfugreiðslur eru færðar í. | Við uppsetningu. | INNGREIÐ og ALMENNT |
| Númeraröð greiðslna | Fylgiskjalsnúmer greiðslulína í bókinni. | Við uppsetningu. | Tómt |
| Númeraröð fjármagns | Fylgiskjalsnúmer lína fjármagnstekjuskatts. | Ef þær eiga að fá aðra röð. | Tómt |
| Fjárhagsreikningur vaxta | Reikningur sem vextir af kröfugreiðslum bókast á. | Við uppsetningu. | Tómt |
| Fjárhagsreikningur gjalda | Reikningur sem gjöld af kröfugreiðslum bókast á. | Við uppsetningu. | Tómt |
| Fjárhagsreikningur fjármagnstekjuskatts | Reikningur sem fjármagnstekjuskattur af vöxtum bókast á. | Við uppsetningu. | Tómt |
| Mótreikningur gjalda og Mótreikningur vaxta | Ekki lengur notaðir fyrir kröfugreiðslur. | Aldrei. | Tómt |
| Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. vexti og Forskeyti númers utanaðkomandi fylgiskjals f. gjöld | Forskeyti framan við tilvísun greiðslunnar í númeri utanaðkomandi fylgiskjals á línum vaxta og gjalda. | Ef þú vilt greina línurnar að. | Tómt |
| Eitt fylgiskjalsnúmer á bók | Allar línur fá sama fylgiskjalsnúmer. | Sjaldan. | Slökkt |
| Lýsing færslu inniheldur tegund greiðslu | Lýsing línu sýnir hvort hún er greiðsla, vextir eða gjöld. | Eftir smekk. | Slökkt |
| Leyfa bókun á lokaða viðskiptamenn | Greiðslur lokaðra viðskiptamanna eru bókaðar í stað þess að vera sleppt. | Ef lokaðir viðskiptamenn greiða enn. | Slökkt |
| Sleppa öðrum kostnaði á kröfugreiðslum | Annar kostnaður er ekki færður sem sér lína. | Eftir bókhaldsvenju. | Slökkt |
Sjálfvirkni og greiðslumátar
| Reitur | Hvað hann gerir | Hvenær á að breyta | Sjálfgefið |
|---|---|---|---|
| Nota sama dags bókun | Stofnar kröfu um leið og sölureikningur er bókaður, ef greiðslumáti hans er einn af greiðslumátunum hér að neðan. | Sjá Stofna kröfur sjálfkrafa við bókun. | Slökkt |
| Greiðslumáti 1–7 | Greiðslumátar sem kalla á kröfu. | Ef nýr greiðslumáti á að mynda kröfur. | Tómt |

Vinnsluraðarfærslur
| Reitur | Hvað hann gerir | Hvenær á að breyta | Sjálfgefið |
|---|---|---|---|
| Sækja færa og/eða bóka | Hvað vinnsluraðarfærslan gerir: Sækja, Sækja og færa eða Sækja færa og bóka. | Sjá Sækja kröfugreiðslur sjálfvirkt. | Sækja |
| Fjöldi daga aftur í tímann | Hve langt aftur greiðslur eru sóttar, til dæmis -3D. | Ef greiðslur vantar. | Tómt |
| Veldu bankareikninga fyrir verkraðara | Bankareikningarnir sem vinnsluraðarfærslan sækir fyrir. Ef enginn er valinn er Innheimtuaðili notaður. | Ef innheimt er á fleiri reikninga. | Enginn |
| Leyfa aðgerðatillögur á lokaðar kröfur | Aðgerðatillögur ná líka til lokaðra krafna. | Sjaldan. | Slökkt |
| Sækja aðgerðatillögur á kröfur fram að dagsetningu: | Hve langt aftur lokaðar kröfur eru skoðaðar. Tómt þýðir allar. | Ef vinnslan er hæg. | Tómt |
Aðgerðir
Síðan hefur engar aðgerðir. Uppsetning með hjálp er opnuð úr Uppsetning með hjálp í Business Central.